Beint í efni

Blómstraðu með BIOEFFECT í sumar!

Gjöf að eigin vali fylgir þegar verslað er fyrir 10.000 kr. eða meira.

BIOEFFECT sumargjöf 

Sumarið er tíminn til að njóta – hvort sem það eru ferðalög, dýrmætar samverustundir eða útivera í náttúrunni. Til að gera sumarið enn skemmtilegra bjóðum við þér nú að velja eina af þremur sumar­gjöfum þegar þú verslar fyrir 10.000 kr. eða meira.

Varasalvi

BIOEFFECT varasalvinn er fullur af náttúrulegum og nærandi innihaldsefnum. Hann er rakagefandi og hjálpar til við að halda vörunum vel nærðum og mjúkum. Varasalvinn er ríkur af andoxunarefnum og inniheldur koparjónir sem gefa honum mildan grænan lit, og veita vörunum gljáandi, litlausa áferð. Hann kemur í fallegu silfurhylki með segullokun og smellpassar í snyrtiveskið.

Virði: 3.990 kr.

EGF Body Serum (50ml)  

EGF Body Serum inniheldur ríkulegt magn EGF úr byggi. Þetta árangursríka líkamsserum inniheldur aðeins 8 hrein efni sem veita langvarandi raka, auka þéttleika og gera húð líkamans bæði slétta og mjúka. EGF Body Serum gengur hratt og vel inn í húðina, vinnur gegn þurrki og jafnar áferð. Fullkomið eftir sólbaðið!

Virði: 4.500 kr.

LED ferðaspegill

BIOEFFECT spegillinn er nettur og stílhreinn ferðaspegill með hvítum LED ljósum. Spegillinn er með bæði 1x og 2x stækkun og hentar einstaklega vel til að laga förðunina á ferðinni. Hægt er að kveikja og slökkva á ljósunum með einföldum takka. USB hleðslusnúra fylgir.

Virði: 2.990 kr.

Sumarkveðjur frá BIOEFFECT 

Kaupaukinn er fáanlegur á bioeffect.is og í verslunum okkar við Hafnarstræti 19 og Laugaveg 33.

Þú velur gjöf þegar greitt er.

Hleð inn síðu...