Beint í efni

EGF Power Serum

Ný og afar öflug húðvara sem er sérstaklega þróuð til að styrkja ysta varnarlag húðarinnar, jafna húðlit og vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við hrukkur, litamisfellur og þurrk. EGF Power Serum er framsækin formúla aðeins 12 hreinna og virkra efna, m.a. EGF úr byggi, KGF úr byggi – boðskiptaprótín sem styrkir varnarlag húðarinnar – ásamt hýalúronsýru og NAG.
19.990 kr.

Eiginleikar og áhrif

Nýtt og öflugt serum sem hefur raunveruleg áhrif á sjáanleg öldrunarmerki.

Hið nýja EGF Power Serum er afar öflug og áhrifarík húðvara sem er sérstaklega þróuð til að vinna á öldrunarmerkjum húðar. Þessi nýja og byltingarkennda formúla inniheldur aðeins 12 hrein og virk efni sem voru sérvalin af vísindateyminu okkar til að tryggja raunverulegan árangur. Virknirannsóknir hafa sýnt að notkun EGF Power Serum bætir 5 helstu öldrunarmerki um allt að 50% eða meira. Þessir kraftmiklu húðdropar vinna á þurrki, litamisfellum, hrukkum, húðþynningu og slappri húð, á sama tíma og þeir hafa eflandi áhrif á ysta varnarlag húðarinnar og varna skaðlegum efnum aðgang að henni. Þessi framsækna formúla inniheldur lykilinnihaldsefnið okkar, EGF (Epidermal Growth Factor) úr byggi, KGF (Keratinocyte Growth Factor) úr byggi, NAG (N-Acetyl Glucosamine) og hýalúronsýru, sem stuðla í sameiningu að heilbrigðari og sléttari húð. EGF, KGF, NAG og hýalúronsýra fyrirfinnast náttúrulega í húðinni og gegna mikilvægu hlutverki við að viðhalda heilbrigði hennar. Þessi sérvöldu efni vinna saman á skilvirkan hátt og samlegðaráhrif þeirra tryggja raunveruleg áhrif á ásýnd húð.

  • Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
  • Eykur teygjanleika og þéttleika, húðin virðist stinnari
  • Dregur úr litamisfellum af völdum sólarljóss og UV-geislunar
  • Eflir virkni ysta varnarlags húðarinnar og eflir rakabindingu
  • Bætir áferð húðar, húðin virðist sléttari og húðlitur jafnari
  • Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þurri eða þroskaðri húð
  • Aðeins 12 innihaldsefni
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena, sílikons og glútens
  • Prófað af húðlæknum

Stærð: 15 ml.

Lykilinnihaldsefni

EGF — Rakabindandi og endurnærandi boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Með aldrinum dregur úr magni EGF og í kjölfarið fer að bera á sjáanlegum öldrunarmerkjum. Vísindateymið okkar þróaði aðferð til að vinna EGF úr byggplöntum og nýta í húðvöruframleiðslu. BIOEFFECT EGF er það fyrsta í heiminum sem er framleitt úr plöntum. EGF úr byggi örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og viðheldur sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.

KGF — Boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni, hefur eflandi áhrif á ysta varnarlag hennar og viðheldur heilbrigðri ásýnd. KGF úr byggi styður við náttúrulega viðgerðarhæfni húðar og hefur verndandi áhrif gegn ýmiss konar ytra áreiti, þ.m.t. af geislun, umhverfisáhrifum og efnaáhrifum.

Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

N-Acetyl Glucosamine (NAG) — Vegan form af amínóeinsykru sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni og er staðsett á milli húðfruma. Sýnt hefur verið fram á að NAG styður við náttúrulega framleiðslu hýalúronsýru í húðinni. Rannsóknir hafa einnig sýnt að það stuðlar að bjartari og jafnari ásýnd og dregur úr litamisfellum. NAG hefur andoxandi eiginleika, styður við heilbrigða uppbyggingu (e. structural integrity) húðarinnar, viðheldur teygjanleika og vinnur á þurrki með því að draga úr vökvatapi og efla rakabindingu.

Innihaldsefnalisti

GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM CITRATE, ACETYL GLUCOSAMINE (NAG), ISOPENTYLDIOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, SODIUM HYALURONATE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1), KGF (BARLEY SH-POLYPEPTIDE-3) Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Staðfestur árangur

Samkvæmt sjálfstæðri innanhússrannsókn þar sem árangur var mældur með VISIA Skin Analysis kerfinu og þátttakendur notuðu EGF Power Serum tvisvar á dag í þrjá mánuði.

  • Allt að 73% minnkun á ásýnd hrukka og fínna lína
  • Allt að 56% aukning á teygjanleika
  • Allt að 63% aukning á þéttleika
  • Allt að 72% aukning á raka
  • Allt að 65% minnkun á litabreytingum af völdum UV-geislunar
FyrirEftir

Fullkomnaðu húðumhirðuna

Vaxtarþættir úr byggi hafa mesta virkni í röku umhverfi. Til að tryggja hámarksárangur mælum við með að EGF Power Serum sé notað með öðrum BIOEFFECT vörum til að hámarka virkni og áhrif.

Passar vel með:

  • EGF Power Cream: Kraftmikið og djúpvirkandi andlitskrem, vinnur á fínum línum, jafnar lit og áferð og eykur þéttleika húðarinnar.
  • EGF Essence: Einstakt andlitsvatn sem eykur raka, undirbýr húðina fyrir BIOEFFECT EGF vörur og eykur þannig virkni þeirra.

Upplýsingar

BIOEFFECT® EGF POWER SERUM

BIOEFFECT® EGF Power Serum er afar öflugt serum sem var sérstaklega þróað til að draga úr sýnilegum merkjum öldrunar, efla ysta varnarlag húðarinnar, draga úr sýnileika fínna lína og hrukka og jafna bæði húðlit og áferð.

  • Dregur úr sýnileika fínna lína og hrukka
  • Eflir ysta varnarlag húðarinnar
  • Dregur úr sýnilegum litabreytingum
  • Veitir raka og næringu
  • Bætir þéttleika, þrýstni og teygjanleika húðar

Notkunarleiðbeiningar: Berið 2-4 dropa á andlit, háls og bringu. Má nota kvölds og morgna.

BOEFFECT EGF POWER SERUM hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni.Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði á húðinni í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF POWER SERUM.

Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

Berið 2-4 dropa á andlit og háls með mjúkum hringhreyfingum upp á við. Bíðið í 3-5 mínútur áður en aðrar vörur á borð við farða, sólarvörn eða krem eru bornar á húðina. Má nota kvölds og morgna, eitt og sér eða með öðrum BIOEFFECT vörum til að ná hámarksárangri.

Passar vel með

Hleð inn síðu...