




Pure Power
Gjafasett
Pure Power gjafasettið sameinar þrjár kraftmiklar húðvörur sem sérstaklega eru þróaðar fyrir þroskaða og þurra húð. Þriggja skrefa húðrútínan samanstendur af EGF Power Serum (15 ml) og EGF Power Eye Cream (15 ml) í fullri stærð ásamt EGF Power Cream (15 ml) í lúxus-prufustærð. Saman mynda vörurnar afar öfluga Power húðrútínu sem vinnur á helstu öldrunarmerkjum húðarinnar.
EGF Power Serum vinnur á sjáanlegum öldrunarmerkjum og dregur úr litamisfellum af völdum sólarljóss og UV-geislunar, ásamt því að styrkja ysta varnarlag húðarinnar. EGF Power Eye Cream er sérstaklega þróað fyrir viðkvæmt augnsvæðið og dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka, bauga og þrota. EGF Power Cream veitir þroskaðri húð djúpan raka og næringu, eykur þéttleika og stuðlar að jafnari áferð og húðlit.
Gjafasettið er á 11.587 kr. lægra verði en ef vörurnar eru keyptar stakar.
Virði: 44.577 kr.
Eiginleikar og ávinningur
Öflug húðrútína.
Pure Power gjafasettið er vegleg gjöf fyrir þau sem eru farin að sjá sýnileg merki öldrunar, á borð við hrukkur, þurrk og ójafnan húðlit, og kjósa kraftmiklar húðvörur sem skila raunverulegum árangri.
EGF Power Serum (15 ml) er kraftmikið serum sem inniheldur tvo vaxtarþætti, BIOEFFECT EGF og BIOEFFECT KGF, og er sérstaklega þróað fyrir eldri, þroskaða og þurra húð. Húðdroparnir vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við hrukkur og fínar línur, auka teygjanleika og þéttleika húðarinnar, styrkja ysta varnarlag hennar og draga úr litamisfellum af völdum sólarljóss og UV-geislunar.
EGF Power Eye Cream (15 ml) er öflugt og nærandi augnkrem, sérstaklega þróað til að vinna á sýnilegum öldrunarmerkjum í kringum augun. Kremið dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka, dökkum baugum, þrota og þurrki ásamt því að slétta og þétta viðkvæmt augnsvæðið. Formúlan inniheldur lykilinnihaldsefnið BIOEFFECT EGF ásamt sérvöldum, virkum innihaldsefnum sem skila sýnilegum árangri.
EGF Power Cream (15 ml) er kraftmikið andlitskrem, sérstaklega þróað fyrir þroskaða húð sem þegar er farin að sjá sýnileg merki öldrunar. Kremið veitir djúpan raka, vinnur á hrukkum og fínum línum og stuðlar að jafnari áferð og húðlit, ásamt því að draga úr litabreytingum og ásýnd húðhola. EGF Power Cream er afurð áralangrar rannsókna- og þróunarvinnu og inniheldur einstaka efnaformúlu þar sem BIOEFFECT EGF gegnir lykilhlutverki. Formúlan inniheldur einnig áhrifarík innihaldsefni á borð við betaglúkan, níasínamíð, órídónín og E-vítamín.
EGF Power Serum
- Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Eykur teygjanleika og þéttleika, húðin virðist stinnari
- Dregur úr litamisfellum af völdum sólarljóss og UV-geislunar
- Styrkir ysta varnarlag húðarinnar og eykur rakabindingu
- Jafnar áferð og húðlit, húðin virðist sléttari
- Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þroskaðri og þurri húð
- Aðeins 12 innihaldsefni
- Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena, sílikons og glútens
- Prófað af húðlæknum
Stærð: 15 ml
EGF Power Eye Cream
- Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Eykur þéttleika, húðin virðist stinnari
- Dregur úr baugum, þrota og þreytumerkjum
- Jafnar húðlit og dregur úr litamisfellum
- Eykur rakabindingu
- Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þroskaðri og þurri húð
- Án ilmefna, alkóhóls, parabena, sílikons og glútens
- Prófað af húð- og augnlæknum
Stærð: 15 ml
EGF Power Cream
- Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Eykur þéttleika, húðin virðist stinnari
- Sléttir og þéttir húðina
- Jafnar áferð og húðlit
- Dregur úr litabreytingum
- Dregur úr ásýnd húðhola
- Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þroskaðri og þurri húð
- Án ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
- Prófað af húðlæknum
Stærð: 15 ml
Lykilinnihaldsefni
BIOEFFECT EGF (Epidermal Growth Factor): Rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur og öflugt lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðinnar. EGF örvar náttúrulega kollagenframleiðslu auk þess að þétta og slétta húðina.
