Beint í efni

Gjafasettin eru komin.

Einstök EGF gjafasett sem innihalda margverðlaunaðar BIOEFFECT húðvörur framleiddar með plöntulíftækni.

Gefðu gjöf sem virkar.

Í ár innihalda gjafasettin okkar áhrifaríkar húðvörur sem eru framleiddar úr hreinum og virkum innihaldsefnum með byltingarkenndum aðferðum plöntu-líftækni - í fullri stærð eða jafnvel tvöfaldri stærð. Gjafasettin eru vandlega samsett af okkar vinsælustu vörum og eru því tilvalin gjöf fyrir þig og þau sem þér þykir vænt um. Gjafasettin eru á sérstökum kjörum, allt að 25% lægra verð en fullt verð varanna.

Í ár eru gjafasettin myndskreytt af listakonunni Doddu Maggý. Verkin sem prýða öskjurnar eru innblásin af íslenskri náttúru, norðurljósunum og plöntum og trjám í blóma. Lestu nánar um settin hér fyrir neðan.

EGF Serum Double

Einstakt gjafasett sem inniheldur okkar margverðlaunuðu húðdropa í tvöföldu magni. EGF Serum er byltingarkennd vara sem inniheldur aðeins 7 hrein og áhrifarík innihaldsefni sem fyrirbyggja og vinna á ótímabærum öldrunarmerkjum húðarinnar. Okkar einstaka EGF úr byggi er þar í lykilhlutverki og tryggir hámarksárangur. Einstök rakagefandi húðrútína sem hentar öllum húðgerðum.

EGF Classic Duo.

Gjafasettið inniheldur allt sem til þarf í árangursríka og nærandi húðrútínu fyrir andlit og augnsvæði. Gjafasettið inniheldur tvær af okkar allra vinsælustu vörum, EGF Serum og EGF Eye Serum með áfyllingu. Þessar verðlaunavörur hafa sýnileg áhrif á ásýnd húðarinnar með því að vinna á fínum línum og hrukkum og tryggja djúpan og langvarandi raka.

EGF Power Performance.

Veglegt gjafasett sem inniheldur tvær kraftmiklar vörur úr Power vörulínunni okkar sem er sérstaklega hönnuð til að vinna gegn sjáanlegum merkjum öldrunar ásamt því að jafna lit og áferð húðarinnar. Saman mynda EGF Power Serum og EGF Power Cream öfluga tvennu sem nærir, sléttir og þéttir þroskaða húð.

Vörurnar henta öllum húðgerðum og öllum kynjum og eru án ilmefna, alkóhóls, parabena, glútens. Því ættir þú ekki að vera í vanda við að finna sett sem hentar þínum þörfum – eða í jólapakkann fyrir einhvern kærkominn.

Hleð inn síðu...