Beint í efni
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.

Good Morning Good Night

Good Morning Good Night inniheldur tvær af okkar vinsælustu húðvörum í fullri stærð: EGF Serum (30 ml) og EGF Day Serum (30 ml). Þessi áhrifaríka tvenna veitir djúpan og langvarandi raka og vinnur markvisst gegn sýnilegum öldrunareinkennum húðarinnar frá morgni til kvölds.

EGF Day Serum (30 ml) er silkimjúkt, gelkennt serum sem er þróað til að veita djúpan raka og vinna gegn öldrunareinkennum húðarinnar. Þetta létta serum gengur hratt og vel inn í húðina og heldur henni vel nærðri í amstri dagsins. Það myndar jafnframt fullkominn grunn undir sólarvörn og farða. EGF Serum (30 ml) hentar einstaklega vel til notkunar á kvöldin. Á meðan þú sefur vinna þessir virku og áhrifaríku húðdropar markvisst að því að draga úr sýnilegum öldrunareinkennum húðarinnar; þeir hjálpa til við að auka þéttleika, veita langvarandi raka og draga úr ásýnd fínna lína og hrukka, og styðja þannig við náttúrulega endurnýjun húðarinnar.

Settið er á 10.790 kr. lægra verði en ef vörurnar eru keyptar stakar.

Virði: 42.980 kr.

30ml + 30ml
Verð32.190 kr.

Eiginleikar og áhrif

Þessi áhrifaríka tvenna veitir djúpan og langvarandi raka og vinnur markvisst gegn sýnilegum öldrunareinkennum húðar frá morgni til kvölds. Bæði serumin innihalda BIOEFFECT EGF, endurnærandi og rakabindandi vaxtarþátt sem gegnir mikilvægu hlutverki og hjálpar meðal annars til við að efla rakabindingu, auka þéttleika og viðhalda sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.

EGF Day Serum inniheldur BIOEFFECT EGF, panthenol (B5 vítamín) og hýalúrónsýru og er þróað til að veita djúpvirkan raka og vinna gegn sýnilegum öldrunareinkennum húðarinnar. Serumið eykur rakabindingu, hefur róandi og bólgueyðandi áhrif og styrkir ysta varnarlag húðarinnar. Þessi létta, silkimjúka og gelkennda formúla gengur hratt og vel inn í húðina og myndar fullkominn grunn undir sólarvörn og farða.

EGF Serum eru byltingarkenndir og margverðlaunaðir húðdropar sem innihalda lykilinnihaldsefnið okkar, BIOEFFECT EGF. Húðdroparnir eru sérstaklega þróaðir til að vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við fínar línur og hrukkur, þeir auka þéttleika, veita langvarandi raka og viðhalda sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar. Árið 2024 var EGF Serum valið í hóp 100 bestu húðvara allra tíma af hinu þekkta tímariti Women’s Wear Daily.

EGF Day Serum:

  • Eykur og viðheldur raka í húðinni
  • Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
  • Styrkir ysta varnarlag húðarinnar og verndar hana gegn skaðlegum umhverfisáhrifum
  • Jafnar áferð og húðlit
  • Róar húðina og stuðlar að heilbrigðri ásýnd hennar
  • Silkimjúk áferð sem er fullkominn grunnur undir farða og sólarvörn
  • Hentar öllum húðgerðum og kynjum
  • Aðeins 11 hrein innihaldsefni
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum

Stærð: 30 ml

EGF Serum:

  • Dregur úr ásýnd hrukka og fínna lína
  • Eykur og viðheldur raka í húðinni
  • Þéttir og sléttir húðina
  • Jafnar áferð og húðlit
  • Hentar öllum húðgerðum
  • Aðeins 7 innihaldsefni
  • Aðeins þörf á 2-4 dropum
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Án rotvarnarefna
  • Prófað af húðlæknum

Stærð: 30 ml

Lykilinnihaldsefni

BIOEFFECT EGF: Hjálpar til við að örva náttúrulega kollagenframleiðslu og minnkar því sýnilega fínar línur og hrukkur og þéttir og sléttir húðina. EGF er lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðar þar sem það er rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur.

