Harpa Kára er reyndur og virtur förðunarfræðingur og þykir ein sú færasta á sínu sviði hér á landi. Hún er eigandi Makeup Studio Hörpu Kára, sem hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár, en þaðan hafa fjölmargir hæfileikaríkir nemendur útskrifast og byggt upp farsælan feril í faginu. Í starfi sínu leggur hún mikla áherslu á vandaða húðumhirðu sem grunn að fallegri förðun. Hér deilir hún því hvernig nota megi Icelandic Water Mist á ýmsa vegu.
Icelandic Water Mist, ómissandi í húðrútínu Hörpu Kára.
Icelandic Water Mist hefur fest sig í sessi sem fastur liður í húðrútínu förðunarfræðingsins Hörpu Káru, bæði í daglegri húðumhirðu og í förðun.

Hvað finnst þér skipta mestu máli í undirbúningi fyrir fallega förðun?
Það sem mér finnst skipta mestu máli í undirbúningi fyrir förðun er góð húðumhirða og að velja vörur sem henta hverri húðgerð. Ég kýs að byrja á alveg hreinni húð, veita létt andlitsnudd til að draga úr bólgum og þrota og gefa húðinni góðan raka áður en ég færi mig yfir í förðunarvörur. Góður undirbúningur húðar spilar lykilhlutverk í allri förðun.
Ég elska að nota Facial Cleanser ásamt Gua sha steini úr stáli sem fyrsta skref í undirbúningsvinnu. Hreinsirinn er mildur, hentar öllum húðgerðum og er fullkominn til að nota í andlitsnudd. Að nuddi loknu þurrka ég hann af með volgum þvottapoka og fylgi svo eftir með Imprinting Hydrogel andlitsmaskanum sem róar og kælir húðina eftir nuddið. Að mínu mati er þetta hin fullkomna lúxus-tvenna þegar við viljum láta húðina njóta sín sem best og skapa fallegan grunn fyrir förðun.
„Mér finnst Icelandic Water Mist veita húðinni fallegan, fágaðan ljóma sem auðvelt er að byggja upp eftir þörfum og yfir daginn getur munað heilmiklu að spreyja létt yfir húðina til að hressa hana og gefa henni frísklegra yfirbragð."
Hvernig er andlitsmist notað fyrir og eftir förðun?
Andlitsmist er ómissandi að mínu mati. Ég kýs andlitsmist sem veita húðinni góðan raka og innihalda húðbætandi efni. Þess vegna er ég líklega einn mesti peppari nýju vörunnar ykkar, Icelandic Water Mist, því hún gerir allt sem ég leita eftir í góðu andlitsmisti. Það frískar upp á húðina, róar og kælir hana og veitir fallegan, mildan ljóma sem lætur húðina skína af heilbrigði. Ég nota yfirleitt andlitsmist milli skrefa í förðun og enda svo alltaf á að spreyja yfir andlitið í lokin til að hjálpa vörunum, þá sérstaklega púðurvörum, að bráðna betur inn í húðina.
Hvernig notar þú Icelandic Water Mist í starfi þínu sem förðunarfræðingur?
Ég hef notað mistið í margt annað en bara á andlitið í starfi mínu sem förðunarfræðingur. Það hefur fylgt mér á hverjum degi á setti síðan ég fékk að prófa það. Mistið hentar vel á þurra enda í hári, á bringu, hendur og leggi. Þegar lítill sem enginn tími er til að bæta á fleiri vörum, og þar hefur það algjörlega staðið sína plikt.
Er þetta vara sem allir ættu að hafa í veskinu eða á skrifborðinu?
Þetta er vara sem allir ættu að eiga, og þeir sem starfa við förðun ættu klárlega að fjárfesta í henni. Ég er með eitt mist inni á baði, annað í Mary Poppins töskunni minni, eitt á skrifborðinu og tvö í kittinu mínu, því ég veit aldrei í hvaða verkefni ég klára næstu flösku.
Fyrir hverja er varan?
Icelandic Water Mist hentar öllum húðgerðum og öllum kynjum og er í raun vara sem allir ættu að eiga. Hún er einstaklega auðveld í notkun og því frábær vara fyrir þau sem nota lítið sem engar snyrtivörur. Varan er einnig tilvalin fyrir karlmenn. Margir þeirra eru latir við að nota húðvörur, svo þetta er einföld og þægileg leið til að hugsa vel um húðina.