




Recovery Hydrogel Mask
Recovery Hydrogel Mask er tveggja laga gelmaski, klínískt þróaður til notkunar eftir húðmeðferðir og lýtaaðgerðir og til að hámarka virkni 3xGF Recovery Serum. Andlitsmaskinn veitir húðinni einstaklega kælandi og róandi áhrif og hjálpar til við að draga úr roða og ertingu. Maskinn inniheldur sérvalin, virk innihaldsefni, meðal annars Centella Asiatica Extract, sem er þekkt fyrir róandi, bólgueyðandi og rakagefandi eiginleika sína. Einnig veitir Recovery Hydrogel andlitsmaskinn djúpan raka, styður við ysta varnarlag húðarinnar og er jafnframt nægilega mildur til reglulegrar notkunar.
Eiginleikar og ávinningur
Klínískt þróaður gelmaski sem styður við endurheimt húðarinnar eftir meðferðir.
Recovery Hydrogel Mask er klínískt þróaður til notkunar eftir húðmeðferðir og lýtaaðgerðir, svo sem lasermeðferðir, sýrumeðferðir, örnálameðferðir, eða sprautumeðferðir, til að róa og sefa viðkvæma húð. Tveggja laga gelmaskinn veitir húðinni kælandi áhrif, hjálpar til við að draga úr roða og veitir henni djúpan og góðan raka.
Maskinn inniheldur meðal annars centella asiatica, sem er þekkt fyrir róandi, bólgueyðandi og rakagefandi eiginleika sína, ásamt kollagen ekstrakt og öðrum virkum innihaldsefnum á borð við níasínamíð, panthenól og aloe vera. Saman hjálpa þau til við að róa ertingu og draga úr sýnilegum roða, um leið og þau styðja við náttúrulegt varnarlag húðarinnar á meðan hún jafnar sig eftir meðferð. Andlitsmaskinn er vatnsleysanlegur og því að fullu niðurbrjótanlegur.
- Klínískt þróaður til að styðja við endurheimt húðar eftir meðferðir
- Róar og kælir húðina
- Hjálpar til við að draga úr sýnilegum roða og ertingu
- Veitir raka og dregur úr óþægindum viðkvæmrar húðar
- Styður við ysta varnarlag húðarinnar
- Hámarkar virkni 3xGF Recovery Serum
- Vatnsleysanlegur og niðurbrjótanlegur
- Hentar öllum húðgerðum, sér í lagi viðkvæmri húð
- Án olíu, ilmefna, parabena og glútens
- Prófað af húðlæknum
Stærð: 1: 38 g / 1.34 fl.oz. 6: 6x38 g / 8.04 fl.oz
Lykilinnihaldsefni
Centella Asiatica Extract: Plöntuþykkni sem er þekkt fyrir róandi eiginleika sína. Vinnur gegn roða, bólgum og styður við náttúrulega endurnýjun húðarinnar.
Panthenol (B5-vítamín): Eykur rakastig húðarinnar með því að draga vatn að yfirborði húðþekjunnar. Þetta fjölhæfa innihaldsefni styrkir ysta varnarlag húðarinnar, auk þess að róa hana og draga úr bólgum.
Níasínamíð (B3-vítamín): Bætir áferð, jafnar húðlit og eykur ljóma auk þess að lágmarka ásýnd fínna lína.
Aloe Vera: Róandi og rakagefandi innihaldsefni sem hjálpar til við að draga úr ertingu og roða, mýkja húðina, styðja við náttúrulega endurnýjun og langvarandi raka.
Kollagen ekstrakt: Hjálpar til við að viðhalda rakajafnvægi húðarinnar og stuðlar að sléttari, mýkri og teygjanlegri húð.
Innihaldsefnalisti:
AQUA/EUA/WATER, Glycerin, Dipropylene Glycol, Methylpropanediol, Caprylic/Capric Triglyceride, Panthenol, 1,2-Hexanediol, Niacinamide, Ceratonia Siliqua (Carob) Gum, Chondrus Crispus Powder, Chondrus Crispus, Cellulose Gum, Butyrospermum Parkii (Shea) Butter, Potassium Chloride, Jojoba Esters, Glyceryl Stearates, Cetyl Alcohol, Stearyl Alcohol, Glyceryl Stearate, Algin, Sucrose, Ethylhexylglycerin, Sodium Stearoyl Glutamate, Helianthus Annuus (Sunflower) Seed Wax, Adenosine, Xanthan Gum, Maltodextrin, Polyglycerin-3, Butylene Glycol, Aloe Barbadensis Leaf Extract, Laminaria Japonica Extract, Ulmus Davidiana Root Extract, Centella Asiatica Extract, Viola Mandshurica Flower Extract, Dioscorea Japonica Root Extract, Tocopherol, Collagen Extract, Disodium EDTA
Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.
Upplýsingar
BIOEFFECT® Recovery Hydrogel Mask
BIOEFFECT® RECOVERY HYDROGEL MASK veitir húðinni kælandi og róandi áhrif og hjálpar til við að draga úr roða og ertingu í húð. Maskinn inniheldur meðal annars Centella Asiatica, innihaldsefni sem er þekkt fyrir róandi, bólgueyðandi og rakagefandi eiginleika sína. Auk þess inniheldur hann kollagen og önnur virk innihaldsefni sem hjálpa til við að byggja upp ysta varnarlag húðarinnar.
Maskinn er klínískt þróaður til notkunar eftir húðmeðferðir og lýtaaðgerðir og til að auka virkni BIOEFFECT 3xGF Recovery Serum, en er jafnframt nægilega mildur til reglulegrar notkunar.
- Róar og kælir húðina
- Veitir raka og dregur úr óþægindum viðkvæmrar húðar
- Klínískt þróaður til að styðja við endurheimt húðar eftir meðferðir
- Eykur virkni BIOEFFECT 3xGF Recovery Serum
Notkunarleiðbeiningar
Berðu BIOEFFECT 3xGF Recovery Serum á húðina. Opnaðu maskann, fjarlægðu hvítu filmuna og leggðu maskann á andlitið. Láttu hann liggja á húðinni í 30–60 mínútur. Fjarlægðu síðan maskann og nuddaðu því serumi sem eftir situr varlega inn í húðina.
BIOEFFECT RECOVERY HYDROGEL MASK hentar öllum húðgerðum og er án ilmefna. Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast leitaðu upplýsinga hjá lækni áður en þú notar Recovery Hydrogel Mask.
Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.
Hreinar húðvörur
Notkun
Berðu BIOEFFECT 3xGF Recovery Serum á húðina. Opnaðu maskann, fjarlægðu hvítu filmuna og leggðu maskann á andlitið. Láttu hann liggja á húðinni í 30–60 mínútur. Fjarlægðu síðan maskann og nuddaðu því serumi sem eftir situr varlega inn í húðina.



