Beint í efni

On-The-Go Essentials

Allt sem til þarf í einfalda en áhrifaríka húðmeðferð. On-The-Go settið inniheldur fimm BIOEFFECT vörur í ferðastærðum sem sjá til þess að húðin sé hrein, heilbrigð og vel nærð. Vörurnar koma í fallegri og handhægri snyrtitösku sem er fullkomin í ferðalagið.
7.990 kr.

Eiginleikar og áhrif

On-The-Go inniheldur allt sem til þarf í einfalda en áhrifaríka húðrútínu.

EGF Serum (5 ml): Margverðlaunuðu EGF húðdroparnir okkar draga úr ásýnd fínna lína, auka þéttleika og teygjanleika og bæta rakastig. Innihalda aðeins 7 hrein efni.

EGF Essence (15 ml): Létt og nærandi andlitsvatn sem heldur húðinni mjúkri, heilbrigðri og vel nærðri. Undirbýr húðina fyrir serum og rakakrem og greiðir fyrir upptöku og virkni EGF.

Hydrating Cream (7 ml): Olíu- og ilmefnalaust rakakrem úr hreinu, íslensku vatni. Skilur við húðina slétta, mjúka og ljómandi.

Volcanic Exfoliator (10 ml): Djúphreinsandi en mildur andlitsskrúbbur sem inniheldur örfínar hraunagnir og fínmalaðan apríkósukjarna. Fjarlægir dauðar húðfrumur og óhreinindi af ysta lagi húðarinnar.

Micellar Cleansing Water (30 ml): Milt en áhrifaríkt hreinsivatn úr íslensku vatni og rakagjöfum úr plönturíkinu. Hreinsar farða og óhreinindi án þess að erta húðina.

Vörurnar koma í fallegri og handhægri snyrtitösku.

  • Hreinsar og endurvekur húðina
  • Eykur raka og ljóma
  • Hentar öllum húðgerðum
  • Án ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Vörurnar koma í veski úr endurvinnanlegu plasti
  • Prófað af húðlæknum

Lykilinnihaldsefni

EGF — Rakabindandi og endurnærandi boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. BIOEFFECT EGF úr byggi örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og viðheldur sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.

Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

Glýserín — Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.

Íslenskt vatn — Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.

E-vítamín — Andoxunarefni sem fyrirfinnst náttúrulega í húð. Verndar hana fyrir umhverfisáhrifum og skaðlegum áhrifum sindurefna auk þess að jafna áferð og húðlit.

Mísellur — Blanda af svokölluðum yfirborðsvirkum hreinsiefnum (e. surfuctant-active agents) sem virka eins og segull á olíur og áhreinindi, án þess að fjarlægja náttúrulegar olíur af yfirborði húðarinnar.

Hraunagnir — Agnir úr Hekluhrauni sem skrúbba og fjarlægja dauðar húðfrumur og óhreinindi af húðinni.

Fínmalaður apríkósukjarni — Skrúbbar og fjarlægir dauðar húðfrumur og óhreinindi af húðinni. Er einnig rakagefandi þar sem apríkósukjarni er ríkur af fitusýrum, vítamínum og steinefnum.

Sólblómaolía — Rík af línólsýru; fitusýru sem viðheldur heilbrigðu rakastigi og kemur í veg fyrir rakalosun frá húðinni.

Taskan er úr endurvinnanlegu plasti.

Innihaldsefnalistar

EGF SERUM: GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM HYALURONATE, TROMETHAMINE, SODIUM CHLORIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

HYDRATING CREAM: WATER (AQUA), CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, BUTYLENE GLYCOL, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, CETYL ALCOHOL, DL-ALPHA TOCOPHEROL, PHENOXYETHANOL, SODIUM HYALURONATE, ETHYLHEXYLGLYCERIN, CARBOMER, SORBITAN OLEATE, POTASSIUM SORBATE, POTASSIUM HYDROXIDE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDERUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

EGF ESSENCE: WATER (AQUA), GLYCERIN, ISOPENTYLDIOL, PROPYLENE GLYCOL, SODIUM CITRATE, SORBITOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

MICELLAR CLEANSING WATER:
WATER (AQUA), ISOPENTYLDIOL (HYDRATING AGENT), GLYCEROL, PEG-7 GLYCERYL COCOATE, PROPYLENE GLYCOL, SORBITOL, COCO BETAINE, POLYSORBATE 20, PHENOXYETHANOL, CITRIC ACID, TETRASODIUM EDTA

VOLCANIC EXFOLIATOR:
CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, GLYCERIN, HELIANTHUS ANNUUS (SUNFLOWER) SEED OIL, PROPYLENE GLYCOL DIPELARGONATE, WATER (AQUA), PRUNUS ARMENIACA (APRICOT) SEED POWDER, SUCROSE LAURATE, LAVA POWDER, AZELAIC ACID, TOCOPHEROL, LYSINE, SUCROSE STEARATE

Upplýsingar

BIOEFFECT® EGF SERUM

BIOEFFECT® EGF SERUM er byltingarkennt serum sem dregur verulega úr öldrun húðar, minnkar hrukkur, bætir áferð og endurvekur unglegan ljóma húðarinnar.

Notkunarleiðbeiningar: Berið 2-4 dropa á hreina húð á andliti, augnsvæði og hálsi.


BIOEFFECT® HYDRATING CREAM

BIOEFFECT® HYDRATING CREAM er afar nærandi og rakagefandi krem sem gerir húðina mjúka, slétta og ljómandi.

