Beint í efni

EGF Hand Serum

Nýtt handserum sem verndar, nærir og mýkir húð á höndum. Handserumið inniheldur kraftmikil og áhrifarík innihaldsefni, þar á meðal okkar einstaka EGF úr byggi, en einnig níasínamíð, seramíð og hýalúronsýru sem hjálpa til við að næra þurrar og sprungnar hendur, efla ysta varnarlag húðarinnar og draga úr ásýnd litabreytinga. Þetta silkimjúka handserum gengur vel inn í húðina og skilur við hana mjúka og nærða.
4.990 kr.

Eiginleikar og áhrif

Rakagefandi, verndandi og endurnærandi formúla fyrir þurrar og þreyttar hendur.

EGF Hand Serum nærir og mýkir þurrar og þreyttar hendur og skilur við þær silkimjúkar eftir hverja notkun. Þessi öfluga formúla var sérstaklega þróuð til að efla ysta varnarlag húðarinnar og sjá húðinni fyrir umsvifalausum en langvarandi raka.

Áferðin á EGF handseruminu er silkimjúk og gelkennd og gengur vel inn í húðina. Handserumið inniheldur EGF úr byggi, áhrifaríkt boðskiptaprótín sem getur eflt hæfni húðarinnar við að draga til sín og viðhalda raka. Heilbrigt rakastig getur stuðlað að þéttari og sléttari ásýnd. Fyrir vikið er EGF Hand Serum sérstaklega kjörið fyrir þurrar eða þroskaðar hendur. Handserumið inniheldur einnig níasínamíð, seramíð og þykkni úr byggfræjum sem geta aukið hæfni húðarinnar við að verjast skaðlegum utanaðkomandi áhrifum auk þess að vera róandi fyrir erta húð. Níasínamíð, einnig þekkt sem B3 vítamín, stuðlar að því að bæta áferð og jafna húðlit auk þess að lágmarka ásýnd fínna lína. Að auki inniheldur handserumið hýalúronsýru og díglýserín sem hjálpar við að viðhalda heilbrigðu rakastigi og veita húðinni umsvifalausan en langvarandi raka.

EGF Hand Serum hentar vel til daglegra nota, einkum fyrir þurrar, sprungnar eða þreyttar hendur. Hendur þínar eiga skilið allt það sem EGF Hand Serum hefur fram að færa.

  • Eykur raka og eflir rakabindingu
  • Stuðlar að sterkara varnarlagi húðar
  • Dregur úr ásýnd litabreytinga
  • Bætir og jafnar húðlit
  • Verndar gegn skaðlegum utanaðkomandi umhverfisáhrifum
  • Gerir húðina þéttari og sléttari ásýndar
  • Hentar viðkvæmri húð
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum

Lykilinnihaldsefni

EGF úr byggi – Endurnærandi og rakabindandi boðskiptaprótín, eða svokallaður vaxtarþáttur, sem vísindateymið okkar framleiðir úr byggplöntum. EGF úr byggi getur eflt hæfni húðarinnar við að draga til sín og viðhalda raka. Jafnara rakastig og aukinn raki í húðlögunum viðheldur þykkri og þéttri ásýnd húðarinnar. EGF úr byggi styður einnig við framleiðslu húðarinnar á kollageni, elastíni og hýalúronsýru og stuðlar því að sléttri og heilbrigðri ásýnd.

Hýalúronsýra – Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka.

Níasínamíð – Einnig þekkt sem B3 vítamín. Bætir áferð, jafnar húðlit og eykur ljóma auk þess að lágmarka ásýnd fínna lína. Stuðlar að sterkara varnarlagi húðar.

Seramíð – Veitir djúpan raka og kemur jafnvægi á rakastig. Eflir auk þess virkni ysta varnarlags húðarinnar og hefur því verndandi áhrif gegn skaðlegum utanaðkomandi áhrifum, svo sem af völdum veðurs eða mengunar.

Glýserín –Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.

Íslenskt vatn – Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.

Full Ingredient List
WATER (AQUA), DIGLYCERIN, ISOPENTYLDIOL, NIACINAMIDE, PHENOXYETHANOL, GLYCERIN, CARBOMER, BUTYLENE GLYCOL, GLYCOSPHINGOLIPIDS, SODIUM HYALURONATE, SODIUM HYDROXIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Upplýsingar

BIOEFFECT® EGF HAND SERUM

BIOEFFECT EGF HAND SERUM nærir húðina á höndum, dregur úr sýnilegum merkjum öldrunar og styrkir ysta varnarlag húðarinnar. Skilur við hendurnar mjúkar og vel nærðar.

  • Dregur úr sýnilegum öldrunarmerkjum í húð
  • Nærir húðina
  • Styrkir varnarlag húðar, eflir getu hennar til að binda vökva
  • Jafnar áferð og húðlit
  • Gelkennd áferð sem smýgur hratt inn í húðina.

Notkunarleiðbeiningar: Berið á hendurnar og nuddið mjúklega þar til varan hefur gengið inn í húðina. Notið eins oft og þörf er á.

BIOEFFECT EGF HAND SERUM hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni.

Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði á húðinni í þrjá daga áður en varan er notuð á hendurnar.

Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF HAND SERUM.

Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

Nuddið mjúklega á handarbök og í lófa þar til formúlan hefur gengið inn í húðina. Notið eins oft og þörf er á, sérstaklega eftir handþvott. Berið ríkulega á hendurnar á kvöldin til að leyfa innihaldsefnunum að ná hámarksvirkni yfir nóttina.

Passar vel með:

Hleð inn síðu...