Beint í efni

EGF Power Serum (15ml) & Maskar (6 stk)

EGF Power Serum (15ml) og Imprinting Hydrogel andlitsmaskar (6 stk), áhrifaríkar húðvörur sem saman vinna gegn sjáanlegum merkjum öldrunar auk þess að slétta, þétta og næra húðina. EGF Power Serum er sérstaklega þróuð til að styrkja ysta varnarlag húðarinnar, jafna húðlit og vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við hrukkur, litamisfellur og þurrk. EGF Power Serum er framsækin formúla aðeins 12 hreinna og virkra efna, m.a. BIOEFFECT EGF, KGF, ásamt hýalúronsýru og NAG. Imprinting Hydrogel maskinn er tvískiptur gelmaski sem veitir djúpan raka og hámarkar virkni BIOEFFECT seruma.

30.940 kr.

Vörur

EGF Power Serum inniheldur aðeins 12 hrein og virk efni sem voru sérvalin af vísindateyminu okkar til að tryggja raunverulegan árangur. Virknirannsóknir hafa sýnt að notkun EGF Power Serum bætir 5 helstu öldrunarmerki um allt að 50% eða meira. Þessir kraftmiklu húðdropar vinna á þurrki, litamisfellum, hrukkum, húðþynningu og slappri húð, á sama tíma og þeir hafa eflandi áhrif á ysta varnarlag húðarinnar og varna skaðlegum efnum aðgang að henni. Þessi framsækna formúla inniheldur lykilinnihaldsefnið okkar, BIOEFFECT EGF (Epidermal Growth Factor), KGF (Keratinocyte Growth Factor), NAG (N-Acetyl Glucosamine) og hýalúronsýru, sem stuðla í sameiningu að heilbrigðari og sléttari húð. EGF, KGF, NAG og hýalúronsýra fyrirfinnast náttúrulega í húðinni og gegna mikilvægu hlutverki við að viðhalda heilbrigði hennar. Þessi sérvöldu efni vinna saman á skilvirkan hátt og samlegðaráhrif þeirra tryggja raunveruleg áhrif á ásýnd húðar.

Hámarkaðu virkni EGF Serum með Imprinting Hydrogel Mask. Þessi tvískipti gelmaski inniheldur hýalúronsýru og glýserín sem veita djúpan raka og efla hæfni húðarinnar til að viðhalda raka. Imprinting Hydrogel Mask er andlitsmaski í algjörum sérflokki — hannaður til að skapa umhverfi sem hámarkar virkni BIOEFFECT seruma. Öll efnin eru vatnsleysanleg og fyrir vikið er maskinn að fullu niðurbrjótanlegur. Öflugur rakagjafi sem mýkir, sléttir og þéttir húðina.

  • Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
  • Eykur teygjanleika og þéttleika, húðin virðist stinnari
  • Dregur úr litamisfellum af völdum sólarljóss og UV-geislunar
  • Eflir virkni ysta varnarlags húðarinnar og eflir rakabindingu
  • Bætir áferð húðar, húðin virðist sléttari og húðlitur jafnari
  • Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þurri eða þroskaðri húð
  • Tveggja laga andlitsmaski sem er einfaldur í notkun
  • Djúpverkandi og endurnærandi rakagjafi
  • Gelmaskinn örvar varðveislu raka í húðinni
  • Gelmaskinn hámarkar virkni EGF seruma
  • Kælandi og róandi
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Án rotvarnarefna
  • Prófað af húðlæknum
  • Stærð: 15 ml og 6x30 g

Lykilinnihaldsefni

BIOEFFECT EGF: Hjálpar til við að örva náttúrulega kollagenframleiðslu og minnkar því sýnilega fínar línur og hrukkur og þéttir og sléttir húðina. EGF er lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðar þar sem það er rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur.

KGF: Boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni, hefur eflandi áhrif á ysta varnarlag hennar og viðheldur heilbrigðri ásýnd. KGF úr byggi styður við náttúrulega viðgerðarhæfni húðar og hefur verndandi áhrif gegn ýmiss konar ytra áreiti, þ.m.t. af geislun, umhverfisáhrifum og efnaáhrifum.

