Beint í efni

EGF Power Performance

Kraftmikið gjafasett sem inniheldur tvær vörur úr Power vörulínunni okkar sem er sérstaklega hönnuð til að vinna gegn sjáanlegum merkjum öldrunar. Settið inniheldur EGF Power Serum og EGF Power Cream. Gjafasettið er á 25% lægra verði en stakar vörur.

Eiginleikar og áhrif

EGF Power Performance inniheldur tvær af okkar kraftmiklu vörum sem sérstaklega voru þróaðar fyrir þroskaða húð.

Power gjafasett sem inniheldur tvær kraftmiklar vörur sem veita áhrifaríka húðrútínu sem vinnur gegn sjáanlegum merkjum öldrunar ásamt því að jafna lit og áferð húðarinnar. Saman mynda EGF Power Serum og EGF Power Cream öfluga tvennu sem nærir, sléttir og þéttir þroskaða húð. Gjafasettið er á 25% lægra verði en ef vörurnar eru keyptar stakar á fullu verði.

EGF Power Serum er afar öflug húðvara sem er sérstaklega þróuð til að styrkja ysta varnarlag húðarinnar, jafna húðlit og vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við hrukkur, litamisfellur og þurrk. EGF Power Serum er framsækin formúla aðeins 12 hreinna og virkra efna, m.a. EGF úr byggi, KGF úr byggi – boðskiptaprótín sem styrkir varnarlag húðarinnar – ásamt hýalúronsýru og NAG.

EGF Power Cream byltingarkennt andlitskrem, það er bæði kraftmikið og djúpvirkandi, vinnur á fínum línum, jafnar lit og áferð og eykur þéttleika húðarinnar. EGF Power Cream inniheldur úrval virkra og sérvalinna efna úr plönturíkinu. Það inniheldur meðal annars lykilhráefnið okkar, EGF, auk betaglúkans sem við framleiðum á sjálfbæran hátt úr byggplöntum.

Gjafasettið inniheldur:

EGF Power Serum

  • Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
  • Eykur teygjanleika og þéttleika, húðin virðist stinnari
  • Dregur úr litamisfellum af völdum sólarljóss og UV-geislunar
  • Eflir virkni ysta varnarlags húðarinnar og eflir rakabindingu
  • Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þurri eða þroskaðri húð
  • Prófað af húðlæknum

    Stærð: 15ml. / 0.5 fl. oz.

EGF Power Cream

  • Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka.
  • Þéttir húðina, húðin virðist stinnari.
  • Jafnar áferð og dregur úr litabreytingum.
  • Dregur úr ásýnd svitahola.
  • Hentar öllum húðgerðum, þó sérstaklega eldri húð og þurri húð.
  • Prófað af húðlæknum

Stærð: 50 ml. / 1.69 fl.oz.

Lykilinnihaldsefni

EGF — Rakabindandi og endurnærandi boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Með aldrinum dregur úr magni EGF og í kjölfarið fer að bera á sjáanlegum öldrunarmerkjum. Vísindateymið okkar fann upp aðferð til að vinna EGF úr byggplöntum og nýta í húðvöruframleiðslu. BIOEFFECT EGF er það fyrsta í heiminum sem er framleitt úr plöntum. EGF úr byggi örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og viðheldur sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.

KGF — Boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni, hefur eflandi áhrif á ysta varnarlag hennar og viðheldur heilbrigðri ásýnd. KGF úr byggi styður við náttúrulega viðgerðarhæfni húðar og hefur verndandi áhrif gegn ýmiss konar ytra áreiti, þ.m.t. af geislun, umhverfisáhrifum og efnaáhrifum.

N-Acetyl Glucosamine (NAG) — Vegan form af amínóeinsykru sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni og er staðsett á milli húðfruma. Sýnt hefur verið fram á að NAG styður við náttúrulega framleiðslu hýalúronsýru í húðinni. Rannsóknir hafa einnig sýnt að það stuðlar að bjartari og jafnari ásýnd og dregur úr litamisfellum. NAG hefur andoxandi eiginleika, styður við heilbrigða uppbyggingu (e. structural integrity) húðarinnar, viðheldur teygjanleika og vinnur á þurrki með því að draga úr vökvatapi og efla rakabindingu.

Betaglúkan úr byggi — Betaglúkan róar og nærir húðina og styrkir varnir hennar. Það viðheldur raka, vinnur gegn hrukkumyndun og verndar húðina fyrir skaðlegum geislum. Rannsóknir hafa auk þess sýnt að betaglúkan sem framleitt er úr byggi getur myndað allt að þrisvar sinnum öflugri andoxunarvörn en betaglúkan sem framleitt er úr höfrum.

