Beint í efni
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.

EGF Day Serum + Gjöf

EGF Day Serum fylgir nú EGF Essence (50 ml) ásamt fallegum gjafapoka.

EGF Day Serum er létt, silkimjúkt og gelkennt serum sem inniheldur meðal annars BIOEFFECT EGF, hýalúrónsýru og panthenol (B5-vítamín). Það gengur hratt og vel inn í húðina, er fullkominn grunnur undir sólarvörn og farða og er einnig vinsælt hjá karlmönnum eftir rakstur. EGF Essence er nærandi rakavatn sem einnig inniheldur BIOEFFECT EGF og undirbýr húðina fyrir notkun serumsins. Þessi áhrifaríka tvenna veitir djúpan og langvarandi raka og vinnur gegn sýnilegum öldrunareinkennum húðarinnar.

EGF Day Serum (30 ml) í fullri stærð, fylgir nú EGF Essence (50 ml) og gjafapoki.

Virði: 21.485 kr.

Verð15.990 kr.

Eiginleikar og ávinningur

Vel nærð húð í amstri dagsins.

Báðar vörurnar innihalda BIOEFFECT EGF, endurnærandi og rakabindandi vaxtarþátt. Saman veita þær húðinni góðan raka, róa hana og styrkja ysta varnarlag hennar, ásamt því að draga úr ásýnd fínna lína og hrukka.

EGF Day Serum (30 ml) veitir húðinni djúpan raka, styrkir ysta varnarlag hennar og dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka. Þetta silkimjúka serum gengur hratt og vel inn í húðina og hentar því einstaklega vel til notkunar yfir daginn. Það skilur húðina eftir mjúka og vel nærða og er fullkominn grunnur undir sólarvörn og farða.

EGF Essence (50 ml) er létt og nærandi rakavatn sem veitir húðinni góðan raka og undirbýr hana fyrir serum og rakakrem. Það eykur rakabindingu húðarinnar, greiðir fyrir upptöku EGF og eykur virkni þess, og skilur húðina eftir einstaklega mjúka.

EGF Day Serum

  • Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
  • Eykur og viðheldur raka í húðinni
  • Styrkir ysta varnarlag húðarinnar og verndar hana gegn skaðlegum umhverfisáhrifum
  • Jafnar áferð og húðlit
  • Róar húðina og stuðlar að heilbrigðri ásýnd hennar
  • Silkimjúk áferð sem hentar vel undir förðun og sólarvörn
  • Aðeins 11 hrein innihaldsefni
  • Hentar öllum húðgerðum og kynjum
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum


Stærð: 30 ml

EGF Essence

  • Endurnærandi og rakagefandi
  • Undirbýr húðina fyrir serum og rakakrem
  • Létt formúla sem smýgur hratt inn í húðina
  • Greiðir fyrir upptöku EGF og eykur virkni þeirra
  • Hentar öllum húðgerðum
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum


Stærð: 50 ml

Lykilinnihaldsefni 

BIOEFFECT EGF (Epidermal Growth Factor): Rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur og öflugt lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðinnar. EGF örvar náttúrulega kollagenframleiðslu auk þess að þétta og slétta húðina.

Panthenol (B5 vítamín): Eykur rakastig húðarinnar með því að draga vatn að yfirborði húðþekjunnar. Þetta fjölhæfa innihaldsefni styrkir ysta varnarlag húðarinnar, auk þess að róa hana og draga úr bólgum.

Hýalúronsýra: Bindur og viðheldur raka í húðinni, ásamt því að slétta hana og þétta. EGF Day Serum inniheldur háan styrk af hýalúrónsýru sem tryggir rakabindingu í öllum lögum húðarinnar. Léttari sameindirnar smjúga dýpra inn í húðina, á meðan þær þyngri leggjast á yfirborðið og mynda þar varnarhjúp sem hjálpar til við að halda raka í húðinni.

BIOEFFECT bygg ekstrakt: Þetta öfluga innihaldsefni er ríkt af peptíðum og andoxunarefnum, dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka og hjálpar til við að vernda húðina gegn skaðlegum áhrifum UV-geisla.

Glýserín: Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum, dregur til sín raka ásamt því að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.

Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.

Innihaldsefnalistar:

EGF Day Serum: WATER (AQUA), PROPYLENE GLYCOL, XYLITOL, SODIUM POLYACRYLOYLDIMETHYL TAURATE, PANTHENOL, SODIUM CITRATE, SODIUM HYALURONATE, PHENOXYETHANOL, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

EGF Essence: WATER (AQUA), GLYCERIN, ISOPENTYLDIOL, PROPYLENE GLYCOL, SODIUM CITRATE, SORBITOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafðu samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Notkun

Skref 1
EGF Essence: Helltu 2–4 skvettum af EGF Essence í lófann. Berðu á hreina og þurra húð og þrýstu mjúklega inn í húðina á andliti og hálsi.

Skref 2
EGF Day Serum: Pumpaðu 1-2 sinnum í lófa og berðu á hreina og þurra húð á andliti, hálsi og bringu. Bíddu í 3-5 mínútur áður en aðrar vörur á borð við rakakrem, sólarvörn eða farða eru bornar á húðina.

Passar vel með