





Pure Power
Pure Power gjafasettið inniheldur þrjár háþróaðar og kraftmiklar BIOFFECT vörur: okkar margverðlaunaða EGF Power Serum (15 ml) og EGF Power Eye Cream (15 ml) í fullri stærð, auk EGF Power Cream (15 ml) í lúxus-prufustærð. Saman mynda vörurnar öfluga Power-húðrútínu sem vinnur á öllum helstu öldrunarmerkjum húðarinnar, til dæmis hrukkum og fínum línum, litamisfellum, dökkum blettum og þurrki. EGF Power vörulína BIOEFFECT er sérstaklega þróuð fyrir þroskaða húð sem þegar er farin að upplifa einkenni öldrunar. EGF Power Serum dregur úr ásýnd fínna lína, hrukka og litamisfella, þéttir og sléttir húðina, veitir henni raka, og styrkir ysta varnarlag hennar. EGF Power Cream er byltingarkennt andlitskrem sem vinnur á fimm helstu öldrunarmerkjum húðar; hrukkum, húðþynningu, litamisfellum, slappri húð og þurrki, ásamt því að auka þéttleika og jafna áferð. Nýjasta varan í Power-vörulínunni er EGF Power Eye Cream, sem vinnur með hnitmiðuðum hætti á fjölda aldursmerkja á viðkvæmu augnsvæðinu, til dæmis fínum línum og hrukkum, samhliða því að minnka ásýnd bauga, þrota og þurrks.
Gjafasettið er á 11.087 kr. lægra verði en ef vörurnar eru keyptar stakar.
Virði: 43.077 kr.
Eiginleikar og áhrif
Pure Power gjafasettið er tilvalin gjöf, sérstaklega fyrir þau sem nú þegar eru farin að sjá sýnileg merki öldrunar, t.d. hrukkur, slappa húð og ójafnan húðlit - og kjósa kraftmiklar húðvörur sem bera raunverulegan árangur. Þessi öfluga þrenna hentar einstaklega vel fyrir þroskaða og þurra húð, en vörurnar veita húðinni djúpan og góðan raka, auk þess að þétta hana og slétta.
EGF Power Serum eru kraftmiklir húðdropar, sérstaklega þróaðir fyrir eldri, þroskaða og þurra húð. EGF Power Serum hjálpar til við að styrkja ysta varnarlag húðarinnar, auk þess að vinna sýnilega á hrukkum, fínum línum, litamisfellum og þurrki. Þessi öfluga og framsækna formúla inniheldur aðeins 12 hrein og virk innihaldsefni, þar á meðal lykilinnihaldsefnin EGF og KGF – vaxtarþætti með öfluga og fjölþætta virkni, NAG (N-Acetyl Glucosamine) sem vinnur á litamisfellum í húð og nærandi hýalúronsýru.
EGF Power Cream er byltingarkennt andlitskrem, en þessi djúpvirkandi formúla hefur einstök áhrif á aldursmerki á borð við hrukkur, fínar línur og slappleika, auk þess að jafna húðlit og áferð húðarinnar. Kremið inniheldur úrval virkra og sérvalinna innihaldsefna: lykilinnihaldsefnið EGF, níasínamíð, betaglúkan úr byggi og oridónín, og er sérstaklega þróað fyrir þroskaða húð.
EGF Power Eye Cream er þróað til að minnka ásýnd fínna lína og hrukka, bauga, þrota og þurrks á augnsvæðinu. EGF Power Eye Cream inniheldur sex öflug virk innihaldsefni, EGF, koffín, bakuchiol, bygg-extrakt, níasínamíð og keramíð. Augnkremið hentar sérlega vel fyrir þroskaða húð og veitir djúpan og langvarandi raka, auk þess að þétta og slétta húðina á augnsvæðinu.
EGF Power Serum
- Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Eykur teygjanleika og þéttleika, húðin virðist stinnari
- Dregur úr litamisfellum af völdum sólarljóss og UV-geislunar
- Eflir virkni ysta varnarlags húðarinnar og eflir rakabindingu
- Bætir áferð húðar, húðin virðist sléttari og húðlitur jafnari
- Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þurri eða þroskaðri húð
- Aðeins 12 innihaldsefni
- Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena, sílikons og glútens
- Prófað af húðlæknum
Stærð: 15 ml
EGF Power Eye Cream
- Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Eykur þéttleika og húðin virðist stinnari
- Dregur úr baugum, þrota, þreytumerkjum og slappleika
- Jafnar húðlit og dregur úr litamisfellum
- Eykur rakabindingu
- Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þroskaðri og þurri húð
- Án ilmefna, alkóhóls, parabena, sílikon-efna og glútens
- Prófað af húð- og augnlæknum
Stærð: 15 ml
EGF Power Cream
- Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Þéttir húðina, húðin virðist stinnari
- Jafnar áferð og dregur úr litabreytingum
- Sléttir húðina og jafnar húðlit
- Dregur úr ásýnd svitahola
- Hentar öllum húðgerðum, þó sérstaklega eldri húð og þurri húð
- Aðeins 23 innihaldsefni
- Án ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens.