BIOEFFECT KGF (Keratinocyte Growth Factor): Boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni og styður við endurnýjunarferli hennar, styrkir varnarlagið og stuðlar að heilbrigðri ásýnd.
N-Acetyl Glucosamine (NAG): Vegan form af amínóeinsykru sem fyrirfinnst náttúrulega á milli húðfruma. Sýnt hefur verið fram á að NAG styðji við náttúrulega framleiðslu hýalúronsýru, stuðli að bjartari og jafnari ásýnd og dragi úr litamisfellum. NAG hefur einnig andoxandi eiginleika, styður við heilbrigða uppbyggingu húðarinnar og viðheldur teygjanleika. Auk þess vinnur það gegn þurrki með því að draga úr vökvatapi og efla rakabindingu.
Hyaluronic Acid: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.
Betaglúkan úr byggi: Betaglúkan róar og nærir húðina og styrkir varnir hennar. Það viðheldur raka, vinnur gegn hrukkumyndun og verndar húðina fyrir skaðlegum geislum. Rannsóknir hafa auk þess sýnt að betaglúkan sem framleitt er úr byggi getur myndað allt að þrisvar sinnum öflugri andoxunarvörn en betaglúkan sem framleitt er úr höfrum.
Oridonin: Nýtt og árangursríkt efni í húðvöruframleiðslu. Órídónín er unnið úr jurtaþykkni og er þekkt fyrir græðandi eiginleika. Það vinnur auk þess gegn skaðlegum áhrifum sindurefna sem eru talin stuðla að sýnilegum merkjum öldrunar. Líkt og EGF úr byggi getur órídónín tengst húðfrumum og sent þeim skilaboð. Í sameiningu vinna þessi öflugu efni gegn fínum línum og slappri húð.
Níasínamíð: Einnig þekkt sem B3-vítamín. Bætir áferð húðarinnar, jafnar húðlit og eykur ljóma ásamt því að draga úr ásýnd fínna lína.
E-vítamín: Eitt þekktasta og áhrifamesta andoxunarefnið fyrir bæði líkama og húð. Það fyrirfinnst náttúrulega í húðinni en dregið getur úr magni þess vegna þeirra umhverfisáhrifa sem húðin verður fyrir (t.d. þegar sólarvörn er ekki notuð). E-vítamín verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum og skaðlegum áhrifum sindurefna auk þess að jafna áferð og húðlit.
Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.
Squalane: Einstakur rakagjafi sem finnst náttúrulega í húðinni. Gengur hratt og vel inn í húðina og skilur hana eftir mjúka, slétta og í góðu jafnvægi.
Shea Butter: Endurnærandi innihaldsefni sem hjálpar til við að viðhalda raka, styður við ysta varnarlag húðarinnar og veitir djúpa næringu og mýkt.
Koffín: Dregur úr þrota og baugum á meðan það bætir smáæðablóðrásina og nærir augnsvæðið. Býr yfir andoxunarvirkni sem hjálpar til við að vernda húðina fyrir UV-geislum og skemmdum.
Bakúsíól: Náttúrulegt innihaldsefni sem býr yfir sambærilegri virkni og retínól. Minnkar ásýnd fínna lína og hrukka og jafnar húðlit og áferð án þess að erta húðina.
Bygg ekstrakt (Barley seed extract): Öflugt innihaldsefni ríkt af peptíðum og andoxunarefnum. Minnkar ásýnd fínna lína og hrukka.
Seramíð: Eykur raka í húðinni og stuðlar að þéttari húð, ásamt því að draga úr þrota og baugum.
Innihaldsefnalisti:
EGF Power Serum: GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM CITRATE, ACETYL GLUCOSAMINE (NAG), ISOPENTYLDIOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, SODIUM HYALURONATE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1), KGF (BARLEY SH-POLYPEPTIDE-3)
EGF Power Eye Cream: WATER (AQUA), BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, CETYL ALCOHOL, GLYCERIN, SORBITOL, CAFFEINE, OENOTHERA BIENNIS (EVENING PRIMROSE) OIL, GLYCERYL STEARATE SE, PROPYLENE GLYCOL, CETEARYL OLIVATE, SORBITAN OLIVATE, NIACINAMIDE, SQUALANE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CITRATE, BAKUCHIOL, CITRUS LIMON (LEMON) PEEL POWDER, SCLEROTIUM GUM, CITRUS AURANTIFOLIA (LIME) PEEL POWDER, SORBITAN OLEATE, TOCOPHEROL, ETHYLHEXYLGLYCERIN, SODIUM HYALURONATE, XANTHAN GUM, CERAMIDE NG, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)
EGF Power Cream: AQUA/EAU/WATER, BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, BUTYLENE GLYCOL, SQUALANE, CETYL ALCOHOL, CETEARYL ALCOHOL, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, SORBITOL, SORBITAN OLEATE, TOCOPHEROL, NIACINAMIDE, BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1 (EGF), BETA-GLUCAN, ORIDONIN, HORDEUM VULGARE (BARLEY) SEED EXTRACT, SODIUM HYALURONATE, PHENOXYETHANOL, ETHYLHEXYLGLYCERIN, POLYSORBATE 20, CARBOMER, XANTHAN GUM, POTASSIUM HYDROXIDE
Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.
