Beint í efni

Meiri raki.

Raki er lykillinn að heilbrigðri og ljómandi húð. Þess vegna tölum við reglulega um mikilvægi rakagefandi innihaldsefna sem bæði veita mikinn raka og hjálpa við að binda þann raka djúpt í húðlögunum.

Gott er að huga vel að húðrútínunni og gott er að nota nokkrar rakagefandi vörur saman, hver ofan á aðra, til að byggja upp raka. Ein leið er til dæmis að nota rakavatn eins og EGF Essence undir Hydrating Cream rakakremið á morgnanna. Kvöldin eru þó besti tíminn til að hámarka rakann og þá mælum við að bera 2 dropa af EGF Serum húðdropunum á hreina húð og bera svo Hydrating Cream ofan á. Þessi tvenna virkar einstaklega vel saman og gengur hratt inn í húðina.

Áhrif húðrútínu á raka.

Í vísindalegri innanhússrannsókn, þar sem þátttakendur báru Hydrating Cream á húðina á eftir EGF Serum í fimm daga, skoðuðu vísindamenn BIOEFFECT áhrifin af þessum tveimur vörum og sáu að þær:

  • Juku rakastig húðarinnar um 103% eftir aðeins tvö skipti
  • Rakinn hélt áfram að aukast og eftir 4 skipti hafði rakinn aukist um 141%

Þegar þú vaknar er húðin því stútfull af raka og hreinlega ljómar af heilbrigði!

Lykillinn að þessari virkni.

Lykillinn að þessari virkni eru samlegðaráhrif innihaldsefnanna, þá sérstaklega hvernig EGF vinnur með rakagjöfunum til að hámarka raka húðar, styrkja varnir hennar og hjálpa henni að halda lengur í raka. EGF er afar öflugt prótín í húð okkar. Auk þess að draga úr hrukkum og fínum línum er það einnig mikilvægur þáttur í að viðhalda rakajafnvægi húðarinnar með því að hvetja til framleiðslu á náttúrulegri hýalúrónsýru. Hýalúrónsýra hefur ótrúlega rakagefandi hæfileika og megintilgangur hennar í líkamanum er að bindast vatni. Hún er því frábær rakagjafi fyrir allar húðgerðir.

Hleð inn síðu...