Beint í efni

Hinn fullkomni ferðafélagi fyrir hreina og vel nærða húð: BIOEFFECT Travel Cleansing Set.

Djúp og góð hreinsun, hvert sem ferðinni er heitið.

BIOEFFECT húðhreinsi ferðasett.

Húðhreinsi ferðasettið er kjörið til að taka með í fríið, í sund eða ræktina. Settið inniheldur fjórar BIOEFFECT vörur í ferðastærð, allt sem til þarf í einfalda en áhrifaríka húðhreinsun.

Þessar lúxus ferðastærðir eru fullkomnar þegar þegar ferðast er innanlands eða til útlanda og settið er í fullkominni stærð til að hafa í æfingatöskunni, veskinu og/eða handfarangrinum.

Nærandi BIOEFFECT húðhreinsun. 

Micellar Cleansing Water (30ml): Vættu bómullarskífu með BIOEFFECT Micellar Cleansing Water. Strjúktu mjúklega yfir andlit, háls og augnsvæði þangað til öll óhreinindi hafa verið fjarlægð af húðinni.

Facial Cleanser (20ml): Pumpaðu 2-4 sinnum af hreinsinum í lófann, eða eins miklu og þér finnst þörf á. Gott er að hita hreinsinn með því að nudda lófunum saman í nokkrar sekúndur áður en hann er borinn á andlitið. Berðu hann á þurrt andlitið og nuddaðu mjúklega með fingurgómunum í 30-60 sekúndur. Bleyttu hendurnar með vatni og nuddaðu andlitið, þar til hreinsirinn fær mjólkurkennda áferð. Skolaðu af með vatni.

Volcanic Exfoliator (10ml): Berðu lítið magn af skrúbbinum á hreina og raka húð. Nuddaðu mjúklega og forðastu snertingu við augu. Skolaðu vel. Notist 1-2 í viku eða eftir þörfum.

EGF Essence (15ml): Hellið 2-4 skvettum af EGF Essence í lófann og þrýstu mjúklega inn í húðina á andliti og hálsi. Berðu að lokum á þig serum eða rakakrem til að hámarka áhrif rútínunnar.

Hleð inn síðu...