




Firming Favorites gjafasett
Eiginleikar og áhrif
Firming Favorites tryggja alhliða andlitsmeðferð sem ber raunverulegan og sýnilegan árangur.
EGF Serum er byltingarkennd húðvara sem inniheldur EGF úr byggi – rakabindandi boðskiptaprótín sem viðheldur heilbrigðri og unglegri ásýnd húðarinnar. EGF Serum býr yfir einstakri virkni; dregur úr ásýnd fínna lína, eykur þéttleika og vinnur gegn sjáanlegum öldrunarmerkjum. EGF Eye Serum inniheldur aukið magn EGF prótína úr byggi til að tryggja hámarksáhrif og vinna á hrukkum, fínum línum og þrota á augnsvæðinu. Imprinting Eye Mask augnmaskinn var sérstaklega þróaður til að auka áhrif EGF Eye Serum auk þess að næra og þétta viðkvæma húðina umhverfis augun. Í sameiningu tryggja vörurnar alhliða andlitsmeðferð sem ber raunverulegan og sýnilegan árangur.
- Hentar öllum húðgerðum
- Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
- Ofnæmisprófað
Gjafasettið inniheldur:
EGF Serum
- Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Eykur og viðheldur raka í húðinni
- Þéttir og sléttir húðina
- Aðeins 7 hrein innihaldsefni
Stærð: 15ml / 0.5 fl. oz.
EGF Eye Serum
- Dregur úr ásýnd fínna lína umhverfis augun
- Dregur úr þrota og þreytumerkjum
- Vinnur gegn slappri húð, þéttir og sléttir
- Aukið magn EGF prótína úr byggi fyrir öflugri áhrif
Stærð: 6ml / 0.2 fl. oz.
Imprinting Eye Mask
- Nærir og þéttir húðina umhverfis augun
- Hámarkar virkni EGF
- Vatnsleysanlegur og niðurbrjótanlegur
- Kælandi og róandi gelmaski
Stærð: 3.6g / 0.12 oz.
Lykilinnihaldsefni
EGF — Rakabindandi og endurnærandi boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Með aldrinum dregur úr magni EGF og í kjölfarið fer að bera á sjáanlegum öldrunarmerkjum. Vísindateymið okkar fann upp aðferð til að vinna EGF úr byggplöntum og nýta í húðvöruframleiðslu. BIOEFFECT EGF er það fyrsta í heiminum sem er framleitt úr plöntum. EGF úr byggi örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og viðheldur sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.
Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.
Glýserín — Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.
Innihaldsefnalisti
EGF SERUM: GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM HYALURONATE, TROMETHAMINE, SODIUM CHLORIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)
EGF EYE SERUM: WATER (AQUA), GLYCERIN, BUTYLENE GLYCOL, CARBOMER, SODIUM CHLORIDE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CITRATE, SODIUM DEHYDROACETATE, SODIUM HYALURONATE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)
IMPRINTING EYE MASK: WATER (AQUA), GLYCERIN, DIPROPYLENE GLYCOL, 1,2-HEXANEDIOL, CERATONIA SILIQUA (CAROB) GUM, CHONDRUS CRISPUS POWDER, CHONDRUS CRISPUS EXTRACT, SODIUM HYALURONATE, CELLULOSE GUM, SODIUM POLYACRYLATE, PHENOXYETHANOL, SUCROSE, HYDROGENATED POLYDECENE, POTASSIUM CHLORIDE, TRIDECETH-6, DISODIUM EDTA
Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.
Hreinar húðvörur
Notkun
Þrýstið létt á flöskubotn EGF Eye Serum og berið á hreina húð umhverfis augun. Nuddið mjúklega með fingurgómunum til að tryggja jafna dreifingu. Gefið formúlunni 3-5 mínútur til að ganga inn í húðina áður en farði eða sólarvörn eru borin á andlitið.
Opnið Imprinting Eye Mask augnmaskann, fjarlægið gagnsæju filmuna og leggið einn maska undir hvort auga. Leyfið maskanum að sitja á húðinni í um 15 mínútur. Fjarlægið og nuddið því serumi sem eftir situr inn í húðina. Má nota kvölds og morgna.
Berið 2-4 dropa af EGF Serum á andlit, háls og bringu. Berið á að morgni og bíðið í 3-5 mínútur áður en aðrar vörur á borð við rakakrem, sólarvörn eða farða eru settar á húðina. Berið á hreina húð að kvöldi. Þannig aukast áhrif vörunnar yfir nóttina þegar húðin er í viðgerðarfasa.