Beint í efni
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.

Firming Favorites

Gjafasett

Firming Favorites gjafasettið inniheldur endurnærandi EGF Eye Serum í sérstakri 10 ml stærð sem fæst eingöngu í jólagjafasettinu í ár. Augnserumið vinnur á fínum línum og baugum, birtir og þéttir húðina í kringum augun og er með kælandi stálkúlu sem dregur úr þrota. Settinu fylgja einnig tvö pör af augnmöskum sem kæla og róa viðkvæmt augnsvæðið og hámarka virkni serumsins.

Saman veita vörurnar augnsvæðinu mikinn raka, hjálpa til við að draga úr fínum línum og þétta húðina ásamt því að minnka þrota og þreytumerki.

Gjafasettið er á 3.783 kr. lægra verði en ef vörurnar eru keyptar stakar.

Virði: 17.773 kr.

Verð13.990 kr.

Eiginleikar og ávinningur

Veittu augnsvæðinu aukna athygli.

Firming Favorites gjafasettið er sérhannað fyrir viðkvæmt augnsvæðið. Vörurnar vinna einstaklega vel saman þar sem EGF Eye Serum dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka, á meðan augnmaskarnir veita djúpan raka og hámarka virkni serumsins. Tilvalin gjöf fyrir þau sem vilja áhrifaríka rútínu fyrir augnsvæðið.

EGF Eye Serum (10 ml) er sérstaklega þróað til að vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á viðkvæmu augnsvæðinu. Serumið dregur úr ásýnd fínna lína og dökkra bauga og þéttir og sléttir húðina í kringum augun. Létt formúlan gengur hratt inn í húðina og kælandi stálkúlan sefar augnsvæðið og dregur úr þrota og þreytumerkjum.

Imprinting Eye Masks (2 pör) eru nærandi augnmaskar fyrir viðkvæma húðina í kringum augun. Gelkennd áferðin hefur kælandi og róandi áhrif, dregur úr þrota og veitir húðinni skjótan og góðan raka. Augnmaskarnir eru sérstaklega þróaðir til að hámarka virkni EGF Eye Serum.

EGF Eye Serum

  • Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
  • Dregur úr þrota og þreytumerkjum
  • Nærir húðina
  • Eykur ljóma
  • Þéttir og sléttir húðina
  • Kælandi stálkúla sem vinnur gegn þrota
  • Hentar öllum húðgerðum
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af augnlæknum og húðlæknum

Stærð: 10 ml

Imprinting Eye Masks

  • Dregur úr þrota og þreytumerkjum
  • Endurnærir húðina og veitir djúpan raka
  • Þéttir og sléttir húðina í kringum augun
  • Kælir og róar húðina
  • Hámarkar virkni BIOEFFECT seruma
  • Vatnsleysanlegur og niðurbrjótanlegur gelmaski
  • Hentar öllum húðgerðum
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum

Stærð: 2x 3.6 g / 0.12 oz.

Lykilinnihaldsefni  

BIOEFFECT EGF: Hjálpar til við að örva náttúrulega kollagenframleiðslu og minnkar því sýnilega fínar línur og hrukkur og þéttir og sléttir húðina. EGF er lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðar þar sem það er rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur.

Hýalúronsýra: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

Glýserín: Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.

Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.

Innihaldsefnalisti:

EGF Eye Serum: WATER (AQUA), GLYCERIN, BUTYLENE GLYCOL, CARBOMER, SODIUM CHLORIDE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CITRATE, SODIUM DEHYDROACETATE, SODIUM HYALURONATE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Imprinting Eye Masks: WATER (AQUA), GLYCERIN, DIPROPYLENE GLYCOL, 1,2-HEXANEDIOL, CERATONIA SILIQUA (CAROB) GUM, CHONDRUS CRISPUS POWDER, CHONDRUS CRISPUS EXTRACT, SODIUM HYALURONATE, CELLULOSE GUM, SODIUM POLYACRYLATE, PHENOXYETHANOL, SUCROSE, HYDROGENATED POLYDECENE, POTASSIUM CHLORIDE, TRIDECETH-6, DISODIUM EDTA

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Upplýsingar

BIOEFFECT® Firming Favorites

BIOEFFECT® EGF EYE SERUM er öflug formúla sem er sérstaklega þróað fyrir viðkvæmu húðina í kringum augun. Auðvelt er að bera serumið á með stálkúlunni og það stuðlar strax að réttu rakajafnvægi auk þess að draga úr hinum ýmsu einkennum öldrunar.

  • Dregur úr fínum línum og hrukkum
  • Minnkar þrota og bauga
  • Gefur ljóma og gerir húðina stinnari
  • Prófað af augnlæknum

Notkunarleiðbeiningar
Þrýstið á botn ílátsins til að skammta serumi. Notið kælandi stálkúluna til að bera efnið á húðina á augnsvæðinu og nuddið mjúklega með fingurgómunum til að tryggja jafna dreifingu. Látið ganga inn í húðina áður en aðrar vörur á borð við krem, sólarvörn eða farða eru bornar á andlitið. Notið kvölds og morgna, eitt og sér eða með öðrum BIOEFFECT vörum til að hámarka áhrif og virkni.

BIOEFFECT EGF EYE SERUM hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni. Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast leitaðu upplýsinga hjá lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF EYE SERUM.

Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

BIOEFFECT® IMPRINTING EYE MASK nærir viðkvæma húð augnsvæðisins. Dregur úr þrota og þreytumerkjum og veitir húðinni djúpan raka. Maskinn er sérstaklega þróaður til að hámarka áhrif EGF í BIOEFFECT serumum og inniheldur engin efni sem trufla virkni þeirra.

  • Eykur raka og frískar upp á húðina
  • Dregur úr þreytumerkjum, þrota og baugum
  • Endurvekur ljóma og þéttleika húðar
  • Eykur virkni EGF í BIOEFFECT serumum
  • Án alkóhóls, olíu og ilmefna

Notkunarleiðbeiningar
Berið BIOEFFECT EGF Eye Serum á húðina undir augum. Opnið BIOEFFECT IMPRINTING EYE MASK. Fjarlægið gagnsæju filmuna og leggið einn maska undir hvort auga. Fjarlægið hvítu filmuna utan af maskanum og látið liggja á húðinni í 15 mínútur. Fjarlægið og nuddið því serumi sem eftir situr inn í húðina. Notið 2-3 sinnum í viku til að ná hámarksárangri.

BIOEFFECT IMPRINTING EYE MASK hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni.

Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT IMPRINTING EYE MASK.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni.

Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

Skref 1
EGF Eye Serum: Þrýstu létt á hnappinn á botninum til að skammta augnserumi og berðu á hreina húð umhverfis augun. Nuddaðu mjúklega með fingurgómunum til að tryggja jafna dreifingu

Skref 2
Imprinting Eye Masks: Opnaðu umbúðirnar varlega, fjarlægðu hvítu filmuna og leggðu einn maska undir hvort auga. Leyfðu möskunum að liggja á húðinni í 15 mínútur og nuddaðu síðan seruminu sem eftir situr inn í húðina. Notist 2–3 sinnum í viku fyrir hámarksárangur.

Passar vel með

Þér gæti einnig líkað