Beint í efni

Imprinting Hydrogel Mask

Andlitsmaski sem róar húðina og veitir mikinn og djúpvirkan raka. Sérhannaður til að hámarka virkni BIOEFFECT seruma.
9.950 kr.

Eiginleikar og áhrif

Djúpverkandi og rakagefandi andlitsmaski sem hámarkar virkni EGF

Auktu enn frekar á virkni EGF prótínsins í BIOEFFECT vörum með þessum tvískipta andlitsmaska. Gelmaskinn inniheldur hýalúronsýru og glýserín sem veita djúpan raka og efla hæfni húðarinnar til að viðhalda raka. Imprinting Hydrogel Mask er andlitsmaski í algjörum sérflokki — hann inniheldur aðeins 16 náttúruleg efni sem voru sérvalin í því skyni að hámarka virkni BIOEFFECT serumanna. Öll efnin eru vatnsleysanleg og fyrir vikið eru maskinn að fullu niðurbrjótanlegur. Öflugur rakagjafi sem mýkir, sléttir og þéttir húðina.

EGF er prótín sem hefur mesta virkni í röku umhverfi. Þeim mun lengur sem yfirborð húðarinnar helst rakt, því meiri verða áhrifin. Þegar Imprinting Hydrogel andlitsmaskinn er notaður með BIOEFFECT vörum skapast kjöraðstæður fyrir EGF sem hámarkar áhrif BIOEFFECT seruma. Þessi einstaki andlitsmaski er frábær viðbót við reglubundna húðumhirðu.

  • Djúpverkandi og endurnærandi rakagjafi
  • Örvar varðveislu raka í húðinni
  • Hámarkar virkni EGF seruma
  • Kælandi og róandi gelmaski
  • Tveggja laga andlitsmaski sem er einfaldur í notkun
  • Vatnsleysanlegur og niðurbrjótanlegur
  • Hentar öllum húðgerðum
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum

Stærð: 1: 25 g / 0.88 fl.oz. 6: 6x30 g / 6.35 fl.oz

Lykilinnihaldsefni

Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

Glýserín — Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.

Innihaldsefnalisti

WATER (AQUA), GLYCERIN, DIPROPYLENE GLYCOL, 1,2-HEXANEDIOL, CERATONIA SILIQUA (CAROB) GUM, CHONDRUS CRISPUS POWDER, CHONDRUS CRISPUS EXTRACT, SODIUM HYALURONATE, CELLULOSE GUM, SODIUM POLYACRYLATE, PHENOXYETHANOL, SUCROSE, HYDROGENATED POLYDECENE, POTASSIUM CHLORIDE, TRIDECETH-6, DISODIUM EDTA

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Fullkomnaðu húðumhirðuna

Til að tryggja hámarksárangur mælum við með að varan sé notuð reglulega ásamt öðrum BIOEFFECT vörum.

Passar vel með:

  • EGF Serum: Saman tryggja vörurnar alhliða andlitsmeðferð. Hinir margverðlaunuðu EGF Serum húðdropar innihalda aðeins 7 hrein efni.
  • EGF Day Serum: Létt, olíulaust og endurnærandi andlitsserum með geláferð sem dregur úr sjáanlegum öldrunarmerkjum

Upplýsingar

BIOEFFECT® IMPRINTING HYDROGEL MASK

BIOEFFECT® Imprinting Hydrogel Mask veitir húðinni mikinn raka. Maskinn er sérstaklega hannaður til að hámarka áhrif EGF í BIOEFFECT serumum og inniheldur aðeins efni sem trufla ekki virkni frumuvaka.

• Eykur raka og frískar upp á húðina

• Hámarkar virkni BIOEFFECT seruma

• Eykur áhrif EGF

• Án alkóhóls, olíu og ilmefna

Notkunarleiðbeiningar: Berið BIOEFFECT serum að eigin vali á húðina. Opnið maskann varlega, fjarlægið gagnsæju filmuna og leggið maskann á andlitið, með gelhliðina að húðinni. Við mælum með að setja neðri hluta maskans fyrst á andlitið. Fjarlægið hvítu filmuna. Leyfið maskanum að vera á andlitinu í 15 mínútur. Fjarlægið og nuddið því serumi sem eftir situr inn í húðina. Mælt er með því að nota maskann 2-3 sinnum í viku til að ná hámarksárangri.

BIOEFFECT Imprinting Hydrogel Mask hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni. Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT Imprinting Hydrogel Mask.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

Berið BIOEFFECT serum að eigin vali á húðina. Opnið maskann varlega, fjarlægið gagnsæju filmuna og leggið maskann á andlitið. Við mælum með að setja neðri hluta maskans fyrst á andlitið. Fjarlægið hvítu filmuna. Leyfið maskanum að vera á andlitinu í 15 mínútur. Fjarlægið og nuddið því serumi sem eftir situr inn í húðina.

Passar vel með

Hleð inn síðu...