Beint í efni
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.

Hydration Heroes

Gjafasett

Hydration Heroes gjafasettið inniheldur tvær af okkar allra vinsælustu húðvörum, hið margverðlaunaða EGF Serum (15 ml) í fullri stærð og Hydrating Cream (15 ml) í lúxus-prufustærð, sem saman næra húðina og veita henni langvarandi raka.

EGF Serum eru byltingarkenndir og margverðlaunaðir húðdropar, sérstaklega þróaðir til að vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við fínar línur og hrukkur. Hydrating Cream er létt og nærandi rakakrem sem veitir húðinni djúpan og langvarandi raka, verndar hana gegn umhverfisáhrifum og skilur hana eftir mjúka, slétta og ljómandi.

EGF Serum (15 ml) í fullri stærð og Hydrating Cream (15 ml) fylgir með.

Virði: 19.887 kr.

Verð15.990 kr.

Eiginleikar og ávinningur

Gjöf sem veitir húðinni langvarandi raka.

Hydration Heroes gjafasettið sameinar okkar margverðlaunaða EGF Serum, sem vinnur á sjáanlegum öldrunarmerkjum og styður við endurnýjun húðarinnar, og vinsæla Hydrating Cream. Settið er fullkomið fyrir þau sem vilja leggja áherslu á góðan og langvarandi raka, draga úr ásýnd fínna lína og hrukka og veita húðinni heilbrigða og ljómandi ásýnd.

EGF Serum (15 ml) eru byltingarkenndir húðdropar, sérstaklega þróaðir til að vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við fínar línur og hrukkur, auka þéttleika húðarinnar og veita langvarandi raka. Serumið inniheldur aðeins 7 hrein og áhrifarík innihaldsefni, þar á meðal okkar einstaka BIOEFFECT EGF, endurnærandi vaxtarþátt sem gegnir mikilvægu hlutverki við að efla rakabindingu og viðhalda sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.

Hydrating Cream (15 ml) er létt og silkimjúkt rakakrem sem veitir húðinni góðan og langvarandi raka. Formúlan sameinar rakagefandi innihaldsefni á borð við hýalúrónsýru, E-vítamín og hreint íslenskt vatn sem næra húðina, veita andoxunarvörn og stuðla að jafnari áferð og húðlit.

EGF Serum:

  • Dregur úr ásýnd hrukka og fínna lína
  • Eykur og viðheldur raka í húðinni
  • Þéttir og sléttir húðina
  • Jafnar áferð og húðlit
  • Hentar öllum húðgerðum
  • Aðeins 7 innihaldsefni
  • Aðeins þörf á 2-4 dropum
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Án rotvarnarefna
  • Prófað af húðlæknum

Stærð: 15 ml

Hydrating Cream:

  • Létt og nærandi formúla
  • Gengur hratt og vel inn í húðina
  • Veitir langvarandi raka
  • Verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum
  • Skilur húðina eftir mjúka, slétta og ljómandi
  • Frábær viðbót við reglubundna húðumhirðu
  • Hentar öllum húðgerðum
  • Án ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum

Stærð: 15 ml

Lykilinnihaldsefni    

BIOEFFECT EGF: Hjálpar til við að örva náttúrulega kollagenframleiðslu og minnkar því sýnilega fínar línur og hrukkur og þéttir og sléttir húðina. EGF er lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðar þar sem það er rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur.

Hýalúronsýra: Innihaldsefni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni og gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka. Hún hjálpar jafnframt til við að jafna áferð og stuðla að sléttari og heilbrigðari ásýnd húðarinnar.

Glýserín: Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.

E-vítamín: Eitt þekktasta og áhrifamesta andoxunarefnið fyrir bæði líkama og húð. Það fyrirfinnst náttúrulega í húðinni en dregið getur úr magni þess vegna þeirra umhverfisáhrifa sem húðin verður fyrir (t.d. þegar sólarvörn er ekki notuð). E-vítamín verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum og skaðlegum áhrifum sindurefna auk þess að jafna áferð og húðlit.

Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið er magn ertandi steinefna á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki, sem gerir það síður líklegt til að þurrka eða erta húðina. Því hentar íslenska vatnið einstaklega vel í framleiðslu húðvara.

Innihaldsefnalisti:

EGF Serum: GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM HYALURONATE, TROMETHAMINE, SODIUM CHLORIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Hydrating Cream: WATER (AQUA), CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, BUTYLENE GLYCOL, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, CETYL ALCOHOL, TOCOPHEROL, PHENOXYETHANOL, SODIUM HYALURONATE, ETHYLHEXYLGLYCERIN, CARBOMER, SORBITAN OLEATE, POTASSIUM SORBATE, POTASSIUM HYDROXIDE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Upplýsingar

BIOEFFECT® Hydration Heroes

BIOEFFECT® EGF SERUM er margverðlaunað serum sem endurnýjar húðina og veitir henni raka. Hefur fyrirbyggjandi áhrif og vinnur gegn sýnilegum merkjum öldrunar auk þess að viðhalda heilbrigðri áferð og ásýnd húðar með aðeins 7 innihaldsefnum.

  • Dregur úr sýnileika fínna lína og hrukka
  • Eykur og viðheldur raka í húðinni
  • Endurnýjar, endurnærir og endurbætir húð
  • Einungis 7 innihaldsefni

Notkunarleiðbeiningar
Berið 2-4 dropa á andlit, háls og bringu. Notið kvölds og morgna, eitt og sér eða með öðrum BIOEFFECT vörum til að hámarka áhrif og virkni.

BIOEFFECT EGF SERUM hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni.

Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði á húðinni í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF SERUM.

BIOEFFECT®HYDRATING CREAM er afar nærandi og rakagefandi krem sem gerir húðina mjúka, slétta og ljómandi.

  • Veitir húðinni raka og næringu
  • Eykur ljóma
  • Hentar vel til notkunar yfir BIOEFFECT serum

Notkunarleiðbeiningar
Berið á hreina húð á andliti og á hálsi, nuddið með léttum strokum upp á við.

BIOEFFECT HYDRATING CREAM hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki ilmefni. Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast leitaðu upplýsinga hjá lækni áður en þú notar BIOEFFECT HYDRATING CREAM.

Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.

BIOEFFECT® IMPRINTING HYDROGEL MASK veitir húðinni mikinn raka. Maskinn er sérstaklega hannaður til að hámarka áhrif EGF í BIOEFFECT serumum og inniheldur aðeins efni sem trufla ekki virkni frumuvaka.

  • Eykur raka og frískar upp á húðina
  • Hámarkar virkni BIOEFFECT seruma
  • Eykur áhrif EGF
  • Án alkóhóls, olíu og ilmefna

Notkunarleiðbeiningar
Berið BIOEFFECT serum að eigin vali á húðina. Opnið maskann varlega, fjarlægið gagnsæju filmuna og leggið maskann á andlitið, með gelhliðina að húðinni. Við mælum með að setja neðri hluta maskans fyrst á andlitið. Fjarlægið hvítu filmuna. Leyfið maskanum að vera á andlitinu í 15 mínútur. Fjarlægið og nuddið því serumi sem eftir situr inn í húðina. Mælt er með því að nota maskann 2-3 sinnum í viku til að ná hámarksárangri.

BIOEFFECT IMPRINTING HYDROGEL MASK hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni. Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT IMPRINTING HYDROGEL MASK.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

Skref 1
EGF Serum: Berðu 2–4 dropa á andlit, háls og bringu með mjúkum hringlaga hreyfingum upp á við. Bíddu í 3–5 mínútur áður en aðrar vörur eru bornar á húðina. Má nota kvölds og morgna.

Skref 2
Hydrating Cream: Berðu á andlit, háls og bringu og nuddaðu upp á við með mjúkum strokum.

Passar vel með

Þér gæti einnig líkað