Beint í efni
Frí sending á pöntunum yfir 10.000 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 10.000 kr.

Hreinar og náttúrulegar húðvörur.

Okkar markmið er að endurheimta og viðhalda náttúrulega heilbrigðri húð með aðstoð hreinna og virkra innihaldsefna og öflugri líftækni. Hér er okkar skilgreining á hreinleika.

Þegar við tölum um hreinleika er merkingin sem býr að baki margþætt. Hreinleiki er grunnstoð í allri okkar starfsemi: vörurnar okkar innihalda eins fá efni og mögulegt er. Vatnið sem við notum er upprunnið úr íslenskum náttúrulindum og hefur síast og hreinsast í gegnum jarðlög á leið sinni til yfirborðs. Hátæknigróðurhúsið okkar er knúið orku frá endurnýjanlegum auðlindum.

ÍSLENSKT VATN — TÆR HÚÐVARA

Við notum hreint íslenskt vatn, sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög, í allar okkar vörur. Þetta náttúrulega ferli skilar einstaklega hreinu og mjúku vatni sem fer húðina mildum höndum.

NÁTTÚRULEG AFURÐ — NÁTTÚRULEG HÚÐVARA

Vísindateymið okkar notar líftækni til að framleiða EGF úr byggi, sem er jafnframt það fyrsta í heiminum sem unnið er úr plöntum. EGF úr byggplöntum er náttúruleg og sjálfbær afurð frá vistvæna gróðurhúsinu okkar á Reykjanesi.

FÁ INNIHALDSEFNI — ÓSPILLT HÚÐVARA

Vörurnar okkar innihalda eins fá efni og mögulegt er, og aðeins þau sem húðin þarf náttúrulega og raunverulega á að halda. Því eru allar vörur BIOEFFECT hreinar, öruggar og eiturefnalausar og henta öllum húðtegundum — meira að segja mjög viðkvæmri húð.

ENDURVINNA, ENDURNÝTA — VISTVÆN HÚÐVARA

Við erum sífellt að leita nýrra leiða til að finna sjálfbærari og vistvænni lausnir á allri okkar starfsemi. Nær allar okkar umbúðir eru endurvinnanlegar.

0% ALKÓHÓL - ILMEFNI - SÍLIKON — HREIN HÚÐVARA

Okkar markmið er að allar vörur BIOEFFECT henti öllum húðtegundum — meira að segja mjög viðkvæmri húð. Allar vörurnar okkar eru eiturefna-, lyktarefna-, þalat- og parabenalausar.

Finndu allar húðvörur BIOEFFECT hér

Hleð inn síðu...