Beint í efni
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.

EGF Power Cream. Ný og endurbætt formúla.

Inniheldur nú aukið magn af E‑vítamíni og squalane sem vernda húðina gegn umhverfisáhrifum og styðja við varnarlag hennar.

Kraftmikið andlitskrem.

Við kynnum nýja og endurbætta útgáfu af EGF Power Cream. EGF Power Cream er afurð áralangrar rannsókna- og þróunarvinnu og byggir á sérþekkingu okkar á EGF-vaxtarþáttum, sem framleiddir eru í byggi með aðferðum háþróaðrar plöntulíftækni. Þetta byltingarkennda og kraftmikla andlitskrem er sérstaklega þróað fyrir þroskaða húð sem farin er að sýna sýnileg merki öldrunar. EGF Power Cream veitir djúpan raka, hjálpar til við að draga úr fínum línum og hrukkum, jafnar áferð og húðlit og stuðlar að auknum þéttleika húðarinnar.

Áhrifarík formúla, nú endurbætt. 

Ný og uppfærð útgáfa af EGF Power Cream byggir áfram á sama trausta grunni. Í hjarta formúlunnar er enn okkar einstaka BIOEFFECT EGF – endurnærandi og rakabindandi vaxtarþáttur sem gegnir lykilhlutverki í framleiðslu kollagens, elastíns og hýalúrónsýru og hjálpar þannig til við að viðhalda þéttri og heilbrigðri húð. Samhliða EGF inniheldur formúlan áfram betaglúkan sem róar og nærir húðina, níasínamíð sem hjálpar til við að jafna húðlit, og órídónín sem þekkt er fyrir græðandi eiginleika. Nýja og endurbætta formúlan byggir á þessum sömu lykilinnihaldsefnum, en inniheldur nú aukið magn af E-vítamíni og squalane. Þessi öfluga viðbót hjálpar til við að jafna áferð og húðlit, vernda húðina fyrir umhverfisáhrifum, styðja við ysta varnarlag húðarinnar og viðhalda heilbrigðu rakajafnvægi fyrir mýkri og sterkari húð.

Vísindin á bakvið árangurinn.  

Þetta kraftmikla andlitskrem styður við endurnýjun húðarinnar, veitir henni aukna vörn og skilar bæði skjótum og varanlegum árangri til lengri tíma, þar sem samspil háþróaðra vísinda og plöntulíftækni vinnur á mörgum stigum húðarinnar til að bæta áferð, jafna húðlit og auka náttúrulegan ljóma hennar.

  • BIOEFFECT EGF (Epidermal Growth Factor):
    Rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur og öflugt lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðinnar. EGF örvar náttúrulega kollagenframleiðslu auk þess að þétta og slétta húðina.
  • Betaglúkan:
    Betaglúkan róar og nærir húðina og styrkir varnir hennar. Það viðheldur raka, vinnur gegn hrukkumyndun og verndar húðina fyrir skaðlegum geislum.
  • E-vítamín:
    Verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum og skaðlegum áhrifum sindurefna auk þess að jafna áferð og húðlit.
  • Squalane:
    Létt rakagefandi efni sem líkir eftir náttúrulegum olíum húðarinnar og, ásamt E‑vítamíni, dregur úr rakatapi og viðheldur mjúkri og heilbrigðri húð.
  • Níasínamíð:
    Fjölþætt innihaldsefni sem hjálpar til við að draga úr ásýnd húðhola, jafna húðlit og auka ljóma húðarinnar.
  • Órídónín:
    Innihaldsefni unnið úr jurtaþykkni sem róar húðina, dregur úr roða og styður við heilbrigði hennar.

Sýnilegur og mælanlegur árangur. 

Grunnur hinnar endurbættu formúlu er samspil virkra innihaldsefna sem rannsóknir hafa sýnt að hafi raunveruleg og sýnileg áhrif á húðina. Sá árangur endurspeglast í ásýnd hennar eftir aðeins einn mánuð af notkun – húðin verður bjartari, sléttari og geislar af heilbrigðum ljóma.

Samkvæmt sjálfstæðri innanhússrannsókn þar sem árangur var mældur með VISIA Skin Analysis kerfinu og 34 þátttakendur notuðu nýja EGF Power Cream tvisvar á dag í 30 daga mátti sjá:

Allt að 67%
aukningu á þéttleika húðar

Allt að 62%
aukningu á teygjanleika húðar

EGF Power Cream hentar öllum húðgerðum, en er sérstaklega hentugt fyrir þurra og þroskaða húð. Andlitskremið vinnur gegn sýnilegum breytingum sem verða á húðinni með aldrinum, svo sem hrukkum og fínum línum, um leið og það dregur úr ásýnd húðhola, jafnar áferð og húðlit og eykur þéttleika húðarinnar. Með reglulegri notkun tvisvar á dag má búast við:

  • Minni sýnileika fínna lína og hrukka
  • Auknum þéttleika húðarinnar, og húðin virðist stinnari
  • Jafnari húðlit og minni sýnileika húðhola
  • Dýpri og langvarandi raka
  • Sterkara varnarlagi húðarinnar
  • Heilbrigðum og fallegum ljóma

Endurbætt formúla í nýrri umgjörð. 

Með uppfærðri formúlu kemur EGF Power Cream nú einnig í nýrri og fágaðri glerkrukku sem er að hluta endurvinnanleg. Umbúðirnar endurspegla skuldbindingu okkar til að þróa umhverfisvænni lausnir. Mjúka og nærandi áferðin, sem margir þekkja og elska, helst þó óbreytt.