Órídónín — Nýtt og árangursríkt efni í húðvöruframleiðslu. Órídónín er unnið úr jurtaþykkni og er þekkt fyrir græðandi eiginleika. Það vinnur auk þess gegn skaðlegum áhrifum sindurefna sem eru talin stuðla að sýnilegum merkjum öldrunar. Líkt og EGF úr byggi getur órídónín tengst húðfrumum og sent þeim skilaboð. Í sameiningu vinna þessi öflugu efni gegn fínum línum og slappri húð.

Níasínamíð — Einnig þekkt sem B3 vítamín. Bætir áferð, jafnar húðlit og eykur ljóma auk þess að lágmarka ásýnd fínna lína.

Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

Íslenskt vatn — Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.

Squalane — Endurnærandi og rakagefandi andoxunarefni. Það vinnur hér með fitusýrunum í kvöldvorrósarolíu og sheasmjöri. Saman stuðla efnin að næringu og raka og mýkja húðina án þess að skilja eftir klístrað lag á yfirborði hennar, sem er sérstaklega hentugt fyri eldri húð eða þurra húð.

Innihaldsefni:

EGF Power Serum:

GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM CITRATE, ACETYL GLUCOSAMINE (NAG), ISOPENTYLDIOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, SODIUM HYALURONATE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1), KGF (BARLEY SH-POLYPEPTIDE-3)

EGF Power Cream:

WATER (AQUA), BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, BUTYLENE GLYCOL, ONEOTHERA BIENNIS (EVENING PRIMROSE) OIL, CETYL ALCOHOL, SQUALANE, SORBITOL, HYDROGENATED POLYISOBUTENE, NIACINAMIDE, TOCOPHEROL, SODIUM HYALURONATE, BETA GLUCAN, ORIDONIN, PHENOXYETHANOL, SORBITAN OLEATE, CARBOMER, XANTHAN GUM, ETHYLHEXYLGLYCERIN, POLYSORBATE 20, POTASSIUM HYDROXIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1).

Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.

Upplýsingar

BIOEFFECT® EGF POWER SERUM

BIOEFFECT® EGF POWER SERUM er afar öflugt serum sem var sérstaklega þróað til að draga úr sýnilegum merkjum öldrunar, efla ysta varnarlag húðarinnar, draga úr sýnileika fínna lína og hrukka og jafna bæði húðlit og áferð.

  • Dregur úr sýnileika fínna lína og hrukka
  • Eflir ysta varnarlag húðarinnar
  • Dregur úr sýnilegum litabreytingum
  • Veitir raka og næringu
  • Bætir þéttleika, þrýstni og teygjanleika húðar

Notkunarleiðbeiningar: Berið 2-4 dropa á andlit, háls og bringu. Má nota kvölds og morgna.

BIOEFFECT EGF POWER SERUM hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni.

Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði á húðinni í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið.

Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF POWER SERUM.

BIOEFFECT® EGF POWER CREAM

BIOEFFECT® EGF POWER CREAM er afar nærandi og öflugt andlitskrem sem dregur úr sýnilegum einkennum öldrunar. Inniheldur einstaka blöndu öflugra innihaldsefna sem unnin eru úr plöntum og draga úr hrukkum og fínum línum, bæta þéttleika og teygjanleika húðar ásamt því að bæta áferð hennar.

  • Dregur úr hrukkum og fínum línum
  • Bætir þéttleika og teygjanleika
  • Veitir raka og næringu
  • Bætir áferð og yfirbragð
  • Eykur ljóma
  • Hentar vel til notkunar yfir BIOEFFECT serum

Notkunarleiðbeiningar: Berið á andlit, háls og bringu kvölds og morgna. Nuddið mjúklega með hringlaga hreyfingum.

BIOEFFECT EGF POWER CREAM hentar öllum húðgerðum og er án ilmefna.

Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið.

Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast leitaðu upplýsinga hjá lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF POWER CREAM.

Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

Berið á andlit, háls og bringu bæði kvölds og morgna.

Berið 2-4 dropa af EGF Power Serum á andlit og háls með mjúkum hringhreyfingum upp á við. Bíðið í 3-5 mínútur áður og nuddið svo EGF Power Cream mjúklega inn í húðina með hringhreyfingum. Bíðið í 3-5 mínútur áður en aðrar vörur á borð við sólarvörn eða farða eru settar á húðina. Vörurnar má nota einar og sér eða saman í kraftmikill húðrútínu.

EGF úr byggi hefur mesta virkni í röku umhverfi. Til að tryggja hámarksárangur mælum við með að varan sé notuð reglulega ásamt öðrum BIOEFFECT vörum.

Þér gæti einnig líkað við

Hleð inn síðu...