Umsagnir
Engar umsagnir.
Fyrstu húðdroparnir sem innihalda EGF prótín úr byggi
BIOEFFECT EGF Serum er byltingarkennd húðvara sem er sérhönnuð til að draga úr ásýnd fínna lína og vinna gegn sjáanlegum öldrunarmerkjum. Lykilhráefnið er EGF prótín úr byggi — endurnærandi og rakabindandi boðskipaprótín og jafnframt það fyrsta sinnar tegundar í heiminum sem unnið er úr plöntum. Fjölmargar rannsóknir hafa staðfest margvíslegan árangur á borð við aukinn raka og þéttleika húðarinnar. Upplifðu hámarksárangur með hreinni húðvöru sem inniheldur aðeins 7 náttúrulega virk efni.
Stærð: 5ml og 15ml
EGF — Rakabindandi og endurnærandi boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Með aldrinum dregur úr magni EGF og í kjölfarið fer að bera á sjáanlegum öldrunarmerkjum. Vísindateymið okkar fann upp aðferð til að vinna EGF úr byggplöntum og nýta í húðvöruframleiðslu. BIOEFFECT EGF er það fyrsta í heiminum sem er framleitt úr plöntum. EGF úr byggi örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og viðheldur sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.
Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.
Glýserín — Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.
Íslenskt vatn — Við notum hreint, íslenskt vatn, sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög, í allar okkar vörur. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.
GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM HYALURONATE, TROMETHAMINE, SODIUM CHLORIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)
Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.
Samkvæmt sjálfstæðri innanhússrannsókn þar sem árangur var mældur með VISIA Skin Analysis kerfinu og þátttakendur notuðu EGF Serum tvisvar á dag í þrjá mánuði.
BIOEFFECT® EGF SERUM er margverðlaunað serum sem endurnýjar húðina og veitir henni raka. Hefur fyrirbyggjandi áhrif og vinnur gegn sýnilegum merkjum öldrunar auk þess að viðhalda heilbrigðri áferð og ásýnd húðar með aðeins 7 innihaldsefnum.
Notkunarleiðbeiningar: Berið 2-4 dropa á andlit, háls og bringu. Notið kvölds og morgna, eitt og sér eða með öðrum BIOEFFECT vörum til að hámarka áhrif og virkni.
BIOEFFECT EGF SERUM hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni. Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði á húðinni í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF SERUM.
Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.
Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni.
Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.
Berið 2-4 dropa á andlit, háls og bringu, tvisvar á dag. Berið á að morgni og bíðið í 3-5 mínútur áður en aðrar vörur á borð við rakakrem, sólarvörn eða farða eru settar á húðina. Berið á hreina húð að kvöldi. Þannig aukast áhrif vörunnar yfir nóttina þegar húðin er í viðgerðarfasa.
Engar umsagnir.