Beint í efni

Imprinting Eye Masks

Nærandi augnmaski fyrir viðkvæmu húðina umhverfis augun. Hýalúronsýra og glýserín veita húðinni mikinn og djúpvirkan raka auk þess að draga úr þrota. Gelkennd áferðin hefur bæði kælandi og róandi áhrif. Augnmaskinn er sérstaklega þróaður til að hámarka virkni BIOEFFECT serumana. Kassinn inniheldur 8 stk af augnmöskum.
4.490 kr.

Eiginleikar og áhrif 

Róar, mýkir, þéttir og nærir.

Imprinting Eye Mask veitir húðinni umsvifalausan og djúpvirkan raka auk þess að þétta hana, slétta og mýkja. Augnmaskinn inniheldur hýalúronsýru og glýserín í ríku magni – tvö áhrifarík og náttúruleg efni sem auka ljóma og efla hæfni húðarinnar til að viðhalda raka.

Augnmaskinn er sérstaklega þróaður til að efla og hámarka áhrif EGF Eye Serum. EGF er prótín sem hefur mesta virkni í röku umhverfi. Þeim mun lengur sem yfirborð húðarinnar helst rakt, því meiri verða áhrifin. Þegar Imprinting Eye Mask er notaður með EGF Eye Serum skapast kjöraðstæður fyrir EGF sem hámarkar áhrif BIOEFFECT seruma.

Imprinting Eye Mask inniheldur aðeins 16 hrein og örugg efni, sérvalin af vísindateyminu okkar. Augnmaskinn er vatnsleysanlegur og niðurbrjótanlegur.

  • Dregur úr þrota og þreytumerkjum
  • Endurnærir og veitir djúpvirkan raka
  • Þéttir og sléttir húðina umhverfis augun
  • Kælandi og róandi gelmaski
  • Hámarkar virkni BIOEFFECT Seruma
  • Vatnsleysanlegur og niðurbrjótanlegur
  • Hentar öllum húðgerðum
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum

Lykilinnihaldsefni

Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

Glýserín — Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.

INNIHALDSEFNALISTI

WATER (AQUA), GLYCERIN, DIPROPYLENE GLYCOL, 1,2-HEXANEDIOL, CERATONIA SILIQUA (CAROB) GUM, CHONDRUS CRISPUS POWDER, CHONDRUS CRISPUS EXTRACT, SODIUM HYALURONATE, CELLULOSE GUM, SODIUM POLYACRYLATE, PHENOXYETHANOL, SUCROSE, HYDROGENATED POLYDECENE, POTASSIUM CHLORIDE, TRIDECETH-6, DISODIUM EDTA

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Fullkomnaðu húðumhirðuna

EGF úr byggi hefur mesta virkni í röku umhverfi. Til að tryggja hámarksárangur mælum við með að varan sé notuð með öðrum BIOEFFECT vörum.

Passar vel með:

  • EGF Serum: Hinir margverðlaunuðu EGF Serum húðdropar innihalda aðeins 7 hrein efni.
  • Imprinting Hydrogel Mask: Andlitsmaski sem veitir djúpan raka og myndar verndarlag á húðinni.

Upplýsingar

BIOEFFECT® IMPRINTING EYE MASK

BIOEFFECT Imprinting Eye Mask nærir viðkvæma húð augnsvæðisins. Dregur úr þrota og þreytumerkjum og veitir húðinni djúpan raka. Maskinn er sérstaklega þróaður til að hámarka áhrif EGF í BIOEFFECT serumum og inniheldur engin efni sem trufla virkni þeirra.

• Eykur raka og frískar upp á húðina

• Dregur úr þreytumerkjum, þrota og baugum

• Endurvekur ljóma og þéttleika húðar

• Eykur virkni EGF í BIOEFFECT serumum

• Án alkóhóls, olíu og ilmefna

Notkunarleiðbeiningar: Berið BIOEFFECT EGF Eye Serum á húðina undir augum. Opnið BIOEFFECT Imprinting Eye Mask. Fjarlægið gagnsæju filmuna og leggið einn maska undir hvort auga. Fjarlægið hvítu filmuna utan af maskanum og látið liggja á húðinni í 15 mínútur. Fjarlægið og nuddið því serumi sem eftir situr inn í húðina. Notið 2-3 sinnum í viku til að ná hámarksárangri.

BIOEFFECT Imprinting Eye Mask hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni.

Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT Imprinting Eye Mask.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

Berið EGF Eye Serum eða BIOEFFECT serum að eigin vali á húðina. Opnið maskann varlega, fjarlægið gagnsæju filmuna og leggið einn maska undir hvort auga. Fjarlægið hvítu filmuna og leyfið maskanum að vera á húðinni í 15 mínútur. Fjarlægið og nuddið því serumi sem eftir situr inn í húðina. Má nota kvölds og morgna. Notið 2-3 í viku til að ná hámarksárangri.

Passar vel með

Hleð inn síðu...