Beint í efni

EGF Eye Serum

Endurnærandi augnserum sem vinnur gegn hrukkum og fínum línum auk þess að draga úr þrota umhverfis augun. Inniheldur aukið magn EGF prótína úr byggi til að tryggja hámarksáhrif. BIOEFFECT EGF úr byggi er endurnærandi og rakabindandi prótín sem örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og viðheldur sléttri og heilbrigði ásýnd húðarinnar. Til að tryggja hámarksárangur mælum við með að bæta Imprinting Eye Mask við!
9.890 kr.

Eiginleikar og áhrif

Augnserum sem eykur þéttleika og inniheldur aukið magn EGF prótína úr byggi.

Létt og endurnærandi augnserum sem inniheldur aukið magn EGF — endurnærandi og rakabindandi prótíns sem vinnur gegn sjáanlegum öldrunarmerkjum. EGF úr byggi, hýalúronsýra og hreint, íslenskt vatn draga úr ásýnd fínna lína á augnsvæðinu og skilja við húðina vel nærða, þétta og slétta. Á flöskunni er kælandi stálkúla sem tryggir jafna dreifingu og hefur einstök áhrif á þrota og þreytumerki. Náðu hámarksárangri með virkri húðvöru sem inniheldur aðeins 11 hrein og náttúruleg efni.

  • Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
  • Dregur úr þrota og þreytumerkjum og vinnur gegn slappri húð
  • Nærandi
  • Þéttir og sléttir húðina
  • Eykur ljóma
  • Kælandi stálkúla sem vinnur gegn þrota
  • Hentar öllum húðgerðum
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af augnlæknum
  • Prófað af húðlæknum

Stærð: 6ml

Lykilinnihaldsefni

EGF — Rakabindandi og endurnærandi boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Með aldrinum dregur úr magni EGF og í kjölfarið fer að bera á sjáanlegum öldrunarmerkjum. Vísindateymið okkar fann upp aðferð til að vinna EGF úr byggplöntum og nýta í húðvöruframleiðslu. BIOEFFECT EGF er það fyrsta í heiminum sem er framleitt úr plöntum. EGF úr byggi örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og viðheldur sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.

Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

Glýserín — Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.

Íslenskt vatn — Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.

Innihaldsefnalisti

WATER (AQUA), GLYCERIN, BUTYLENE GLYCOL, CARBOMER, SODIUM CHLORIDE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CITRATE, SODIUM DEHYDROACETATE, SODIUM HYALURONATE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Staðfestur árangur

Samkvæmt sjálfstæðri innanhússrannsókn þar sem árangur var mældur með VISIA Skin Analysis kerfinu og þátttakendur notuðu EGF Eye Serum tvisvar á dag í þrjá mánuði.

  • Allt að 81%aukning á raka húðar
  • Allt að 59%minnkun á ásýnd hrukka og fínna lína
FyrirEftir 90 daga

Fullkomnaðu húðumhirðuna

EGF úr byggi hefur mesta virkni í röku umhverfi. Til að tryggja hámarksárangur mælum við með að varan sé notuð reglulega ásamt öðrum BIOEFFECT vörum.

Passar vel með:

  • Imprinting Eye Mask. Rakagefandi meðferð með augnmöskum sem eykur þéttleika og ljóma húðarinnar umhverfis augun.
  • EGF Serum. Saman tryggja vörurnar alhliða andlitsmeðferð. Hið margverðlaunaða EGF Serum inniheldur aðeins 7 hrein efni.

Upplýsingar

BIOEFFECT® EGF EYE SERUM

BIOEFFECT® EGF EYE SERUM er öflug formúla sem er sérstaklega þróað fyrir viðkvæmu húðina í kringum augun. Auðvelt er að bera serumið á með stálkúlunni og það stuðlar strax að réttu rakajafnvægi auk þess að draga úr hinum ýmsu einkennum öldrunar.

• Dregur úr fínum línum og hrukkum

• Minnkar þrota og bauga

• Gefur ljóma og gerir húðina stinnari

• Prófað af augnlæknum

Notkunarleiðbeiningar: Þrýstið á botn ílátsins til að skammta serumi. Notið kælandi stálkúluna til að bera efnið á húðina á augnsvæðinu og nuddið mjúklega með fingurgómunum til að tryggja jafna dreifingu. Látið ganga inn í húðina áður en aðrar vörur á borð við krem, sólarvörn eða farða eru bornar á andlitið. Notið kvölds og morgna, eitt og sér eða með öðrum BIOEFFECT vörum til að hámarka áhrif og virkni.

BIOEFFECT EGF EYE SERUM hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni. Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast leitaðu upplýsinga hjá lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF EYE SERUM.

Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

Þrýstið létt á hnappinn á botninum til að skammta augnserumi og berið á hreina húð umhverfis augun. Nuddið mjúklega með fingurgómunum til að tryggja jafna dreifingu. Gefið EGF Eye Serum 3-5 mínútur til að ganga inn í húðina áður en farði eða sólarvörn eru borin á andlitið.

Passar vel með

Hleð inn síðu...