




Hydrating Cream + Gjöf
Vinsæla rakakreminu Hydrating Cream fylgir nú EGF Essence (50 ml) ásamt fallegum gjafapoka.
Hydrating Cream er létt og nærandi rakakrem sem veitir húðinni djúpan og langvarandi raka. EGF Essence er létt rakavatn sem inniheldur BIOEFFECT EGF og undirbýr húðina fyrir rakakremið. Saman stuðla þessar húðvörur að heilbrigðri ásýnd húðarinnar.
Hydrating Cream, í fullri stærð (50 ml) fylgir nú EGF Essence (50 ml) og gjafapoki.
Virði: 18.485 kr.
Eiginleikar og ávinningur
Fyrir heilbrigða og fallega húð.
Saman veita Hydrating Cream og EGF Essence húðinni góðan og langvarandi raka, mýkja hana og slétta, auk þess að styðja við náttúrulegt varnarlag hennar.
Hydrating Cream (50 ml) er létt rakakrem sem veitir húðinni góðan og langvarandi raka. Formúlan sameinar rakagefandi innihaldsefni á borð við hýalúrónsýru, E-vítamín og hreint íslenskt vatn sem næra húðina, veita andoxunarvörn og stuðla að jafnari áferð og húðlit.
EGF Essence (50 ml) er nærandi rakavatn sem inniheldur BIOEFFECT EGF, glýserín og íslenskt vatn sem veitir húðinni góðan raka og undirbýr hana fyrir serum og rakakrem. Það eykur rakabindingu húðarinnar, greiðir fyrir upptöku og virkni EGF og skilur húðina eftir einstaklega mjúka.
Hydrating Cream
- Létt og nærandi formúla
- Gengur hratt og vel inn í húðina
- Veitir langvarandi raka
- Verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum
- Skilur húðina eftir mjúka, slétta og ljómandi
- Frábær viðbót við reglubundna húðumhirðu
- Hentar öllum húðgerðum
- Án ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
- Prófað af húðlæknum
Stærð: 50 ml
EGF Essence
- Endurnærandi og rakagefandi
- Undirbýr húðina fyrir serum og rakakrem
- Létt formúla sem smýgur hratt inn í húðina
- Greiðir fyrir upptöku EGF og eykur virkni þeirra
- Hentar öllum húðgerðum
- Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
- Prófað af húðlæknum
Stærð: 50 ml
Lykilinnihaldsefni
BIOEFFECT EGF (Epidermal Growth Factor): Rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur og öflugt lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðinnar. EGF örvar náttúrulega kollagenframleiðslu auk þess að þétta og slétta húðina.
Hýalúronsýra: Innihaldsefni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni og gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka. Hún hjálpar jafnframt til við að jafna áferð og stuðla að sléttari og heilbrigðari ásýnd húðarinnar.
Glýserín: Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.
E-vítamín: Eitt þekktasta og áhrifamesta andoxunarefnið fyrir bæði líkama og húð. Það fyrirfinnst náttúrulega í húðinni en dregið getur úr magni þess vegna þeirra umhverfisáhrifa sem húðin verður fyrir (t.d. þegar sólarvörn er ekki notuð). E-vítamín verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum og skaðlegum áhrifum sindurefna auk þess að jafna áferð og húðlit.
Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.
Innihaldsefnalistar:
Hydrating Cream: WATER (AQUA), CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, BUTYLENE GLYCOL, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, CETYL ALCOHOL, TOCOPHEROL, PHENOXYETHANOL, SODIUM HYALURONATE, ETHYLHEXYLGLYCERIN, CARBOMER, SORBITAN OLEATE, POTASSIUM SORBATE, POTASSIUM HYDROXIDE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)
EGF Essence: WATER (AQUA), GLYCERIN, ISOPENTYLDIOL, PROPYLENE GLYCOL, SODIUM CITRATE, SORBITOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)
Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafðu samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.
Notkun
Skref 1
EGF Essence: Helltu 2–4 skvettum af EGF Essence í lófann. Berðu á hreina og þurra húð og þrýstu mjúklega inn í húðina á andliti og hálsi.
Skref 2
Hydrating Cream: Berðu á andlit, háls og bringu og nuddaðu með mjúkum hreyfingum upp á við.




