Beint í efni
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.

Hraðari bati. Heilbrigðari húð.

3xGF Recovery vörulínan er sérhönnuð til notkunar eftir húðmeðferðir og lýtaaðgerðir. Vörurnar stuðla að hraðari bata húðarinnar, draga úr roða, sefa og kæla húðina, ásamt því að vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum.

3xGF Recovery. 

Töluverð óþægindi geta fylgt húðmeðferðum og lýtaaðgerðum. 3xGF Recovery vörulínan er því sérstaklega þróuð til að flýta fyrir bata húðarinnar í kjölfar slíkra meðferða. Serumin tvö innihalda þrjá vaxtarþætti (EGF, KGF og IL-1α) sem örva endurnýjun húðarinnar og styðja við náttúrulega framleiðslu kollagens og elastíns. Vörurnar innihalda einnig sérvalin, virk innihaldsefni sem veita raka, sefa erta húð og hjálpa til við að draga úr roða.

Recovery vörulínan.  

3xGF Recovery Serum

3xGF Recovery Serum er sérþróað til notkunar í kjölfar húðmeðferða og lýtaaðgerða sem raska ysta varnarlagi húðarinnar. Serumið styður við náttúrulegt bataferli hennar og hjálpar til við að stytta batatímann, lina bólgur og draga úr ertingu og sýnilegum roða. Jafnframt vinnur það á helstu öldrunarmerkjum húðarinnar og hjálpar til við að viðhalda árangri húðmeðferða.

31.990 kr.

3xGF Recovery Eye Serum

3xGF Recovery Eye Serum er sérþróað til að styðja við og stytta náttúrulegt bataferli húðarinnar á augnsvæðinu í kjölfar húðmeðferða og lýtaaðgerða. Serumið hjálpar til við að lina bólgur, draga úr roða og ertingu og róa húðina í kringum augun. Jafnframt vinnur það á áhrifaríkan hátt á öldrunarmerkjum, dregur úr ásýnd bauga og þrota og hjálpar til við að viðhalda árangri húðmeðferða á augnsvæðinu.

14.990 kr.

Recovery Hydrogel Mask

Nýi Recovery Hydrogel andlitsmaskinn er tvískiptur gelmaski, klínískt þróaður til notkunar eftir húðmeðferðir og lýtaaðgerðir. Maskinn kælir og róar húðina, hjálpar til við að draga úr roða og ertingu, veitir djúpan raka og styður við ysta varnarlag húðarinnar.

Sérhannaður til að hámarka virkni 3xGF Recovery Serum.

12.900 kr.

3xGF Recovery Frequently Asked Questions.