Beint í efni
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.
Frí sending á pöntunum yfir 12.000 kr.

BIOEFFECT x Katrin Fridriks

Í ár eru fallegu jólagjafasettin okkar unnin í samstarfi við hina alþjóðlega þekktu myndlistarkonu Katrin Fridriks. Það er árleg hefð hjá BIOEFFECT að vinna með íslenskum listakonum að jólagjafasettunum og í ár er það svipmikil abstraktlist Katrin sem prýðir settin.

Ljósmyndari: Philipe Servent

 Katrin Fridriks.

Katrín er abstraktmálari sem rannsakar hraða, þyngdarafl og samskipti mannsins við náttúruöflin í gegnum verk sín. Í verkum sínum kannar hún hreyfingu, efni og umbreytingu, sem birtist í kraftmiklum, iðandi litasamsetningum.

Katrin hefur skapað sér nafn í listaheiminum jafnt hérlendis sem erlendis. Verk hennar hafa verið sýnd víða um heim, meðal annars á Feneyjatvíæringnum í Palazzo Bembo, á Kjarvalsstöðum og á Liverpool-tvíæringnum, auk þess að vera í fjölmörgum opinberum söfnum og einkasöfnum. Hún hefur einnig tekið þátt í fjölbreyttum samstarfsverkefnum, meðal annars fyrir Bentley í tilefni 100 ára afmælis bílaframleiðandans og Penguin útgáfuna.

Í samtali um listina og samstarfið við BIOEFFECT ræddi Fridriks meðal annars tengsl sín við Ísland, samspil listar og vísinda og hugmyndirnar að baki verkinu sem prýðir jólagjafasettin í ár.

Fjarlægð, hreyfing og minni.  

Katrin er fædd í Reykjavík en ólst að mestu upp erlendis og hefur búið í Lúxemborg, Þýskalandi, Frakklandi, Belgíu og Bandaríkjunum. Að kynnast ólíkum menningarheimum, tungumálum og listumhverfum víkkaði sjóndeildarhring hennar og mótaði tengsl hennar við Ísland. „Lífið erlendis veitti mér bæði fjarlægð og víðsýni. Ísland er áfram undirstaða mín, en menningin, staðirnir og hugmyndirnar sem urðu á vegi mínum mótuðu mig sem listakonu.” Þrátt fyrir að Katrin hafi að mestu alist upp utan landsteinanna hafa hráir og ófyrirsjáanlegir náttúrukraftar Íslands haft sterk áhrif á listsköpun hennar. Í stað þess að sýna landslagið sjálft í verkum sínum sækir hún innblástur í hreyfinguna og orkuna sem býr í því. Hreyfing er stór hluti af vinnuferli Katrin. Hún vinnur með fljótandi efni og útfærir hverja hreyfingu af nákvæmni með fjarlægð, hraða og tímasetningu í huga, en gefur um leið hinu óvænta svigrúm.

Með árunum hefur Ísland ekki aðeins verið staður fyrir Katrin, heldur eitthvað sem hún ber með sér, eins konar arfleifð fyrri kynslóða, mótuð af vatni, jarðfræðilegum hreyfingum, veðuröfgum og kraftmiklum náttúruöflum. Með tímanum hafa þessi tengsl þróast út fyrir Ísland. Þótt landið sé áfram mikilvægur upphafspunktur í verkum Katrin kannar hún einnig hugmyndir um efni, vitund, minni og tengsl okkar við náttúruna.

Þar sem list og vísindi mætast. 

Í verkum Katrin mætast hið efnislega og óáþreifanlega, sem endurspeglast í áhuga hennar á vísindum. Þegar við leituðum til Katrin um samstarf vegna jólagjafasettanna 2026 fundum við fljótt sameiginlegan grunn í nálgun okkar. Eins og Katrin útskýrir: „Starf þeirra beinist að endurnýjun undir sýnilegu yfirborði húðarinnar, á meðan málverkin mín kanna hvernig ósýnilegir kraftar verða sýnilegir í gegnum efni.“

Sameiginlegur íslenskur uppruni styrkti tenginguna enn frekar. BIOEFFECT nálgast íslenska náttúru í gegnum vísindi og nýsköpun, á meðan Katrin túlkar krafta hennar í gegnum efni, hreyfingu og flæði.

„Bæði list og vísindi eiga upphaf sitt í forvitni. Það heillar mig hvernig efni mótast, hvernig upplýsingar berast, hvernig mynstur verða til og hvernig ósýnilegir kraftar taka á sig áþreifanlega mynd.“

Þrír heimar, þrjár tíðnir. 

Listaverkið sem prýðir jólagjafasettin í ár skiptist í þrjá litaheima: silfur, grænan og bláan. Þótt þeir séu allir hluti af sama verkinu sér Katrin þá sem „þrjá ólíka heima, hver með sína tíðni, sem eiga í samtali hver við annan.“ Hver litur hefur sína merkingu í listheimi Katrin. Silfur táknar sameiginlega vitund, speglun og meðvitund, grænn táknar móður jörð, líf og endurnýjun, á meðan blár táknar minni vatnsins, dýpt og miðlun.

Litirnir eiga rætur að rekja til hugmyndaheims verka Katrin úr seríunni A Certain Blue Enters Your Soul, þar sem hún fæst við vitund og upplifanir handan hins efnislega. Í samstarfinu við BIOEFFECT fengu þessar hugmyndir nýja merkingu þar sem endurnýjun og enduruppbygging er í forgrunni.

Listin lifir áfram.  

Katrin vinnur gjarnan verk sín á stórum strigum, þar sem þau fá mikið rými til að njóta sín. Á jólagjafasettunum birtist list hennar í nýju formi og færist þannig út fyrir strigann og heldur þannig áfram ferð sinni.

Aðspurð hvernig það hafi verið að sjá verk sitt á gjafasettunum segir Fridriks:

„Ég elska það. Brot úr málverki yfirgefur vinnustofuna mína, ferðast inn í líf annarrar manneskju og verður hluti af samskiptum fólks.“

Kynntu þér gjafasettin nánar hér.

The Holiday Gift Sets