Beint í efni

Skilmálar

SKILMÁLAR
Bioeffect ehf
Víkurhvarf 7
203 Kópavogi
Sími: 531 1000
[email protected]

BIOEFFECT ehf selur og framleiðir BIOEFFECT húðvörur til viðskiptavina. BIOEFFECT áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Afhending vöru

BIOEFFECT ehf afgreiðir pantanir eins fljótt og hægt er. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Afhendingartími er 1-3 virkir dagar. Öllum pöntunum er dreift af Dropp fyrir höfuðborgarsvæðið og af Íslandspósti fyrir sendingar utan höfuðborgarsvæðis og gilda afhendingar- ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropp og Íslandspósts um afhendingu vörunnar.

Verð á vöru

Verð á síðunni er í íslenskum krónum og með VSK en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara og tilboð má afturkalla hvenær sem er.

Sendingarkostnaður - Höfuðborgarsvæðið

Þegar vara er versluð á bioeffect.is er hægt að fá vöru senda heim á höfuðborgarsvæðinu með Dropp. Frír sendingakostnaður fylgir öllum pöntunum yfir 10.000 kr. Heimsending fyrir pantanir undir 10.000 kr. kostar 990 kr.

Sendingarkostnaður - Utan höfuðborgarsvæðis

Þegar vara er versluð á bioeffect.is og á að sendast utan höfuðborgarsvæðis er hún send með Íslandspósti. Hægt er að fá vöruna senda heim að dyrum, í pósthús eða í póstbox. Frír sendingakostnaður fylgir öllum pöntunum yfir 10.000 kr.

Ef vara er send heim að dyrum þá er kostnaður 990 kr. Ef móttakandi er ekki heima og pakki of stór undir lúgu fer sendingin á næsta pósthús.

Sending á pöntunum undir 10.000 kr. á pósthús kostar 890 kr.

Sækja pantanir undir 10.000 kr. í póstbox kostar 990 kr.

Skilafrestur
Samkvæmt reglum um rafræn kaup má hætta við kaup innan 14 daga. Skila skal vörunni, ónotaðri, með órofnu innsigli og í óskemmdum upprunalegum umbúðum. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema ef um er að ræða ranga/gallaða vöru. Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema ef um er að ræða ranga/gallaða vöru. Flutnings og póstburðargjöld fást ekki endurgreidd. Ætlir þú að skila vöru ertu vinsamlegast beðin um að senda hana ásamt kvittun til

BIOEFFECT ehf
Víkurhvarf 7
203 Kópavogi
Ísland

Galli á vöru
Komi upp óvæntur galli í vöru við komu til þín skal BIOEFFECT ráða bót á gallanum og láta kaupanda hafa nýja vöru án endurgjalds og aukakostnaðar eða endurgreiðum ef þess er krafist. Kaupandi er beðin um að hafa samband við BIOEFFECT og taka mynd af lotunúmeri vöru á botni umbúðanna senda til [email protected]

Greiðslumöguleikar
Hægt er að greiða með greiðslukorti visa electron, maestro og mastercard á bioeffect.is.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Farið er með allar persónuupplýsingar sem seljandi móttekur sem algjört trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað. Lesa persónuverndarstefnu.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.