Velkomin í verslanir okkar.
Í verslunum BIOEFFECT að Hafnarstræti 19 og Laugavegi 33 færðu persónulega og faglega húðráðgjöf. Starfsfólk okkar býr yfir mikilli þekkingu á öllu sem viðkemur húðinni og aðstoðar þig við að velja þær húðvörur sem best henta þinni húð.
Opnunartími.
Þegar þú verslar hjá okkur fylgir alltaf smá glaðningur og við bjóðum einnig reglulega upp á fallega kaupauka sem fást eingöngu í verslunum okkar.
Opnunartími á Laugavegi 33
Mán - Fös: 11:00 - 18:00
Lau: 11:00 - 17:00
Sun: 11:00 – 17:00
Laugavegur 33: Sjá kort
Opnunartími á Hafnartorgi, Hafnarstræti 19
Mán - Fös: 11:00 - 18:00
Lau: 12:00 - 17:00
Sun: Lokað
Hafnarstræti 19: Sjá kort
Bókaðu tíma í húðmælingu.
Kynntu þér ástand húðar þinnar með húðmælingu og fáðu persónulega ráðgjöf um húðumhirðu sem hentar þér.
Húðmæling er í boði í verslun BIOEFFECT í Hafnarstræti 19. Mælingin kostar 4.900 kr. og gildir upphæðin upp í vörukaup.
Heillandi hönnun.
Verslun BIOEFFECT í Hafnarstræti 19 er í þríhyrndum enda hússins og einkennist af glæsilegum, bogadregnum verslunarglugga. Lögun hússins minnir marga á hið fræga Flatiron-hús í New York.
Arkitektastofan Basalt hannaði verslunarrýmið í samstarfi við Sóleyju Þórisdóttur, yfirhönnuð BIOEFFECT. Útkoman endurspeglar vörumerkið og tengsl þess við vísindi og náttúru. Innblásturinn var sóttur í gróðurhús BIOEFFECT og birtist meðal annars í notkun ylplasts í innréttingum og lýsingu.
Verslun BIOEFFECT að Laugavegi 33 er í reisulegu timburhúsi sem hefur hýst fjölbreytta verslunarstarfsemi í meira en hundrað ár. Húsið var nýverið gert upp í upprunalegri mynd.
Við hönnun verslananna var lögð áhersla á bjart og opið rými með góðu flæði, þar sem þú getur kynnt þér vörurnar í rólegheitum og fengið persónulega ráðgjöf.