Notkunarleiðbeiningar: Berið á hreina húð á andliti og hálsi, nuddið með léttum strokum upp á við.

BIOEFFECT® EGF ESSENCE

BIOEFFECT® EGF ESSENCE er létt og nærandi andlitsvatn sem veitir mikinn raka og gerir húðina mjúka og hraustlega. Undirbýr húðina fullkomlega fyrir það BIOEFFECT serum eða rakakrem sem á eftirfylgir og eykur áhrif EGF.

Notkunarleiðbeiningar: Hellið lófafylli af EGF Essence, um það bil 2-4 skvettur, og þrýstið mjúklega inn í húð á hálsi og andliti. Notið BIOEFFECT serum eða rakakrem að eigin vali á eftir.

BIOEFFECT® MICELLAR CLEANSING WATER

BIOEFFECT® MICELLAR CLEANSING WATER fjarlægir farða, olíu og önnur óhreinindi á mildan en áhrifamikinn máta. Húðin verður hrein, fersk og mjúk á eftir.

Notkunarleiðbeiningar: Vætið bómullarskífu vel með BIOEFFECT Micellar Cleansing Water. Strjúkið mjúklega yfir andlit, augnsvæði og háls. Endurtakið þar til öll óhreinindi virðast fjarlægð af húðinni.

BIOEFFECT® VOLCANIC EXFOLIATOR

BIOEFFECT® VOLCANIC EXFOLIATOR er djúphreinsandi andlitsskrúbbur sem inniheldur örfína kristalla úr íslensku hrauni og fínmalaða apríkósukjarna sem fjarlægja óhreinindi og dauðar húðfrumur af yfirborði húðar.

Notkunarleiðbeiningar: Berið lítið magn á hreina og raka húð. Nuddið varlega og forðist augnsvæðið. Skolið vel. Notið 1-2 sinnum í viku, eða hvenær sem þörf þykir.

BIOEFFECT EGF SERUM, HYDRATING CREAM, EGF ESSENCE, MICELLAR CLEANSING WATER og VOLCANIC EXFOLIATOR henta öllum húðgerðum.

Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vörurnar fyrst með því að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en þær eru bornar á andlitið. Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast ráðfærðu þig við lækni áður en þú notar vörurnar.

Ofnæmisupplýsingar: Vörurnar innihalda bygg.

Forðist að vörurnar berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

Micellar Cleansing Water: Vætið bómullarskífu og strjúkið mjúklega yfir andlit, háls og augnsvæði þangað til öll óhreinindi hafa verið fjarlægð af húðinni.

Volcanic Exfoliator: Berið lítið magn af skrúbbinum á hreina og raka húð. Nuddið mjúklega og forðist snertingu við augu. Skolið vel. Notið 1-2 í viku eða eftir þörfum.

EGF Essence: Berið á hreina og þurra húð. Hellið 2-4 skvettum af EGF Essence í lófann og þrýstið mjúklega inn í húðina á andliti og hálsi.

EGF Serum: Berið 2-4 dropa á andlit, háls og bringu, tvisvar á dag. Berið á að morgni og bíðið í 3-5 mínútur áður en aðrar vörur á borð við rakakrem, sólarvörn eða farða eru settar á húðina.

Hydrating Cream: Berið á andlit, háls og bringu. Nuddið upp á við með mjúkum strokum. Kremið má nota eitt og sér eða ásamt öðrum vörum frá BIOEFFECT til að auka næringu, raka og virkni enn frekar.

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Umsagnir

5 / 53 Umsagnir
Sherrie
5 / 5

Great products

I love this set perfect for on the go or travel. Let's talk about the quality, I am blown away with the quality of all these products my favorite is the essence. The serum is also soooooooo great for my skin I'm 37 and need that hydration. I love them all actually and I enjoy the science behind the product as well. These are the best products I have ever purchased ❤️

Pamela T.
5 / 5

Highly Recommend

Skin type: Oily T zone and everywhere else is normal to dry. Dry areas more near the bottom on my cheeks. I had received a sample of the EGF Day Serum from Neimans and loved how it made my t zone matte and didn't dry out my dry areas. I new I needed it as apart of my daily skincare routines. I also wanted to try their other products as well since I loved the one product so much. I decided to purchase the travel set as a trial before committing to a full size purchase and possibly not liking the other products. I do love everything. The EGF serum is a tad "heavier", for lack of better wording, than the daily EGF Serum so I use it as apart of my nightly skincare routine. The essence, I can't quite tell if it makes a difference in absorption of product like it says. I don't dislike the product, but I don't love it and probably won't spend the price tag amount for the full bottle. The volcanic exfoliator is so gentle that it could be used daily. I don't have sensitive skin and I like a more abrasive exfoliator. I don't feel that it exfoliates my skin very well. Especially where I need it the most, my nose (has the most oil production). I could live without it but I use it so it doesn't go to waste. It's more of a regular cleanser to me that doesn't suds up. I do like the eye serum. It gives me a similar feel as the EGF Day serum. It's just not as heavy. But my skin absorbs it very well. My skin absorbs all the products well. There is no film or residue from anything. Everything also works well under my normal moisturizers for day and evening as well as my SPF. I do wait 3-5 minutes to allow the serums to sit, as instructed, before applying any other serums or moisturizer on top. I think everything is definitely worth the price and works great for a 30 day trial product. Also obviously works for travel as well. Overall highly recommend. 5/5 stars.

moukhtar
5 / 5

pruduct

very nice product my wife she will bying than you

Niðurstaða: Já, ég myndi mæla með vörunni