Beint í efni
Frí sending á pöntunum yfir 10.000 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 10.000 kr.

Jafnlaunastefna BIOEFFECT

Jafnlaunastefna BIOEFFECT er sú að allir starfsmenn njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að enginn ómálefnalegur launamunur sé til staðar. Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir starfsfólk óháð kyni. Laun taka mið af kjarasamningum, menntun, starfsreynslu, ábyrgð, eðli verkefna, persónulegri hæfni og frammistöðu í starfi. Forstjóri er ábyrgur fyrir jafnlaunakerfi fyrirtækisins og jafnlaunastefnunni, ásamt því að sjá til þess að þeim lagalegum kröfum sem tengjast jafnlaunakerfinu sé fylgt eftir. Fjármálastjóri er tilnefndur sem fulltrúi fyrirtækisins og er ábyrgur fyrir því að innleiða og viðhalda jafnlaunakerfinu í samræmi við ÍST 85:2012. Fjármálastjóri hefur umsjón með innri úttektum á jafnlaunakerfinu, sem fara fram árlega. Jafnlaunastefna BIOEFFECT er órjúfanlegur hluti af launastefnu fyrirtækisins.

Í þeim tilgangi að framfylgja lögum um launajafnrétti skuldbindur BIOEFFECT sig til þess að:

  • Innleiða vottað og skjalfest jafnlaunakerfi sem byggist á jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012.
  • Viðhalda jafnlaunakerfinu með stöðugum umbótum, eftirliti og viðbrögðum í samræmi við kröfur staðalsins.
  • Framkvæma launagreiningu a.m.k. árlega, þar sem borin eru saman jafnverðmæt störf og það skoðað hvort að munur mælist á launum eftir kyni.
  • Kynna niðurstöður launagreiningar fyrir starfsfólki fyrirtækisins.
  • Tryggja upplýsingaflæði innan fyrirtækisins og skapa umgjörð til að setja fram og rýna jafnlaunamarkmið.
  • Fylgja viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem eru í gildi á hverjum tíma.
  • Kynna jafnlaunastefnu fyrirtækisins fyrir starfsfólki og hafa hana aðgengilega almenningi.


Jafnlaunastefna BIOEFFECT var samþykkt af forstjóra 7.11.2022.