Beint í efni

Hydrating Cream

Hydrating Cream veitir húðinni fullkominn raka sem endist allan daginn. Þetta einstaklega létta en nærandi rakakrem er búið til úr hreinum efnum á borð við íslenskt vatn, EGF úr byggi, hýalúronsýru og E-vítamín. Það eykur raka og skilur við húðina slétta og mjúka.
12.990 kr.

Eiginleikar og áhrif 

Nærandi andlitskrem með tæru, íslensku vatn sem veitir húðinni langvarandi raka

Grunnurinn í Hydrating Cream er einfaldlega tært, íslenskt vatn. Þetta olíulausa rakakrem eykur rakastig húðarinnar um allt að 57% eftir aðeins tvö skipti* og rakinn helst í húðinni allan daginn. Hydrating Cream sameinar krafta íslenska vatnsins, EGF úr byggi, hýalúronsýru og E-vítamíns, auk þess að vera stútfullt af andoxunarefnum. Í sameiningu næra þessi áhrifaríku efni húðina og skilja við hana mjúka, þétta og slétta.

Hydrating Cream er andlitskrem sem má nota bæði kvölds og morgna og er frábær viðbót við reglubundna húðumhirðu. Kremið má nota eitt og sér eða ásamt öðrum vörum frá BIOEFFECT til að auka næringu, raka og virkni enn frekar. Þetta dásamlega krem inniheldur aðeins 16 örugg efni og hentar því öllum sem kjósa að nota hreinar og áhrifaríkar húðvörur.

  • Eykur rakastig húðarinnar um allt að 57%, eftir aðeins sólarhringsnotkun*
  • Létt og olíulaus formúla sem gengur hratt inn í húðina
  • Verndandi andoxunarefni
  • Skilur við húðina mjúka, þétta, slétta og geislandi
  • Má nota eitt og sér eða ásamt BIOEFFECT serumum
  • Aðeins 16 hrein innihaldsefni
  • Hentar öllum húðgerðum, sér í lagi olíukenndri húð
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum

Stærðir: 30 ml og 50 ml

*Skv. sjálfstæðri, tvíblindri 20 þátttakenda rannsókn á vegum BIOEFFECT.

Lykilinnihaldsefni

Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

E-vítamín — Eitt þekktasta og áhrifamesta andoxunarefnið fyrir bæði líkama og húð. Það fyrirfinnst náttúrulega í húðinni en dregið getur úr magni þess vegna þeirra umhverfisáhrifa sem húðin verður fyrir (t.d. þegar sólarvörn er ekki notuð). E-vítamín verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum og skaðlegum áhrifum sindurefna auk þess að jafna áferð og húðlit.

Íslenskt vatn — Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.

EGF — Rakabindandi og endurnærandi boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Með aldrinum dregur úr magni EGF og í kjölfarið fer að bera á sjáanlegum öldrunarmerkjum. Vísindateymið okkar fann upp aðferð til að vinna EGF úr byggplöntum og nýta í húðvöruframleiðslu. BIOEFFECT EGF er það fyrsta í heiminum sem er framleitt úr plöntum. EGF úr byggi örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og viðheldur sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.

Listi yfir innihaldsefni:

WATER (AQUA), CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, BUTYLENE GLYCOL, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, CETYL ALCOHOL, DL-ALPHA TOCOPHEROL, PHENOXYETHANOL, SODIUM HYALURONATE, ETHYLHEXYLGLYCERIN, CARBOMER, SORBITAN OLEATE, POTASSIUM SORBATE, POTASSIUM HYDROXIDE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Fullkomnaðu húðumhirðuna

EGF úr byggi hefur mesta virkni í röku umhverfi. Til að tryggja hámarksárangur mælum við með að varan sé notuð reglulega ásamt öðrum BIOEFFECT vörum.

Passar vel með:

  • EGF Essence: Létt og nærandi andlitsvatni sem eykur raka og undirbýr húðina fyrir serum og rakakrem.
  • EGF Serum: Margverðlaunað serum sem inniheldur aðeins 7 innihaldsefni og dregur verulega úr einkennum öldrunar.

Upplýsingar

BIOEFFECT® HYDRATING CREAM

BIOEFFECT® Hydrating Cream er afar nærandi og rakagefandi krem sem gerir húðina mjúka, slétta og ljómandi.

• Veitir húðinni raka og næringu

• Eykur ljóma

• Hentar vel til notkunar yfir BIOEFFECT serum

Notkunarleiðbeiningar: Berið á hreina húð á andliti og á hálsi, nuddið með léttum strokum upp á við.

BIOEFFECT Hydrating Cream hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki ilmefni. Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast leitaðu upplýsinga hjá lækni áður en þú notar BIOEFFECT Hydrating Cream.

Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni.
Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

Berið á andlit, háls og bringu. Nuddið upp á við með mjúkum strokum. Frábær viðbót við reglubundna húðumhirðu. Kremið má nota eitt og sér eða ásamt öðrum vörum frá BIOEFFECT til að auka næringu, raka og virkni enn frekar.

Passar vel með

Hleð inn síðu...