Beint í efni
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.

Hydrating Cream

Hydrating Cream er einstaklega létt og nærandi andlitskrem sem veitir húðinni langvarandi raka. Kremið inniheldur sérvalin rakagefandi innihaldsefni sem næra húðina, vernda hana fyrir umhverfisáhrifum og skilja hana eftir mjúka, slétta og ljómandi. Þetta silkimjúka krem gengur hratt og vel inn í húðina og veitir henni fallega og heilbrigða ásýnd.

50ml
Verð12.990 kr.

Eiginleikar og ávinningur

Létt og nærandi andlitskrem sem veitir húðinni langvarandi raka.

Hydrating Cream er einstaklega létt og næringaríkt andlitskrem sem gengur hratt og vel inn í húðina og veitir henni djúpan og langvarandi raka. Kremið eykur rakastig húðarinnar um allt að 57% eftir aðeins tvö skipti* og hjálpar henni að viðhalda raka allan daginn.

Formúlan sameinar rakagefandi innihaldsefni, þar á meðal íslenskt vatn sem er undirstaða kremsins. Vatnið kemur úr náttúrulegum uppsprettum á Íslandi og hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni í algjöru lágmarki, sem gerir vatnið síður líklegt til að þurrka eða erta húðina. Formúlan inniheldur einnig hýalúronsýru, sem dregur til sín raka og hjálpar húðinni að viðhalda honum, og E-vítamín sem verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum og stuðlar að jafnari áferð og húðlit. Kremið má nota eitt og sér eða ásamt öðrum vörum frá BIOEFFECT, bæði kvölds og morgna, og er frábær viðbót við daglega húðumhirðu.

  • Létt og nærandi formúla
  • Gengur hratt og vel inn í húðina
  • Veitir langvarandi raka
  • Verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum
  • Skilur húðina eftir mjúka, slétta og ljómandi
  • Frábær viðbót við reglubundna húðumhirðu
  • Hentar öllum húðgerðum
  • Án ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum

Stærð: 50 ml.

*Skv. sjálfstæðri, tvíblindri 20 þátttakenda rannsókn á vegum BIOEFFECT.

Lykilinnihaldsefni

Hýalúronsýra: Innihaldsefni sem finnst náttúrulega í húðinni og gegnir mikilvægu hlutverki við að draga að sér og binda raka. Hjálpar til við að fylla húðina, jafna áferð hennar og stuðla að sléttari og heilbrigðari ásýnd.

E-vítamín: Eitt þekktasta og áhrifamesta andoxunarefnið fyrir bæði líkama og húð. Það fyrirfinnst náttúrulega í húðinni en dregið getur úr magni þess vegna þeirra umhverfisáhrifa sem húðin verður fyrir (t.d. þegar sólarvörn er ekki notuð). E-vítamín verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum og skaðlegum áhrifum sindurefna auk þess að jafna áferð og húðlit.

Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið er magn ertandi steinefna á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki, sem gerir það síður líklegt til að þurrka eða erta húðina. Því hentar íslenska vatnið einstaklega vel í framleiðslu húðvara.

Listi yfir innihaldsefni:

WATER (AQUA), CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, BUTYLENE GLYCOL, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, CETYL ALCOHOL, TOCOPHEROL, PHENOXYETHANOL, SODIUM HYALURONATE, ETHYLHEXYLGLYCERIN, CARBOMER, SORBITAN OLEATE, POTASSIUM SORBATE, POTASSIUM HYDROXIDE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Upplýsingar

BIOEFFECT® HYDRATING CREAM

BIOEFFECT® Hydrating Cream er afar nærandi og rakagefandi krem sem gerir húðina mjúka, slétta og ljómandi.

· Veitir húðinni raka og næringu

· Eykur ljóma

· Hentar vel til notkunar yfir BIOEFFECT serum

Notkunarleiðbeiningar: Berðu á andlit, háls og bringu. Nuddaðu upp á við með mjúkum strokum. Frábær viðbót við reglubundna húðumhirðu. Kremið má nota eitt og sér eða ásamt öðrum vörum frá BIOEFFECT til að auka næringu, raka og virkni enn frekar.

BIOEFFECT Hydrating Cream hentar öllum húðgerðum og er án alkóhóls og ilmefna. Fyrir þau sem eru með mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast leitaðu upplýsinga hjá lækni áður en þú notar BIOEFFECT Hydrating Cream.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

Berðu á andlit, háls og bringu. Nuddaðu upp á við með mjúkum strokum. Frábær viðbót við reglubundna húðumhirðu. Kremið má nota eitt og sér eða ásamt öðrum vörum frá BIOEFFECT til að auka næringu, raka og virkni enn frekar.

Passar vel með