BIOEFFECT á Íslandi - Veldu virkni í hverjum dropa
Ljómandi fallegar gjafir.
Árlegu jólagjafasettin okkar eru nú fáanleg! Settin eru í ár hönnuð í samstarfi við myndlistarkonuna Katrin Fridriks, og innihalda úrval af okkar vinsælustu verðlaunahúðvörum í hátíðarbúningi.
Settin eru á allt að 25% lægra verði en ef vörurnar eru keyptar stakar.
Hydrating Cream + gjöf.
Vinsæla rakakreminu Hydrating Cream fylgir nú EGF Essence (50 ml) ásamt fallegum gjafapoka. Saman veita vörurnar húðinni góðan og langvarandi raka, mýkja hana og slétta, auk þess að styðja við náttúrulegt varnarlag hennar.
EGF Essence (50 ml) og gjafapoki fylgja með þér að kostnaðarlausu.
EGF Power Collection (Serum 30 ml).
EGF Power vörurnar eru sérstaklega þróaðar fyrir þroskaða og þurra húð með sýnileg öldrunarmerki. Þær innihalda BIOEFFECT EGF og mynda saman öfluga húðrútínu sem dregur úr sýnileika fínna lína og hrukka, veitir djúpan raka og næringu, eykur þéttleika húðarinnar og stuðlar að jafnari áferð og húðlit.
Settið er á 14.954 kr. lægra verði en ef vörurnar eru keyptar stakar.
Velkomin í verslanir okkar.
Við hlökkum til að taka á móti þér í verslun BIOEFFECT í Hafnarstræti 19, Hafnartorgi eða í nýrri verslun okkar á Laugavegi 33. Við leggjum áherslu á persónulega og faglega húðráðgjöf og góða þjónustu. Athugið að húðmæling er í boði í verslun okkar í Hafnarstræti. Þegar verslað er hjá okkur fylgir alltaf smá glaðningur, auk þess sem við bjóðum reglulega upp á fallega kaupauka sem fást eingöngu í verslunum okkar.
























