Upplýsingar
BIOEFFECT® Pure Power
BIOEFFECT® EGF POWER SERUM er afar öflugt serum sem var sérstaklega þróað til að draga úr sýnilegum merkjum öldrunar, efla ysta varnarlag húðarinnar, draga úr sýnileika fínna lína og hrukka og jafna bæði húðlit og áferð.
- Dregur úr sýnileika fínna lína og hrukka
- Eflir ysta varnarlag húðarinnar
- Dregur úr sýnilegum litabreytingum
- Veitir raka og næringu
- Bætir þéttleika, þrýstni og teygjanleika húðar
Notkunarleiðbeiningar
Berðu 2-4 dropa á andlit, háls og bringu. Má nota kvölds og morgna.
BOEFFECT EGF POWER SERUM hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni.Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði á húðinni í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið.
Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF POWER SERUM.
Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.
BIOEFFECT® EGF POWER EYE CREAM er kraftmikið augnkrem sérstaklega þróað fyrir viðkvæmu húðina í kringum augun. Augnkremið vinnur á hrukkum og fínum línum og hjálpar til við að draga úr bólgum auk þess að sýnilega minnka þrota og bauga.
- Vinnur á hrukkum og fínum línum
- Sýnilega minnkar þrota og bauga
- Inniheldur BIOEFFECT EGF-vaxtarþátt (Epidermal Growth Factor), koffín, bakúsíol, bygg ekstrakt (Barley seed extract), níasínamíð og seramíð
- Prófað af augn- og húðlæknum
- Inniheldur hvorki ilmefni né alkóhól
- Hentar öllum húðgerðum
Notkunarleiðbeiningar
Berðu kremið á húðina í kringum augun og nuddaðu mjúklega með fingurgómunum til að tryggja jafna dreifingu. Láttu kremið ganga vel inn í húðina áður en aðrar vörur á borð við krem, sólarvörn eða farða eru bornar á andlitið.
BIOEFFECT EGF POWER EYE CREAM hentar öllum húðgerðum og inniheldur hvorki alkóhól né ilmefni. Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði 24 klst. áður en hún er notuð á andlitið.
Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.
Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.
BIOEFFECT® EGF POWER CREAM er afar nærandi og öflugt andlitskrem sem dregur úr sýnilegum einkennum öldrunar. Inniheldur einstaka efnaformúlu, þar sem BIOEFFECT EGF gegnir lykilhlutverki. Í sameiningu vinna þessi virku innihaldsefni að því að draga úr hrukkum og fínum línum, auka þéttleika og teygjanleika húðarinnar og bæta áferð hennar.
- Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Eykur þéttleika og teygjanleika húðar
- Veitir raka og næringu
- Jafnar áferð og dregur úr litabreytingum
- Dregur úr ásýnd húðhola
Notkunarleiðbeiningar
Berið á andlit, háls og bringu kvölds og morgna. Nuddið mjúklega með hringlaga hreyfingum.
BIOEFFECT EGF POWER CREAM hentar öllum húðgerðum og er án ilmefna. Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast leitaðu upplýsinga hjá lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF Power Cream.
Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.
Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.
Hreinar húðvörur
Notkun
Skref 1:
EGF Power Serum: Berðu 2–4 dropa á andlit, háls og bringu með mjúkum hringlaga hreyfingum upp á við. Bíddu í 3–5 mínútur áður en aðrar vörur eru bornar á húðina. Má nota kvölds og morgna.
Skref 2
EGF Power Eye Cream: Berðu kremið á húðina í kringum augun og nuddaðu því mjúklega inn með fingurgómunum. Byrjaðu við innri augnkrók og dreifðu kreminu jafnt í átt að ytri augnkrók, undir augnbeinið og yfir augnlokið.
Skref 3
EGF Power Cream: Berðu á andlit, háls og bringu bæði kvölds og morgna. Nuddaðu mjúklega inn í húðina með hringlaga hreyfingum. Bíddu í 3–5 mínútur áður en aðrar vörur, á borð við sólarvörn eða farða, eru bornar á húðina.





