Beint í efni
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.

Gjafasett í listrænum búningi.

Árlegu jólagjafasettin okkar eru komin! Settin eru á allt að 25% lægra verði en ef vörurnar eru keyptar stakar.

Ljósmyndari: Philippe Servent

Katrin x BIOEFFECT

Gjafasettin eru í ár unnin í samstarfi við íslensku myndlistarkonuna Katrin Fridriks og sameina íslensk vísindi og einstaka abstraktlist. Settin geyma úrval af okkar vinsælustu húðvörum sem innihalda EGF og aðra vaxtarþætti sem vinna gegn sýnilegum öldrunarmerkjum. Gjafasettin henta öllum húðgerðum, hvort sem gjöfin er ætluð þér eða einhverjum sem er þér kær.

Jólagjafasettin.

Hydration Heroes

Hydration Heroes gjafasettið inniheldur tvær af okkar vinsælustu húðvörum, hið margverðlaunaða EGF Serum (15 ml) í fullri stærð og Hydrating Cream (15 ml) í lúxus-prufustærð. Þessi rakagefandi tvenna vinnur á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við fínar línur og hrukkur, nærir húðina, veitir djúpan og langvarandi raka og skilur hana eftir mjúka, slétta og ljómandi.

Virði: 19.887 kr.
15.990 kr.

Firming Favorites

Firming Favorites gjafasettið inniheldur endurnærandi og silkimjúkt EGF Eye Serum í sérstakri 10 ml stærð sem fæst eingöngu í jólagjafasettinu í ár, ásamt tveimur pörum af augnmöskum sem hámarka virkni serumsins. Saman veita vörurnar augnsvæðinu mikinn raka, hjálpa til við að draga úr fínum línum og þétta húðina, auk þess að kæla og róa húðina og draga úr þrota og þreytumerkjum.

Virði: 17.773 kr.
13.990 kr.

Pure Power

Pure Power gjafasettið sameinar þrjár öflugar húðvörur sem sérstaklega eru þróaðar fyrir þroskaða og þurra húð. Þriggja skrefa húðrútínan samanstendur af EGF Power Serum (15 ml) og EGF Power Eye Cream (15 ml) í fullri stærð ásamt EGF Power Cream (15 ml) í lúxus-prufustærð. Saman mynda vörurnar afar öfluga Power húðrútínu sem vinnur gegn helstu öldrunarmerkjum húðarinnar. Rútínan veitir þroskaðri húð djúpan raka og næringu, eykur þéttleika og stuðlar að jafnari áferð og húðlit. Hún hjálpar einnig til við að draga úr litamismun af völdum sólar og UV-geislunar og styrkja ysta varnarlag húðarinnar.

Virði: 44.577 kr.
32.990 kr.