- Prófað af húðlæknum
Stærð: 15 ml
Lykilinnihaldsefni
BIOEFFECT EGF: Vaxtarþáttur sem hjálpar til við að örva náttúrulega kollagenframleiðslu og minnkar því sýnilega fínar línur og hrukkur ásamt því að þétta og slétta húðina. EGF er lykilinnihaldsefnið í vörum BIOEFFECT.
BIOEFFECT KGF: Er vaxtarþáttur sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni, eflir ysta varnarlagið og viðheldur heilbrigðri ásýnd hennar. KGF-vaxtarþátturinn í húðvörum BIOEFFECT styður við náttúrulega viðgerðarhæfni húðarinnar og hefur verndandi áhrif gegn óæskilegum umhverfisáhrifum.
Vaxtarþættirnir í vörum BIOEFFECT eru framleiddir í byggi með aðferðum háþróaðrar plöntulíftækni, í því skyni að tryggja hámarks líffræðilega samhæfni við mannlega vaxtarþætti. Byggplönturnar eru ræktaðar í gróðurhúsi á Íslandi og vökvaðar með hreinu íslensku vatni.
Hýalúronsýra: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka, auk þess að þétta og jafna húðina.
N-Acetyl Glucosamine (NAG): Vegan form af amínóeinsykru sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni og er staðsett á milli húðfruma. Sýnt hefur verið fram á að NAG styður við náttúrulega framleiðslu hýalúronsýru í húðinni, auk þess að stuðla að bjartari og jafnari ásýnd húðarinnar. NAG hefur andoxandi eiginleika, og hjálpar til við að viðhalda teygjanleika húðarinnar, draga úr vökvatapi og efla rakabindingu.
Koffín: Dregur úr ásynd þrota og bauga auk þess að styðja smáæðablóðrásina. Býr yfir andoxunarvirkni sem hjálpar til við að vernda húðina fyrir UV-geislum og skemmdum.
Bakúsíól: Náttúrulegt innihaldsefni sem býr yfir sambærilegri virkni og retínól. Minnkar ásýnd fínna lína og hrukka og jafnar húðlit og áferð án þess að erta húðina.
Níasínamíð: Einnig þekkt sem B3-vítamín. Bætir áferð, jafnar húðlit og eykur ljóma auk þess að lágmarka ásýnd fínna lína.
Seramíð: Seramíð hjálpar til við að lágmarka þrota og bauga, auk þess að því að þétta ásýnd húðarinnar á augnsvæðinu.
Bygg ekstrakt (Barley seed extract): Öflugt innihaldsefni ríkt af peptíðum og andoxunarefnum. Minnkar ásýnd fínna lína og hrukka.
Betaglúkan úr byggi: Betaglúkan róar og nærir húðina og styrkir varnir hennar. Það viðheldur raka, vinnur gegn hrukkumyndun og verndar húðina gegn skaðlegum geislum.
Órídónín: Nýtt og árangursríkt efni í húðvöruframleiðslu. Órídónín er unnið úr jurtaþykkni og er þekkt fyrir græðandi eiginleika. Það vinnur gegn skaðlegum áhrifum sindurefna sem eru talin stuðla að sýnilegum merkjum öldrunar. Líkt og EGF úr byggi getur órídónín tengst húðfrumum og sent þeim skilaboð. Í sameiningu vinna þessi öflugu efni gegn fínum línum og slappri húð.
Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.
Squalane: Endurnærandi og rakagefandi andoxunarefni. Það vinnur hér með fitusýrunum í kvöldvorrósarolíu og sheasmjöri. Saman næra efnin húðina, veita henni raka og mýkja hana án þess að skilja eftir klístrað lag á yfirborði hennar.
Innihaldsefnalistar
EGF Power Serum: GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM CITRATE, ACETYL GLUCOSAMINE (NAG), ISOPENTYLDIOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, SODIUM HYALURONATE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1), KGF (BARLEY SH-POLYPEPTIDE-3)
EGF Power Cream: WATER (AQUA), BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, BUTYLENE GLYCOL, ONEOTHERA BIENNIS (EVENING PRIMROSE) OIL, CETYL ALCOHOL, SQUALANE, SORBITOL, HYDROGENATED POLYISOBUTENE, NIACINAMIDE, TOCOPHEROL, SODIUM HYALURONATE, BETA GLUCAN, ORIDONIN, PHENOXYETHANOL, SORBITAN OLEATE, CARBOMER, XANTHAN GUM, ETHYLHEXYLGLYCERIN, POLYSORBATE 20, POTASSIUM HYDROXIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1).