Hýalúronsýra: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

N-Acetyl Glucosamine (NAG): Vegan form af amínóeinsykru sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni og er staðsett á milli húðfruma.

Hýalúronsýra: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

Glýserín: Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.

Innihaldsefnalistar:

EGF Power Serum:

GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM CITRATE, ACETYL GLUCOSAMINE (NAG), ISOPENTYLDIOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, SODIUM HYALURONATE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1), KGF (BARLEY SH-POLYPEPTIDE-3)

Imprinting Hydrogel Masks:

WATER (AQUA), GLYCERIN, DIPROPYLENE GLYCOL, 1,2-HEXANEDIOL, CERATONIA SILIQUA (CAROB) GUM, CHONDRUS CRISPUS POWDER, CHONDRUS CRISPUS EXTRACT, SODIUM HYALURONATE, CELLULOSE GUM, SODIUM POLYACRYLATE, PHENOXYETHANOL, SUCROSE, HYDROGENATED POLYDECENE, POTASSIUM CHLORIDE, TRIDECETH-6, DISODIUM EDTA

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Kjörið fyrir:

Kjörið fyrir

Fínar línur og hrukkur

Fyrstu ummerki um öldrun húðarinnar birtast gjarnan sem fínar línur á yfirborði hennar. Í fyrstu eru þær stuttar og grunnar og oft er erfitt að koma auga á þær. Fínar línur liggja í yfirborði húðarinnar og því er einfaldara að meðhöndla þær en dýpri hrukkur. Hrukkur geta myndast þegar fínar línur eru ekki meðhöndlaðar og fara að dýpka. Með því að nota serum eða krem með vaxtarþáttum á borð við BIOEFFECT EGF og BIOEFFECT KGF er hægt að auka raka og örva náttúrulega kollagenframleiðslu húðarinnar, sem getur reynst afar vel til að halda fínum línum og hrukkum í skefjum.

Húð sem hefur tapað þéttleika

Þegar húðin er ung framleiðir hún kollagen og elastín í ríkulegu magni. Þetta náttúrulega ferli viðheldur teygjanleika húðarinnar og sér til þess að hún haldi lögun sinni í stað þess verða slöpp og fara að síga. Með hækkandi aldri og áreiti umhverfisþátta á borð við UV-geislun, mengun eða streitu fer að draga úr framleiðslu kollagens og elastíns. Fyrir vikið tapar húðin þéttleika. Húðvörur sem innihalda EGF sem við framleiðum úr byggi örva náttúrulega framleiðslu kollagens og elastíns og geta þannig stuðlað að auknum þéttleika húðarinnar.

Húð sem er þreytuleg ásýndar

Húðin getur orðið þreytuleg ásýndar (oft kallað skin dullness) og er þá átt við húð sem virðist litlaus, skorta ljóma og jafnvel gróf. Með hækkandi aldri dregur úr náttúrulegri viðgerðar- og endurnýjunarhæfni húðarinnar og verulega hægist á frumuendurnýjun. Í kjölfarið geta dauðar húðfrumur farið að safnast á yfirborði húðarinnar og hulið náttúrulegan ljóma og lit. Með því að nota endurnærandi húðvörur, á borð við EGF Power Serum serum, má örva þessa viðgerðarhæfni húðarinnar og endurheimta bæði lífleika og ljóma.

Þurra húð

Flest þekkjum við þau neikvæðu áhrif sem þurrkur getur haft á líkamann. Staðreyndin er sú að þurrkur hefur ekki síður áhrif á húðina og húðheilsu. Þurr húð stafar yfirleitt af því að húðin tapar vökva hraðar en hún getur dregið hann til sín og viðhaldið honum. Með hækkandi aldri verðum við sífellt líklegri til að upplifa þurrk í húð. Ein besta meðferðin er notkun húðvara á borð við nærandi serum eða krem sem innihalda mild en áhrifarík efni sem veita húðinni raka og efla getu hennar til að viðhalda honum.

Hreinar húðvörur

Passar vel með

Hleð inn síðu...