Beint í efni

Dekurpakki í boði BIOEFFECT.

Nú fylgir sumarlegur kaupauki þegar verslað er fyrir 12.000 kr. eða meira. Njóttu!

Kaupaukinn er innblásinn af vellíðan, uppbyggingu og sjálfsmildi. Elskaðu þig!

Á síðustu árum hefur umræða um andlega og líkamlega heilsu aukist. Sú umfjöllun hefur aukið vitund um sjálfsuppbyggingu og sjálfsmildi og þau áhrif sem þessar mikilvægu hugarfarsbreytingar geta haft. Í kjölfarið hafa sífellt fleiri tileinkað sér virkar en einfaldar leiðir í anda svokallaðrar sjálfsmildistefnu (e. Self Care) til að hafa jákvæð áhrif á eigin líðan. Þetta getur falist einföldum og hversdagslegum verkefnum á borð við að drekka vatnsglas, slökkva á snjalltækjum fyrir svefninn eða að taka til, eða viðameiri verkefni á borð við lífsstílsbreytingar. Hvað sem fyrir valinu verður er lokaniðurstaðan sú sama: Aukin vitund um að við getum sjálf haft áhrif á líkamlega og andlega heilsu — oft án mikillar fyrirhafnar.

Við vonum að þú njótir kaupaukans, sem er sérhannaður til að veita viðskiptavinum okkar verðskuldað dekur að hætti BIOEFFECT.

Heimadekur að hætti BIOEFFECT.

Kaupaukinn inniheldur allt sem til þarf í alvöru dekur: EGF Day Serum í ferðastærð, Imprinting Hydrogelandlitsmaska og mjúkt hárhandklæði úr microfiber örtrefjaefni. Saman koma vörurnar í fallegu snyrtiveski úr endurunnu og endurvinnanlegu efni. Settið (6.000 kr. virði) fylgir þegar verslað er fyrir 12.000 kr. eða meira. Ekki missa af þessum dásamlega dekurpakka og njóttu þess að gera vel við þig í sumar!

Skref 1

Eftir sturtu eða bað skaltu þurrka þér og vefja laufléttu og mjúku microfiber hárhandklæðinu eins og hettu utan um blautt hárið. Snúðu varlega upp á handklæðið, dragðu það aftur fyrir hnakka og festu teygjuna.

Handklæðið er létt og mjúkt, þurrkar hratt og fer betur með hárið en hefðbundin bómullarhandklæði. Mjúkar örtrefjar draga raka hratt til sín og gera hárið síður úfið. Hárhandklæðið er sérstaklega hentugt fyrir krullað eða liðað hár þar sem það kemur í veg fyrir flækjur og slitna enda á sama tíma og það viðheldur náttúrulegri lögun liðanna.

Skref 2

Þegar þú hefur komið handklæðinu fyrir á höfðinu skaltu bera EGF Day Serum á andlit og niður á háls. Nýttu tækifærið og gefðu þér róandi andlitsnudd í leiðinni – Þrýstu vörunni þétt en mjúklega inn í húðina með hringhreyfingum upp á við.

EGF Day Serum er létt og olíulaust serum sem inniheldur EGF úr byggi – endurnærandi og rakabindandi prótín sem örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og heldur húðinni sléttri og heilbrigðri. Fyrirbyggir og vinnur á ásýnd fínna lína og hrukka, veitir mikinn raka og jafnar húðlit. Gelkennd áferðin gerir húðina silkimjúka og slétta – fullkominn grunnur fyrir farða!

Skref 3

Því næst skaltu leggja Imprinting Hydrogel andlitsmaskann á andlitið og leyfa honum að sitja á húðinni í 15-20 mínútur. Á meðan gætir þú lagst undir teppi og horft á uppáhaldsþáttinn þinn, lesið bók eða gefið þér handsnyrtingu.

Þessi nærandi andlitsmaski inniheldur hýalúronsýru og glýserín sem veita djúpvirkan raka auk þess að hafa bæði róandi og kælandi áhrif á húðina. Imprinting Hydrogel Mask er gelmaski í algjörum sérflokki, enda var hann sérþróaður til að auka enn frekar á áhrif BIOEFFECT seruma. Hann er að fullu vatnsleysanlegur og niðurbrjótanlegur.

Verslaðu og tryggðu þér sumarlegan kaupauka!

Hleð inn síðu...