Beint í efni
Frí sending á pöntunum yfir 10.000 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 10.000 kr.

EGF Hand Serum & varasalvi

EGF Hand Serum og varsalvi er endurnærandi og rakagefandi tvenna sem mýkir og verndar tvö svæði sem eiga það til að verða þurr og viðkvæm, ekki síst á veturna, og nú fylgir fallegu gjafapoki með. EGF Hand Serum mýkir og veitir höndum aukna næringu og vernd. Formúlan hjálpar til við að veita þurrum og sprungnum höndum góðan raka, efla ysta varnarlag húðarinnar og draga úr ásýnd litabreytinga. Serumið gengur vel inn í húðina og skilur við hendurnar silkimjúkar og nærðar. Varasalvinn er rakagefandi formúla sem hjálpar til við að halda vörunum vel nærðum og mjúkum. Hann er ríkur af andoxunarefnum og veitir vörunum gljáandi, litlausa áferð.

EGF Hand Serum (40 ml) & varasalvi — gjafapoki fylgir.

Verð8.980 kr.

Eiginleikar og áhrif

PEGF Hand Serum og BIOEFFECT varasalvinn eru rakagefandi, nærandi og verndandi tvenna, sem skilur við hendur og varir silkimjúkar og endurnærðar.

EGF Hand Serum nærir og mýkir þurrar og þreyttar hendur og skilur við þær silkimjúkar eftir hverja notkun. Þessi öfluga formúla var sérstaklega þróuð til að efla ysta varnarlag húðarinnar og sjá húðinni fyrir umsvifalausum en langvarandi raka.Lykilinnihaldsefnið BIOEFFECT EGF er áhrifaríkur vaxtarþáttur sem getur eflt hæfni húðarinnar við að draga til sín og viðhalda raka, en heilbrigt rakastig getur stuðlað að þéttari og sléttari ásýnd. Handserumið inniheldur einnig níasínamíð, seramíð og þykkni úr byggfræjum sem geta aukið hæfni húðarinnar við að verjast skaðlegum utanaðkomandi áhrifum auk þess að vera róandi fyrir erta húð. Níasínamíð, einnig þekkt sem B3 vítamín, stuðlar að því að bæta áferð og jafna húðlit auk þess að lágmarka ásýnd fínn

Varasalvinn er fullur af náttúrulegum og nærandi innihaldsefnum. Hann er rakagefandi og hjálpar til við að halda vörunum vel nærðum og mjúkum. Varasalvinn er ríkur af andoxunarefnum og inniheldur koparjónir sem gefa honum mildan grænan lit, og veita vörunum gljáandi, litlausa áferð. Þar að auki er hann fullur af náttúrulegum innihaldsefnum, eins og jojobaolíu, avókadóolíu og sólblómafrævaxi, sem inniheldur fitusýrur og E-vítamín. Hýalúrónsýra veitir vörunum djúpan og góðan raka. Varasalvinn kemur í fallegu silfurhylki með segullokun og smellpassar í snyrtiveskið.

EGF Hand Serum

  • Eykur raka og eflir rakabindingu
  • Stuðlar að sterkara varnarlagi húðar
  • Dregur úr ásýnd litabreytinga
  • Bætir og jafnar húðlit
  • Verndar gegn skaðlegum utanaðkomandi umhverfisáhrifum
  • Gerir húðina þéttari og sléttari í ásýnd
  • Hentar viðkvæmri húð
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum

Stærð: 40 ml / 1.35 fl.oz.

Varasalvi

  • Veitir góðan og langvarandi raka
  • Nærir og mýkir varirnar
  • Kemur í veg fyrir þurrar og sprungnar varir

Gjafapoki
Stærð: 20.5 x 10.5 x 20.5 cm

Lykilinnihaldsefni

BIOEFFECT EGF (Epidermal Growth Factor): Rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur og öflugt lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðarinnar. EGF örvar náttúrulega kollagenframleiðslu auk þess að þétta og slétta húðina.

Hýalúronsýra: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka.

Níasínamíð: Einnig þekkt sem B3 vítamín. Bætir áferð, jafnar húðlit og eykur ljóma auk þess að lágmarka ásýnd fínna lína. Stuðlar að sterkara varnarlagi húðar.

Seramíð: Veitir djúpan raka og viðheldur rakajafnvægi húðarinnar. Eflir virkni ysta varnarlagsins og verndar þannig húðina gegn skaðlegum utanaðkomandi áhrifum, svo sem veðri og mengun.

Glýserín: Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.

Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.

Innihaldsefnalistar:
EGF Hand Serum: WATER (AQUA), DIGLYCERIN, ISOPENTYLDIOL, NIACINAMIDE, PHENOXYETHANOL, GLYCERIN, CARBOMER, BUTYLENE GLYCOL, GLYCOSPHINGOLIPIDS, SODIUM HYALURONATE, SODIUM HYDROXIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Varasalvi: OCTYLDODECANOL, HELIANTHUS ANNUUS (SUNFLOWER) SEED WAX, SIMMONDSIA CHINENSIS(JOJOBA) SEED OIL, PERSEA GRATISSIMA (AVOCADO) OIL, AQUA (WATER), TRIOLEIN, C10-18 TRIGLYCERIDES, COCOS NUCIFERA (COCONUT) OIL, POLYGLYCERYL 3 POLYRICINOLEATE, GLYCERYL DIOLEATE, CETYL ALCOHOL,TRIPELARGONIN,POLYGLYCERYL-3 OLEATE, SYNTHETIC WAX, PHENOXYETHANOL, GLYCERIN, SORBITOL, SODIUM HYALURONATE, ETHYLHEXYLGLYCERIN, CI 75810 (CHLOROPHYLLIN-COPPER COMPLEX)

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafðu samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Upplýsingar

BIOEFFECT® EGF HAND SERUM

BIOEFFECT EGF HAND SERUM nærir húðina á höndum, dregur úr sýnilegum merkjum öldrunar og styrkir ysta varnarlag húðarinnar. Skilur við hendurnar mjúkar og vel nærðar.

  • Dregur úr sýnilegum öldrunarmerkjum í húð
  • Nærir húðina
  • Styrkir varnarlag húðarinnar og eflir getu hennar til að binda vökva
  • Jafnar áferð og húðlit
  • Gelkennd áferð sem smýgur hratt inn í húðina

Notkunarleiðbeiningar: Berið á hendurnar og nuddið mjúklega þar til varan hefur gengið inn í húðina. Notið eins oft og þörf er á.

BIOEFFECT EGF HAND SERUM hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni.

Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði á húðinni í þrjá daga áður en varan er notuð á hendurnar.

Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF HAND SERUM.

Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.

Forðastu að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

BIOEFFECT® varasalvi er rakagefandi varasalvi sem nærir og mýkir varirnar.

  • Veitir langvarandi raka
  • Nærir og mýkir varirnar
  • Kemur í veg fyrir þurrar og sprungnar varir

Notkunarleiðbeiningar: Berist á varir eftir þörfum.

Forðastu að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

EGF Hand Serum: Nuddið mjúklega á handarbök og í lófa þar til formúlan hefur gengið inn í húðina. Notið eins oft og þörf er á, sérstaklega eftir handþvott. Berið ríkulega á hendurnar á kvöldin til að leyfa innihaldsefnunum að ná hámarksvirkni yfir nóttina.

Varasalvi: Berist á varir eftir þörfum.

Passar vel með

Veldu stærð60ml
Veldu stærð120ml