Hýalúronsýra: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

Glýserín: Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.

Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið er magn ertandi steinefna á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki, sem gerir það síður líklegt til að þurrka eða erta húðina. Því hentar íslenska vatnið einstaklega vel í framleiðslu húðvara.

Panthenol (B5 vítamín) er nýtt innihaldsefni í EGF Day Serum sem eykur rakastig húðarinnar með því að draga vatn að yfirborði húðþekjunnar. Þetta fjölhæfa innihaldsefni styrkir ysta varnarlag húðarinnar, auk þess að róa hana og draga úr bólgum.

BIOEFFECT bygg ekstrakt hjálpar til við að halda EGF vaxtarþáttunum í EGF Day Serum stöðugum. Þetta öfluga innihaldsefni er ríkt af peptíðum og andoxunarefnum, minnkar ásýnd hrukka og fínna lína og verndar húðina gegn skaðlegum áhrifum af völdum UV-geisla.

Innihaldsefnalisti

EGF Day Serum: WATER (AQUA), PROPYLENE GLYCOL, XYLITOL, SODIUM POLYACRYLOYLDIMETHYL TAURATE, PANTHENOL, SODIUM CITRATE, SODIUM HYALURONATE, PHENOXYETHANOL, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

EGF Serum: GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM HYALURONATE, TROMETHAMINE, SODIUM CHLORIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafðu samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Upplýsingar

BIOEFFECT® GOOD MORNING GOOD NIGHT

BIOEFFECT® EGF DAY SERUM er kröftug húðvara sem er sérstaklega hönnuð til notkunar á daginn. Dregur úr hrukkum og fínum línum, hámarkar ljóma og kemur jafnvægi á rakastig húðar auk þess að gefa mjúka áferð sem er tilvalinn grunnur undir farða.

  • Dregur úr hrukkumyndun
  • Hámarkar ljóma og litarhaft
  • Stinnir og þéttir húðina
  • Góður grunnur undir farða

Notkunarleiðbeiningar: Berðu 1-2 pumpur á hreina húð í andliti, á hálsi og á bringu að morgni. Gefðu húðinni 3-5 mínútur til að draga serumið í sig áður en farði eða sólarvörn eru borin á.

BIOEFFECT EGF Day Serum hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni. Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast leitaðu upplýsinga hjá lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF Day Serum.

Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

BIOEFFECT® EGF SERUM er margverðlaunað serum sem endurnýjar húðina og veitir henni raka. Hefur fyrirbyggjandi áhrif og vinnur gegn sýnilegum merkjum öldrunar auk þess að viðhalda heilbrigðri áferð og ásýnd húðar með aðeins 7 innihaldsefnum.

· Dregur úr sýnileika fínna lína og hrukka

· Eykur og viðheldur raka í húðinni

· Endurnýjar, endurnærir og endurbætir húð

· Einungis 7 innihaldsefni

Notkunarleiðbeiningar
Berið 2-4 dropa á andlit, háls og bringu. Notið kvölds og morgna, eitt og sér eða með öðrum BIOEFFECT vörum til að hámarka áhrif og virkni.

BIOEFFECT EGF SERUM hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni.

Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði á húðinni í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF SERUM.

Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

EGF Day Serum: Pumpaðu 1-2 sinnum í lófa og berðu á hreina og þurra húð á andliti, hálsi og bringu. Bíddu í 3-5 mínútur áður en aðrar vörur á borð við rakakrem, sólarvörn eða farða eru bornar á húðina.

EGF Serum: Berðu 2-4 dropa á andlit, háls og bringu og nuddaðu upp á við með mjúkum hringhreyfingum. Bíddu í 3-5 mínútur áður en aðrar vörur eru bornar á húðina.

Passar vel með: