Beint í efni
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.

Allure verðlaun.

Imprinting Hydrogel Mask hefur hlotið Best of Beauty verðlaun Allure árið 2026 í flokknum Best Skin Splurges.

Imprinting Hydrogel Mask.

Þessi tvískipti gelmaski inniheldur hýalúronsýru og glýserín sem veita húðinni djúpan raka og næringu. Maskinn er sérstaklega hannaður til að hámarka virkni BIOEFFECT seruma.

Það þarf ekki meira en 20 mínútur með þessum tvískipta gelmaska til að fríska upp á húðina, hvort sem er eftir svefnlitla nótt eða til að undirbúa hana fyrir sérstök tilefni.

Maskinn slær í gegn.

Allure er eitt virtasta og áhrifamesta tímarit heims á sviði fegurðar og snyrtivara. Best of Beauty-verðlaunin eru meðal eftirsóttustu viðurkenninga á alþjóðlegum snyrtivörumarkaði og hafa í þrjá áratugi verið veitt vörum sem skara fram úr hvað varðar gæði, virkni og upplifun. Rauða verðlaunamerkið er orðið að alþjóðlegu gæðatákni sem neytendur þekkja og treysta.

Í umsögn Allure fær maskinn mikið lof fyrir kælandi og róandi áhrif og hversu vel hann helst á sínum stað. Sérstaklega er tekið fram hversu fallegan ljóma hann skilur eftir á húðinni. Notkuninni er lýst sem einstakri dekurupplifun og mælt með maskanum til að fríska upp á húðina fyrir mikilvæga daga og sérstök tilefni.

BIOEFFECT Imprinting Hydrogel Mask býður upp á einstaka dekurupplifun frá upphafi til enda. Gelmaskinn er svo kælandi og róandi að það er freistandi að hafa hann á sér allan daginn..

Maskarnir okkar.