




Icelandic Water Mist
Rakagefandi og frískandi andlitssprey sem veitir húðinni skjótan raka og endurnærandi ljóma. Icelandic Water Mist róar húðina, bætir ásýnd hennar og dregur úr þreytumerkjum. Formúlan inniheldur íslenskt vatn sem er einstaklega milt fyrir húðina og lykilþáttur í gæðum vörunnar. Andlitsspreyið er fullkominn rakagjafi yfir daginn og má nota eins oft og þörf er á. Það leggst fallega yfir farða og veitir húðinni heilbrigða og ljómandi ásýnd.
Eiginleikar og áhrif
Létt og frískandi andlitssprey sem veitir húðinni skjótan raka.
Icelandic Water Mist gefur húðinni raka, endurnærðan ljóma og ferskari ásýnd. Formúlan nýtir blöndu rakagefandi innihaldsefna, þar á meðal íslensks vatns og inositol, sem hjálpar til við að draga úr sýnilegum þreytumerkjum, bæta áferð og skilja húðina eftir endurnærða, mjúka og ljómandi.
Íslenska vatnið gegnir lykilhlutverki í gæðum BIOEFFECT vara. Það kemur úr náttúrulegum uppsprettum á Íslandi sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki, sem gerir vatnið síður líklegt til að þurrka eða erta húðina. Því hentar það einstaklega vel í framleiðslu húðvara og stuðlar að einstökum gæðum Icelandic Water Mist.
2–3 sprey nægja til að lífga upp á húðina og hjálpa til við að viðhalda heilbrigðu rakajafnvægi. Spreyið hentar afar vel til reglulegrar notkunar yfir daginn, sérstaklega fyrir þau sem eru mikið á ferðinni eða sem viðbótarskref í húðmeðferð.
- Veitir skjótan raka
- Dregur úr sýnilegum þreytumerkjum
- Bætir áferð húðarinnar
- Endurnærir, kælir og róar húðina
- Inniheldur hreint og mjúkt íslenskt vatn
- Aðeins 11 hrein innihaldsefni
- Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
- Hentar öllum húðgerðum
- Prófað af húðlæknum
Size: 70 ml. / 2.37 fl.oz.
Lykilinnihaldsefni
Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið er magn ertandi steinefna á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki, sem gerir það síður líklegt til að þurrka eða erta húðina. Því hentar íslenska vatnið einstaklega vel í framleiðslu húðvara.
Glýserín: Kraftmikill rakagjafi unninn úr plöntuafurðum. Dregur til sín raka og hjálpar til við að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.
Xylitol: Veitir djúpan raka, styrkir varnarhjúp húðarinnar og hjálpar til við að viðhalda heilbrigðu jafnvægi hennar fyrir mýkri og heilbrigðari ásýnd.
Inositol: Örvar starfsemi húðfrumna, dregur úr sýnilegum þreytumerkjum og styður heilbrigt rakajafnvægi sem stuðlar að ferskari og heilbrigðari ásýnd.
Magnesium Gluconate: Steinefni sem veitir raka, bætir áferð húðarinnar og styður heilbrigða olíuframleiðslu. Dregur úr sýnilegum þurrki og grófu yfirborði, sléttir og mýkir húðina og stuðlar þannig að heilbrigðari ásýnd og langvarandi þægindum.
Hýalúronsýra: Innihaldsefni sem finnst náttúrulega í húðinni og gegnir mikilvægu hlutverki við að draga að sér og binda raka. Hjálpar til við að fylla húðina, jafna áferð hennar og stuðla að sléttari og heilbrigðari ásýnd.
Innihaldsefnalisti
Water (Aqua), Glycerin, Xylitol, Inositol, Butylene Glycol, Propylene Glycol, Tri-sodium Citrate, Phenoxyethanol, Magnesium Gluconate, Sodium Hyaluronate, Citric Acid.
Upplýsingar
BIOEFFECT® Icelandic Water Mist
BIOEFFECT® Icelandic Water Mist er létt of endurnærandi andlitssprey sem veitir djúpan raka og hjálpar til við að jafna áferð húðarinnar. Formúlan inniheldur aðeins 11 hrein innihaldsefni, þar á meðal íslenskt vatn og inositol, sem gefur húðinni orku og hjálpar til við að draga úr sýnilegum þreytumerkjum.
Icelandic Water Mist stuðlar að aukinni rakabindingu og bætir ásýnd húðarinnar. Létt og endurnærandi andlitssprey sem hentar afar vel til að fríska upp á húðina reglulega yfir daginn, sérstaklega fyrir þau sem eru mikið á ferðinni og sem viðbótarskref í húðmeðferð.
- Endurnærir húðina, eykur rakabindingu og hjálpar til við að draga úr sýnilegum þreytumerkjum
- Notist eins oft og þörf er á til að næra og fríska upp á húðina
- Má nota undir og yfir farða
- Hentar öllum húðgerðum
- Án olíu, ilmefna og alkóhóls
- Prófað af húðlæknum
Notkunarleiðbeiningar: Lokið augum og úðið 2–3 sinnum yfir andlit og háls. Leyfið húðinni að draga vökvann í sig og þerrið varlega með hreinni þurrku ef þörf er á. Má nota undir og yfir farða og reglulega yfir daginn.
BIOEFFECT Icelandic Water Mist hentar öllum húðgerðum og er án olíu, alkóhóls og ilmefna. Fyrir þau sem eru með mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast leitaðu upplýsinga hjá lækni áður en þú notar BIOEFFECT Icelandic Water Mist.
Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.
Hreinar húðvörur
Húðrannsókn
- 88% þátttakenda fannst húðin rakameiri strax eftir notkun vörunnar.
- 84% þátttakenda fannst húðin verða frísklegri eftir notkun vörunnar.
- 64% þátttakenda upplifði meiri ljóma í húðinni eftir noktun vörunnar.
- 89% þátttkenda fannst varan ganga hratt og vel inn í húðina.
Samkvæmt innanhúsrannsókn meðal 57 þátttakenda.
Notkun
Lokaðu augunum og spreyjaðu 2–3 sinnum yfir andlit og háls. Leyfðu húðinni að drekka rakann í sig. Hentar vel bæði undir og yfir farða og má nota eins oft og þörf krefur yfir daginn.