EGF Power Eye Cream: WATER (AQUA), BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, CETYL ALCOHOL, GLYCERIN, SORBITOL, CAFFEINE, OENOTHERA BIENNIS (EVENING PRIMROSE) OIL, GLYCERYL STEARATE SE, PROPYLENE GLYCOL, CETEARYL OLIVATE, SORBITAN OLIVATE, NIACINAMIDE, SQUALANE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CITRATE, BAKUCHIOL, CITRUS LIMON (LEMON) PEEL POWDER, SCLEROTIUM GUM, CITRUS AURANTIFOLIA (LIME) PEEL POWDER, SORBITAN OLEATE, TOCOPHEROL, ETHYLHEXYLGLYCERIN, SODIUM HYALURONATE, XANTHAN GUM, CERAMIDE NG, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)
Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.
Upplýsingar
BIOEFFECT® EGF POWER SERUM
BIOEFFECT® EGF Power Serum er afar öflugt serum sem var sérstaklega þróað til að draga úr sýnilegum merkjum öldrunar, efla ysta varnarlag húðarinnar, draga úr sýnileika fínna lína og hrukka og jafna bæði húðlit og áferð.
- Dregur úr sýnileika fínna lína og hrukka
- Eflir ysta varnarlag húðarinnar
- Dregur úr sýnilegum litabreytingum
- Veitir raka og næringu
- Bætir þéttleika, þrýstni og teygjanleika húðar
Notkunarleiðbeiningar: Berið 2-4 dropa á andlit, háls og bringu. Má nota kvölds og morgna.
BIOEFFECT EGF POWER SERUM hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni.Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði á húðinni í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF POWER SERUM.
Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.
Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.
BIOEFFECT® EGF POWER CREAM
BIOEFFECT® EGF Power Cream er afar nærandi og öflugt andlitskrem sem dregur úr sýnilegum einkennum öldrunar. Inniheldur einstaka blöndu öflugra innihaldsefna sem unnin eru úr plöntum og draga úr hrukkum og fínum línum, bæta þéttleika og teygjanleika húðar ásamt því að bæta áferð hennar.
- Dregur úr hrukkum og fínum línum
- Bætir þéttleika og teygjanleika
- Veitir raka og næringu
- Bætir áferð og yfirbragð
- Eykur ljóma
- Hentar vel til notkunar yfir BIOEFFECT serum
Notkunarleiðbeiningar: Berið á andlit, háls og bringu kvölds og morgna. Nuddið mjúklega með hringlaga hreyfingum.
BIOEFFECT EGF Power Cream hentar öllum húðgerðum og er án ilmefna. Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast leitaðu upplýsinga hjá lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF Power Cream.
Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.
Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.
BIOEFFECT® EGF POWER EYE CREAM
BIOEFFECT® EGF POWER EYE CREAM er nýtt og kraftmikið EGF-augnkrem og er sérstaklega þróað fyrir viðkvæmu húðina í kringum augun. Augnkremið vinnur á hrukkum og fínum línum og hjálpar til við að draga úr bólgum auk þess að sýnilega minnka þrota og bauga.
- Vinnur á hrukkum og fínum línum
- Sýnilega minnkar þrota og bauga
- Inniheldur BIOEFFECT EGF-vaxtarþátt (Epidermal Growth Factor), koffín, bakúsíol, bygg ekstrakt (Barley seed extract), níasínamíð og seramíð
- Prófað af augn- og húðlæknum
- Inniheldur hvorki ilmefni né alkóhól
- Hentar öllum húðgerðum
BIOEFFECT® EGF POWER EYE CREAM hentar öllum húðgerðum og inniheldur hvorki alkóhól né ilmefni. Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði 24 klst. áður en hún er notuð á andlitið.
Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.
Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.
Hreinar húðvörur
Notkun
Skref 1: Berðu 2-4 dropa af EGF Power Serum á hreina húð og dreifðu mjúklega með hringlaga hreyfingum upp á við.
Skref 2: Berðu EGF Power augnkremið á með því að dreifa því mjúklega með fingurgómunum á svæðið undir augum. Byrjaðu við augnkrók, haltu áfram undir auganu og upp á augnlokin þar til húðin er þurr viðkomu.
Skref 3: Berðu næst EGF Power andlitskremið á andlit, háls og bringu. Berðu kremið mjúklega á með léttum, hringlaga hreyfingum. Bíddu í 3-5 mínútur áður en farði eða sólarvörn er sett á.