Beint í efni

EGF Serum Double

Glæsilegt gjafasett sem inniheldur hið margverðlaunaða EGF Serum í tvöföldu magni (30 ml). Þessir virku húðdropar hjálpa til við að draga úr sýnileika fínna lína og tryggja raunverulegan árangur. Gjafasettið er á 25% lægra verði en ef keyptar eru stakar vörur (2x15 ml).

Eiginleikar og áhrif

EGF Serum Double tryggir rakagefandi EGF húðrútínu sem viðheldur heilbrigðri ásýnd húðarinnar.

Einstakt gjafasett sem inniheldur okkar margverðlaunuðu húðdropa í tvöföldu magni og á 25% lægra verði. EGF Serum er byltingarkennd vara úr aðeins 7 hreinum og áhrifaríkum innihaldsefnum sem fyrirbyggja og vinna á ótímabærum öldrunarmerkjum húðarinnar. Okkar einstaka EGF úr byggi er þar í lykilhlutverki og tryggir hámarksárangur. EGF úr byggi er rakabindandi boðskiptaprótín sem viðheldur heilbrigðri ásýnd húðarinnar. EGF Serum býr yfir einstakri virkni; hjálpar til við að draga úr ásýnd fínna lína.

  • Hentar öllum húðgerðum
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum

Gjafasettið inniheldur: EGF Serum 30 ml í stað 15 ml í hefðbundinni stærð; tvöfalt magn á 25% lægra verði.

EGF Serum

  • Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
  • Eykur og viðheldur raka í húðinni
  • Þéttir og sléttir húðina
  • Aðeins 7 hrein innihaldsefni

Stærð: 30ml. / 1.01 fl. oz.

Lykilinnihaldsefni

EGF — Rakabindandi og endurnærandi boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Með aldrinum dregur úr magni EGF og í kjölfarið fer að bera á sjáanlegum öldrunarmerkjum. Vísindateymið okkar fann upp aðferð til að vinna EGF úr byggplöntum og nýta í húðvöruframleiðslu. BIOEFFECT EGF er það fyrsta í heiminum sem er framleitt úr plöntum. EGF úr byggi örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og viðheldur sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.

Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

Glýserín — Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.

Íslenskt vatn — Við notum hreint, íslenskt vatn, sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.

Innihaldsefnalistar

GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM HYALURONATE, TROMETHAMINE, SODIUM CHLORIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Staðfestur árangur

Samkvæmt sjálfstæðri innanhússrannsókn þar sem árangur var mældur með VISIA Skin Analysis kerfinu og þátttakendur notuðu EGF Serum tvisvar á dag í þrjá mánuði.

  • Allt að 63%minnkun á ásýnd hrukka og fínna lína
  • Allt að 68% aukning á teygjanleika húðar
  • Allt að 132%aukning á raka húðar
FyrirEftir 90 daga

Upplýsingar

BIOEFFECT® EGF SERUM

BIOEFFECT® EGF SERUM er margverðlaunað serum sem endurnýjar húðina og veitir henni raka. Hefur fyrirbyggjandi áhrif og vinnur gegn sýnilegum merkjum öldrunar auk þess að viðhalda heilbrigðri áferð og ásýnd húðar með aðeins 7 innihaldsefnum.

  • Dregur úr sýnileika fínna lína og hrukka
  • Eykur og viðheldur raka í húðinni
  • Endurnýjar, endurnærir og endurbætir húð
  • Einungis 7 innihaldsefni

Notkunarleiðbeiningar: Berið 2-4 dropa á andlit, háls og bringu. Notið kvölds og morgna, eitt og sér eða með öðrum BIOEFFECT vörum til að hámarka áhrif og virkni.

BIOEFFECT EGF SERUM hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni. Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði á húðinni í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF SERUM.

Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni.

Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

Berið 2-4 dropa af EGF Serum á andlit, háls og bringu með mjúkum hringhreyfingum upp á við. Bíðið í 3-5 mínútur áður en aðrar vörur á borð við farða, sólarvörn eða krem eru bornar á húðina. Má nota kvölds og morgna, eitt og sér eða með öðrum BIOEFFECT vörum til að ná hámarksárangri.

EGF úr byggi hefur mesta virkni í röku umhverfi. Til að tryggja hámarksárangur mælum við með að varan sé notuð reglulega ásamt öðrum BIOEFFECT vörum.

Þér gæti einnig líkað við

Hleð inn síðu...