Beint í efni
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.

EGF Power Cream

Við kynnum nýja og endurbætta útgáfu af EGF Power Cream. Þetta byltingarkennda og kraftmikla andlitskrem er sérstaklega þróað fyrir þroskaða húð sem þegar er farin að sjá sýnileg merki öldrunar. EGF Power Cream veitir djúpvirkan raka, hjálpar til við að vinna á hrukkum og fínum línum, jafnar áferð og húðlit og eykur þéttleika húðarinnar. Auk BIOEFFECT EGF inniheldur kremið úrval virkra og sérvalinna innihaldsefna. Nýja formúlan inniheldur auk þess líkt og áður órídónín og níasínamíð og nú tvöfalt magn af E-vítamíni sem hjálpar til við að jafna áferð og húðlit, ásamt auknu magni af squalane sem viðheldur heilbrigðu rakajafnvægi og styður við ysta varnarlag húðarinnar.

50ml
Verð21.990 kr.

Eiginleikar og áhrif

Einstök efnaformúla sem veitir aukið afl í baráttunni gegn sjáanlegum öldrunarmerkjum.

Nýja, uppfærða útgáfan af EGF Power Cream byggir á sama grunni og áður, en með endurbættri formúlu. Þetta kraftmikla andlitskrem vinnur gegn þeim sjáanlegu breytingum sem verða á húðinni með aldrinum, svo sem hrukkum og fínum línum. Á sama tíma hjálpar þessi áhrifaríka formúla til við að minnka ásýnd svitahola, jafna áferð og húðlit, þétta og slétta húðina og auka bæði raka og ljóma.

EGF Power Cream er afurð áralangrar rannsókna- og þróunarvinnu. Niðurstaðan er einstök efnaformúla þar sem BIOEFFECT EGF, endurnærandi og rakabindandi vaxtarþáttur framleiddur í byggi með aðferðum plöntulíftækni, gegnir lykilhlutverki. Auk þess inniheldur formúlan áhrifarík innihaldsefni á borð við betaglúkan, níasínamíð og órídónín, sem hefur fjölþætt jákvæð áhrif á húðina. Formúlan hefur nú verið endurbætt og inniheldur, líkt og áður, þessi lykilinnihaldsefni, en nú tvöfalt magn af E-vítamíni, öflugu andoxunarefni sem verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum og skaðlegum áhrifum sindurefna, á sama tíma og það hjálpar til við að jafna áferð og húðlit. Jafnframt er að finna aukið magn af squalane, léttu og rakagefandi innihaldsefni sem hjálpar til við að viðhalda raka í húðinni og skilur hana eftir mjúka og slétta.

  • Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
  • Eykur þéttleika og húðin virðist stinnari
  • Sléttir og þéttir húðina
  • Jafnar áferð og húðlit
  • Dregur úr litabreytingum
  • Dregur úr ásýnd húðhola
  • Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega eldri og þurri húð
  • Án ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum

Stærð: 50 ml.

Lykilinnihaldsefni

Lykilinnihaldsefni

BIOEFFECT EGF: Rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur og öflugt lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðinnar. EGF örvar náttúrulega kollagenframleiðslu auk þess að þétta og slétta húðina.

Betaglúkan úr byggi: Betaglúkan róar og nærir húðina og styrkir varnir hennar. Það viðheldur raka, vinnur gegn hrukkumyndun og verndar húðina fyrir skaðlegum geislum. Rannsóknir hafa auk þess sýnt að betaglúkan sem framleitt er úr byggi getur myndað allt að þrisvar sinnum öflugri andoxunarvörn en betaglúkan sem framleitt er úr höfrum.

Órídónín: Nýtt og árangursríkt efni í húðvöruframleiðslu. Órídónín er unnið úr jurtaþykkni og er þekkt fyrir græðandi eiginleika. Það vinnur auk þess gegn skaðlegum áhrifum sindurefna sem eru talin stuðla að sýnilegum merkjum öldrunar. Líkt og EGF úr byggi getur órídónín tengst húðfrumum og sent þeim skilaboð. Í sameiningu vinna þessi öflugu efni gegn fínum línum og slappri húð.

Níasínamíð: Einnig þekkt sem B3-vítamín. Bætir áferð, jafnar húðlit og eykur ljóma auk þess að lágmarka ásýnd fínna lína.

E-vítamín: Eitt þekktasta og áhrifamesta andoxunarefnið fyrir bæði líkama og húð. Það fyrirfinnst náttúrulega í húðinni en dregið getur úr magni þess vegna þeirra umhverfisáhrifa sem húðin verður fyrir (t.d. þegar sólarvörn er ekki notuð). E-vítamín verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum og skaðlegum áhrifum sindurefna auk þess að jafna áferð og húðlit.

Hýalúronsýra: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.

Squalane: Einstakur rakagjafi sem finnst náttúrulega í húðinni. Gengur hratt og vel inn í húðina og skilur hana eftir mjúka, slétta og í góðu jafnvægi.

Shea Butter: Endurnærandi innihaldsefni sem hjálpar til við að viðhalda raka, styður við ysta varnarlag húðarinnar og veitir djúpa næringu og mýkt.

Innihaldsefni:

AQUA/EAU/WATER, BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, BUTYLENE GLYCOL, SQUALANE, CETYL ALCOHOL, CETEARYL ALCOHOL, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, SORBITOL, SORBITAN OLEATE, TOCOPHEROL, NIACINAMIDE, BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1 (EGF), BETA-GLUCAN, ORIDONIN, HORDEUM VULGARE (BARLEY) SEED EXTRACT, SODIUM HYALURONATE, PHENOXYETHANOL, ETHYLHEXYLGLYCERIN, POLYSORBATE 20, CARBOMER, XANTHAN GUM, POTASSIUM HYDROXIDE

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Staðfestur árangur

Samkvæmt sjálfstæðri innanhússrannsókn þar sem árangur var mældur með VISIA Skin Analysis kerfinu og þátttakendur notuðu EGF Power Cream tvisvar á dag í einn mánuð.

  • Allt að 62% aukning á þéttleika húðar 
  • Allt að 67%aukning á teygjanleika húðar 
FyrirEftir 30 daga

Upplýsingar

Upplýsingablað á PDF formi

BIOEFFECT® EGF POWER CREAM

BIOEFFECT® EGF POWER CREAM er afar nærandi og öflugt andlitskrem sem dregur úr sýnilegum einkennum öldrunar. Inniheldur einstaka efnaformúlu, þar sem BIOEFFECT EGF gegnir lykilhlutverki. Í sameiningu vinna þessi virku innihaldsefni að því að draga úr hrukkum og fínum línum, auka þéttleika og teygjanleika húðarinnar og bæta áferð hennar.

  • Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
  • Eykur þéttleika og teygjanleika húðar
  • Veitir raka og næringu
  • Jafnar áferð og dregur úr litabreytingum
  • Dregur úr ásýnd húðhola

Notkunarleiðbeiningar
Berið á andlit, háls og bringu kvölds og morgna. Nuddið mjúklega með hringlaga hreyfingum.

BIOEFFECT EGF POWER CREAM hentar öllum húðgerðum og er án ilmefna. Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast leitaðu upplýsinga hjá lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF Power Cream.

Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

Berðu á andlit, háls og bringu bæði kvölds og morgna. Nuddaðu mjúklega inn í húðina með hringhreyfingum. Bíddu í 3–5 mínútur áður en aðrar vörur, á borð við sólarvörn eða farða, eru bornar á húðina. Kremið má nota eitt og sér eða samhliða öðrum BIOEFFECT vörum.

Passar vel með